Fimm einstaklingar í sóttkví á Ísafirði og einn í einangrun

Fimm ein­stak­lingar eru í sótt­kví og einn í ein­angrun vegna mögu­legrar Covid-19 sýk­ingar. Allir ein­stak­ling­arnir eru stað­settir á Ísafirði.

Fimm ein­stak­lingar eru í sótt­kví og einn í ein­angrun vegna mögu­legrar Covid-19 sýk­ingar. Allir eru á Ísafirði. Einni ein­angrun var aflétt í dag þar sem sýni var nei­kvætt. Nið­ur­staðna frá ein­stak­lingi í ein­angrun er að vænta seinna í dag.

Frá þessu er greint í stöðu­upp­færslu Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða í dag.

Í henni kemur fram að sótt­kví sé var­úð­ar­ráð­stöfun fyrir ein­kenna­lausa ein­stak­linga sem hafa verið á ferða­lögum á skil­greindum áhættu­svæðum. Gripið sé til ein­angr­unar sem var­úð­ar­ráð­stöf­unar ef ein­hver ein­kenni eru fyrir hendi sem mögu­lega geta verið Covid-19.

Fyrstu ráðstafanirnar sem gerðar eru í umdæminu

[links]„Ákvörðun um sótt­kví og ein­angrun er tekin af umdæm­is­lækni sótt­varna hjá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða, með hlið­sjón af leið­bein­ingum frá sótt­varna­lækni. Þetta eru fyrstu ráð­staf­an­irnar sem gerðar eru í umdæm­inu,“ segir í færsl­unni.

Einkenni sýk­ing­ar­innar líkj­ast helst flensu; hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir og þreyta. Ef ein­stak­lingar finna fyrir veik­indum er þeim bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend síma­númer +354 544-4113) og fá þar nán­ari upp­lýs­ingar um hvernig þeir eigi að nálg­ast heil­brigð­is­kerfið. Veikir ein­stak­lingar eru sér­stak­lega beðnir um að mæta ekki á bráða­mót­töku sjúkra­húsa eða á heilsu­gæslu­stöðvar nema að fengnum ráð­legg­ingum í síma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár