Sátt að nást um „breiðu línurnar“

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gengið vel og hratt í þess­ari viku.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gengið nokkuð hratt fyrir sig að und­an­förnu og er nú komin sátt um „breiðu lín­urnar“ eins og einn við­mæl­andi komst að orði.

Innan þess mengis má telja til sátt um að auka fjár­fram­lög til heil­brigðis- og mennta­mála, auk sóknar í inn­viða­fjár­fest­ingum, svo sem í sam­göngu­verk­efni. Ekkert er enn byrjað að ræða um ráð­herra­skipt­ingu af alvöru, en fyrir liggur að rík­is­stjórnin verður með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, sem for­sæt­is­ráð­herra.

Í við­tali við mbl.is segir Katrín að ljóst sé að langt sé á milli flokk­anna á ýmsum sviðum og sam­starf flokk­anna muni taka mið af því.

Í dag var fundað með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins, meðal ann­ars til að glöggva sig á stöðu mála í kjara­við­ræðum. Samn­ingar hafa verið lausir hjá aðild­ar­fé­lögum BHM frá því í haust en lít­ill gangur hefur verið í samn­inga­við­ræðum við ríkið. „Það ligg­ur fyr­ir að eitt af stærstu verk­efn­um þeirr­ar rík­is­stjórn­ar sem tek­ur við er að ná ein­hverri sátt á vinnu­mark­aði. Við vild­um hlýða á þeirra sjón­ar­mið, bæði um það hvernig sé hægt að við­halda efna­hags­leg­um stöðug­leika og skapa fé­lags­leg­an stöðug­leika á Íslandi. Það er eitt af því sem verka­lýðs­hreyf­ing­in hef­ur verið að setja á odd­inn,“ segir Katrín í við­tali við mbl.is.

Vinna við hinn eig­in­lega stjórn­ar­sátt­mála er unnin jafn­óðum í við­ræðum flokk­anna, en gert er ráð fyrir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna klárist í þess­ari viku. Eins og mál standa nú er ólík­legt að upp úr slitni, þar sem sátt virð­ist vera um það hjá öllum flokk­unum að slá veru­lega af ítr­ustu kröfum og vinna út frá sam­eig­in­legum áherslu­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár