Mynd: Bára Huld Beck

Vinna að pólitískri sátt

Dregist hefur á lang­inn hjá Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að leggja fram fjöl­miðla­frum­varpið svo­kallað. Frum­varpið er tölu­vert umdeilt en ráð­herra stefnir á að leggja það fram á haust­þingi.

Frumvarp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla er enn í und­ir­bún­ingi en stefnt er að því að leggja það fram á haust­þingi.“ Þetta kemur fram í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans þegar innt var eftir svörum varð­andi stöðu frum­varps­ins. Ekki var unnt að fá nán­ari upp­lýs­ingar um tíma­setn­ingu.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sagð­ist í febr­úar síð­ast­liðnum vera sann­færð um að ná frum­varpi sínu um end­ur­greiðslur til fjöl­miðla í gegnum rík­is­stjórn en það var tekið fyrir á rík­is­stjórn­ar­fundi í byrjun maí. Breyt­ingar voru gerðar á því frum­varpi sem kynnt var í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í jan­úar síð­ast­liðnum.

Frum­varp­inu var dreift á Alþingi þann 20. maí en það komst þó ekki til umræðu á Alþingi áður en þingið fór í sum­ar­leyf­i.

Mark­miðið með frum­varp­inu er að efla hlut­verk rík­­is­ins, þegar kemur að fjöl­miðlaum­hverf­inu, og styrkja rekstr­­ar­um­hverf­ið, en í frum­varp­inu felst meðal ann­­ars að stíga fyrstu skrefin í átt að því sem þekkst hefur á Norð­­ur­lönd­unum um ára­bil.

Þátttaka RÚV á aug­lýs­inga­­mark­aði umdeild

Í frum­varp­inu er lagt til að stuðn­­ingur rík­­is­ins við einka­rekna fjöl­miðla verði tví­­þætt­­ur. Ann­­ars vegar verður stuðn­­ingur í formi end­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­sent af til­­­teknum hluta kostn­aðar af rit­­stjórn­­­ar­­störf­um, en að hámarki er hann 50 millj­­ónir króna á fjöl­mið­il. Hins vegar er talað um stuðn­­ing sem myndi nemi allt að 5,15 pró­­sent af launum starfs­­fólks á rit­­stjórn sem fellur undir lægra skatt­­þrep tekju­skatts­­stofna.

Árlegur kostn­aður er met­inn 520 millj­­ón­ir, en fyrri hug­­myndir gerðu ráð fyrir 350 millj­­ón­­um. Breyt­ingar á hlut­verki eða tekju­­stofnum RÚV voru ekki hluti af frum­varp­inu en í grein­ar­gerð­inni segir að stefnt sé að því að skoða tekju­upp­bygg­ingu RÚV fyrir árs­lok 2019. Eins og kunn­ugt er hefur þátt­­taka RÚV á aug­lýs­inga­­mark­aði, sam­hliða tekjum af útvarps­­gjaldi, verið umdeild.

Lilja Alfreðsdóttir kynnti fyrst frumvarpið í lok janúar á þessu ári.
Lilja Alfreðs­dóttir kynnti fyrst frum­varpið í lok jan­úar á þessu ári.

Verið að fínpússa ýmis atriði

Í sér­stöku svari frá ráð­herra til Kjarnans kemur fram að umfang stærstu frum­varpa ráðu­neyt­is­ins á þessu haust­þingi – nýtt lána­sjóðs­frum­varp, sviðs­lista­frum­varpið og fjöl­miðla­frum­varpið – hafi vaxið og frum­varps­vinnan tekið lengri tíma en ráð hafi verið fyrir gert. „Sviðs­lista­frum­varpið og frum­varp um nýjan Mennta­sjóð náms­manna eru til­búin en vinnu við fjöl­miðla­frum­varpið er ekki lokið,“ segir í svari Lilju.

Þar sé verið að fín­pússa ýmis atriði og vinna að póli­tískri sátt um það lýð­ræð­is­lega mik­il­væga mál, að fjöl­miðlar starfi í rekstr­ar­um­hverfi sem geri þeim kleift að blómstra og sinna sínu mik­il­væga sam­fé­lags­hlut­verki. „Eins og fram hefur komið horfum við til for­dæma hjá nágrönnum okkar á Norð­ur­lönd­unum, þar sem stuðn­ingur við fjöl­miðla hefur skilað góðum árangri.“

Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar töluvert á eftir áætlun

Fram kom í frétt Kjarnans í gær að ein­ungis helm­ingur þeirra frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar sem voru á þing­mála­skrá í sept­em­ber, sem voru alls 26, hefðu verið lögð fram í lok þar­síð­ustu viku, eða 13 tals­ins. Þá hafði ein af þremur þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem voru á þing­mála­skrá í sept­em­ber verið lagðar fyrir Alþingi á sama tíma.

Í októ­ber átti, sam­kvæmt þing­mála­skrá, að leggja fram 36 frum­vörp. Þann 18. októ­ber höfðu tvö þeirra verið lög fyrir Alþingi. Þá höfðu fimm af 14 þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem eru á þing­mála­skrá í októ­ber verið lagðar fyrir Alþingi. Síðan 18. októ­ber hafa þrjú frum­vörp rík­is­stjórnar verið lögð fram. Rík­is­stjórnin hefur auk þess lagt tvö frum­vörp fram á Alþingi sem ekki eru á þing­mála­skrá á yfir­stand­andi þing­i.

Andstaða við frumvarpið

Tölu­verða and­stöðu mátti greina við fjöl­miðla­frum­varpið þegar það kom fyrst fram en hún birt­ist hjá sumum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, meðal ann­ars hjá Óla Birni Kára­syni og Ásmundi Frið­riks­syni. Óli Björn skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Skil­­virk­asta leiðin til að styrkja rekstr­­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla er lækk­­un skatta. Styrkt­­ar- og milli­­­færslu­­kerfi er versta leið­in.“

Ásmundur skrif­aði grein á vef­inn Eyj­ar.­net þar sem hann líkti vænt­an­legum end­ur­greiðslum til fjöl­miðla við búvöru­samn­ing­um, sem kosta að með­al­tali 13,2 millj­arða króna á tíu ára gild­is­tíma sín­um. Ásmundur sagði í grein­inni að frum­varpið gerði meðal ann­ars „ráð fyrir að skoð­un­ar­bræður sem skapa sér vett­vang í fjöl­miðlun og oft eru nefndir mykju­dreifarar verði vel tryggðir og gætu fengið hlut­falls­lega hæstu fram­lög­in.“

23 umsagnir bárust

Frum­varpið var lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og lauk sam­ráð­inu þann 16. febr­úar síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust 23 umsagn­ir, flestar frá einka­reknum fjöl­miðl­um, með marg­hátt­uðum og ólíkum athuga­semd­um. Stærstu einka­reknu miðlar lands­ins gerðu miklar athuga­semdir við veru RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði í sínum umsögn­um.

Þá vildi Torg ehf., útgef­andi Frétta­blaðs­ins, að íviln­unum yrði breytt þannig að skil­yrð­i til end­­ur­greiðslu kostn­aðar verð­i breytt þannig að ­­rit­­stjórn­­­ar­efn­i verð­i að lág­­marki ver­a 30 pró­­sent í stað 40 pró­­sent hjá mið­l­in­­um. „Ástæða þess er sú að við ­­laus­­lega taln­ing­u á þessu hlut­­fall­i í Frétta­­blað­in­u er ­­ljóst að ­­blað­ið er á ­­mörk­um þess að ­­upp­­­fylla skil­yrð­ið. Ef slík­­ lög væru ­­sett og ­­stærsti ­­prent­mið­ill lands­ins ­­gæt­i ekki ­­feng­ið ­­styrk ­­vegna þess að hann ­­upp­­­fyllt­i ekki skil­yrð­in er ­­ljóst að lög­in væru að eng­u ­­leyt­i að ­­ná til­­gang­i sín­­um.“ Torg lagði einnig til að end­ur­greiðslu myndu ná helst til rit­stjórna sem væru með fleiri en 20 starfs­menn sem myndi þýða að þrír einka­reknir aðil­ar, Torg, Árvakur og Sýn, myndu fá þorra end­ur­greiðslna.

Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er fram frum­varp sem við­ur­kenndir vanda einka­rek­inna fjöl­miðla og er staða þeirra því í fyrsta sinn komin á dag­skrá stjórn­mál­anna.

Lilja sagði í Silfr­inu dag­inn eftir að sam­ráði lauk að þetta væri fyrsta skrefið af nokkrum til að rétta við stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi og að það væri í anda þeirra end­ur­greiðslu­kerfa sem þegar hefur verið komið á fót varð­andi kvik­mynda­gerð, bóka­út­gáfu og nýsköpun hér­lend­is. Þetta væri í fyrsta sinn sem lagt væri fram frum­varp sem við­ur­kenndi vanda einka­rek­inna fjöl­miðla og staða þeirra væri því í fyrsta sinn komin á dag­skrá stjórn­mál­anna.

Segir frjálsu fjölmiðlana eiga við ofurefli að etja gagnvart Ríkisútvarpinu

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, er ein þeirra sem gagn­rýnir frum­varpið en hún fjall­aði um málið á bloggi sínu í sept­em­ber síð­ast­liðnum. „Árið 2006 rætt­ist loks sá draumur Egils Skalla-Gríms­sonar að silfri yrði sáldrað yfir þing­heim til að valda upp­námi og áflogum. Þá voru sam­þykkt lög sem gerðu stjórn­mála­flokk­ana nær alger­lega háða reip­togi um það skot­silfur skatt­greið­enda sem er til skipt­anna á Alþingi. Nokkru síðar tók við áður óþekkt langvar­andi upp­lausn í íslenskum stjórn­málum og stefnir nú hrað­byri í að hver maður verði með sinn flokk því þannig hámarka menn sinn hlut í silfr­inu. Jafnvel flokkar sem ná ekki kjöri eiga von um hlut að upp­fylltum vægum skil­yrðum,“ skrifar hún.

Hún heldur áfram: „Nú eru uppi hug­myndir um að íslenskir fjöl­miðlar fari sömu leið og flokk­arnir og verði upp á fram­lög úr rík­is­sjóði komnir. Hug­myndin kemur svo sem ekki upp úr þurru. Frjálsu fjöl­miðl­arnir eiga við ofurefli að etja gagn­vart Rík­is­út­varp­inu. RÚV fær nokkur þús­und millj­ónir á ári frá almenn­ingi óháð því hvort menn nýta sér þjón­ustu þess. Rík­is­fyr­ir­tækið nýtir þessa for­gjöf einnig til að draga til sín aug­lýs­inga­tekjur.“

Sigríður segir að í stað þess að laga þetta „órétt­læti gagn­vart almenn­ingi og einka­reknu miðl­unum með því að draga úr þving­uðum fram­lögum almenn­ings til Rík­is­út­varps­ins“ vilji sumir stjórn­mála­menn nú bæta í órétt­lætið gagn­vart skatt­greið­endum. Það eigi að gera með því að skatt­greið­endur verði einnig þving­aðir til að ger­ast styrkt­ar­menn hjá alls kyns einka­reknum miðlum, dag­blöðum, útvarps­stöðvum og blogg­síðum.

„Því fylgja sér­stök ónot að hið svo­kall­aða fjórða vald verði háð rík­inu á þennan hátt. Fjöl­miðlar munu árlega þurfa að blanda sér í bar­átt­una um úthlut­un­ar­regl­urnar og sækja að því búnu sam­eig­in­lega að fjár­veit­inga­vald­inu um að auka fram­lögin frá skatt­greið­endum. Eru fjöl­miðlar lík­legir til að veita stjórn­völdum aðhald á sama tíma og þeir eru á slíkum fóðrum?“ spyr hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár