Njóta góðs af fáum framkvæmdum á erlendum flugvöllum

Kadeco efnir til alþjóð­legrar sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun til árs­ins 2050 á landi félags­ins í grennd Kefla­vík­ur­flug­vallar. Fram­kvæmda­stjóri finnur fyrir miklum áhuga en minna far­þega­flug hefur leitt af sér minni fram­kvæmdir á flug­völlum heims­ins.

Grænmerkta svæðið milli Reykjanesbæjar og Keflavíkurflugvallar er hluti þess svæðis sem Kadeco hefur umsjón með. Samkeppni um þróunaráætlun á landi Kadeco til ársins 2050 hefst í apríl.
Græn­merkta svæðið milli Reykja­nes­bæjar og Kefla­vík­ur­flug­vallar er hluti þess svæðis sem Kadeco hefur umsjón með. Sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun á landi Kadeco til árs­ins 2050 hefst í apríl. Mynd: Kadeco

Kadeco, þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar, leitar nú að hug­myndum frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum í nágrenni flug­vall­ar­ins sem nýt­ast munu kepp­endum í alþjóð­legri sam­keppni um þróun svæð­is­ins. Í sam­tali við Kjarnann segir Pálmi Freyr Rand­vers­son, fram­kvæmda­stjóri Kadeco, að inn­send svör muni nýt­ast við gerð sam­keppn­is­lýs­ingar en til stendur að fara í sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun fyrir svæðið umhverfis Kefla­vík­ur­flug­völl. Hann segir að meðal ann­ars sé verið að leita að hug­myndum um hvað vanti á svæðið og ábend­ingum um hvaða tæki­færi leyn­ast þar.

Í fyrra var ákveðið að halda sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun svæð­is­ins til árs­ins 2050. Spurður að því hvort kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi haft áhrif á fram­vindu verk­efn­is­ins segir Pálmi svo ekki vera. Sam­keppnin hefj­ist í lok apríl en þá fer fram for­val. „Við munum aug­lýsa það á evr­ópska útboðs­svæð­inu. Þá er þetta form­lega sam­keppn­is­ferli hafið. Mánuði síðar eiga teymin að vera búin að skila inn til okkar svörum við spurn­ing­unum sem við setjum fram í for­val­inu,“ segir hann.

„Svo gefum við okkur smá tíma til að fara yfir það sem þau hafa sent inn og veljum þau fimm teymi sem að upp­fylla kröf­urnar best. Við ætlum svo að vinna með þeim áfram og láta þau teikna svæðið upp fyrir okkur og svara spurn­ingum varð­andi þróun til fram­tíðar sem okkur vantar svör við,“ segir Pálmi. Hann gerir ráð fyrir að undir lok árs­ins verði Kadeco búið að velja eina til­lögu sem verður svo unnið eftir að höfðu sam­ráði við íbúa og aðra hags­muna­að­ila á svæð­inu.

Lítið um framkvæmdir á flugvöllum heimsins

Að sögn Pálma hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn ef til vill ein­ungis aukið á áhuga frá arki­tekta- og verk­fræði­stofum á að taka þátt í sam­keppn­inni. Ástæðan er sú að ládeyða í flug­um­ferð vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur orðið til þess að lítið fer fyrir stórum upp­bygg­ing­ar­verk­efnum í kringum flug­velli heims­ins. Kadeco njóti því að ein­hverju leyti góðs af því að efna til þess­arar sam­keppni núna þegar fram­kvæmdir við flug­velli eru í lág­marki.

Þrátt fyrir að far­þega­flug hafi nán­ast stöðvast á heims­vísu á síð­asta hafa fyr­ir­ætl­anir Kadeco þó ekki breyst. Pálmi segir fjölda far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl skipta máli í stóra sam­heng­inu en félagið horfi þó einnig til ann­arra þátta og að stefnan sé að skapa fjöl­breytt­ari atvinnu­tæki­færi. Pálmi er engu að síður hand­viss um að flugið taki við sér að nýju.

Eggin í fleiri körfur

„Við gerum algjör­lega ráð fyrir að þró­un­ar­á­ætlun Kefla­vík­ur­flug­vallar hald­ist og við erum að horfa til mjög langs tíma. En við erum líka að horfa á önnur tæki­færi tengd þessu svæði, bæði nálægð við flug­völl­inn, nálægð við stór­skipa­höfn­ina í Helguvík og við land­svæði sem er mjög álit­legt til upp­bygg­ingar hvers konar. Við viljum auð­vitað nýta allt sem felst í flug­vell­inum en við viljum líka dreifa eggj­unum í fleiri körfur. Þannig að að þetta stendur ekki og fellur bara með því að flug­völl­ur­inn fari á blússandi fart aftur,“ segir Pálmi.

Í þró­un­ar­á­ætlun Kefla­vík­ur­flug­vallar sem Pálmi nefnir er gert ráð fyrir að fjöldi far­þega sem fari um flug­stöð­ina verði sam­tals tæp­lega 14 millj­ónir árið 2040, þar af tæp­lega sex millj­ónir far­þega í tengiflugi. Árið 2019 fóru rúm­lega 7,2 millj­ónir far­þega um flug­völl­inn og þar af nam fjöldi far­þega í tengiflugi rúmum tveimur millj­ónum. Far­þega­fjöld­inn náði hámarki árið 2018 en þá fóru alls 9,8 millj­ónir far­þega um flug­völl­inn, þar af tæp­lega 3,9 millj­ónir í tengiflugi.

Fluglest ekki á teikniborðinu eins og er

Pálmi segir að með fram gríð­ar­legum vexti á flug­vell­inum á und­an­förnum árum í kjöl­far auk­ins fjölda ferða­manna hafi skap­ast önnur vanda­mál sem þurfi að leysa og nefnir hann teng­ing­una við höf­uð­borg­ar­svæðið í því sam­hengi.

Spurður að því hvort að á teikni­borð­inu sé lest á milli flug­vall­ar­ins og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir Pálmi það velta á til­lög­unum sem koma út úr sam­keppn­inni um þróun svæð­is­ins. Meta þurfi hvort lest sé raun­hæfur kostur eða hvort annar sam­göngu­máti sé rök­rétt­ari.

„Maður veit ekki hvort að flug­lestin verði eitt­hvað sem að vinn­ings­hafar sam­keppn­innar munu tefla fram eða eitt­hvað annað. Tíminn verður að leiða það í ljós,“ segir Pálmi.

Hafa umsjón með 55 ferkílómetrum

Kadeco er í eigu rík­is­ins og var stofnað í októ­ber 2006 eftir að Banda­ríkja­her yfir­gaf her­stöð­ina á Mið­nes­heiði. Upp­runa­legt hlut­verk félags­ins var að selja fast­eign­irnar sem her­inn skildi eftir sig en nú er helsta hlut­verk félags­ins að hafa umsjón með og ráð­stafa lóðum og landi í eigu rík­is­ins eins og segir á vef Kadeco.

Félagið hefur umsjón með alls 55 fer­kíló­metra stóru svæði við Kefla­vík­ur­flug­völl. Á heima­síðu félags­ins segir meðal ann­ars um fyr­ir­hug­aða sam­keppni um þró­un­ar­á­ætlun fyrir svæðið til árs­ins 2050 að rík áhersla verði lögð á „að svæðið þró­ist í takt við sam­fé­lagið og að við upp­bygg­ingu verði horft til styrk­leika Suð­ur­nesja og Íslands. Mark­miðið er að fá fram heild­stæða þró­un­ar­á­ætlun sem leggur grunn að þró­un­ar­kjarna fyrir atvinnu­líf og sam­fé­lag á Suð­ur­nesjum og dregur fram mark­aðs­lega sér­stöðu svæð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár