Þátttökugjald í Eurovision er 4,3 milljónir króna

Beinn kostn­aður RÚV við þátt­töku í Eurovi­son í ár er þegar orð­inn 10,3 millj­ónir króna. Þátt­töku­gjald sem hver þátta­tak­andi þarf að greiða til fram­kvæmda­stjórnar keppn­innar í Vín er um það bil 4,3 millj­ónir íslenskra króna, eða 28.799 evrur. Þá greiddi RÚV lista­mönn­unum sex millj­ónir króna til að und­ir­búa atriðið.

Upptöku- og fram­leiðsluteymið StopWaitGo stendur fyrir fram­lagi Íslend­inga í ár. Lag þeirra Pálma Ragnars og Ásgeirs Orra Ásgeirs­sona og Sæþórs Krist­jáns­sonar, Unbroken, með söng­kon­unni Maríu Ólafs­dóttur í far­ar­broddi, hafði betur í und­ankeppn­inni í Háskóla­bíó í vetur gegn hinu fram­lagi StopWaitGo, sem Friðrik Dór Jónsson flutti.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps­ins, sagði í tölu­póst­sam­skiptum við Kjarnann að gert sé ráð fyrir að upp­æðin sem RÚV leggur til við und­ir­bún­ing atrið­is­ins fari í að full­vinna lagið og atriðið og í að greiða tólf manns laun.

Hópinn sem keppir í Vín skipa auk Maríu Ólafs­dóttur söng­konu, Íris Hólm Jóns­dóttir, Alma Rut Krist­jáns­dóttir, Friðrik Dór Jónsson og Hera Björk Þór­halls­dóttir í bak­röddum, Pálmi Ragnar, Ásgeir Orri og Sæþór sem laga­höf­undar, Jónatan Garð­ar­son sem far­ar­stjóri, Valgeir Magn­ús­son sem fjöl­miðla­full­trúi, Sunna Dögg Ásgeirs­dóttir sem bún­inga­hönn­uður og Hjördís Ásta Guð­munds­dóttir sem förð­un­ar­fræð­ingur. Ásgeir Orri mun jafn­framt syngja bak­raddir.

Auk þess eigi upp­hæðin að duga fyrir öllu sem teng­ist atrið­inu, það er bún­ingum, æfingum hér á landi, gerð kynn­ing­ar­efnis og þess háttar. Gerð tón­list­ar­mynd­bands við lagið sem keppir fyrir Íslands hönd er ekki fjár­mögnuð af RÚV heldur af þátt­tak­endum sjálfum. Iris Films fram­leiddi mynd­bandið við lag StopWaitGo.

Ekki liggur fyrir heild­ar­kostn­aður við þát­töku Íslands í Eurovi­son. Skarp­héð­inn Guð­munds­son, sagði kostn­að­inn hafa staðið í stað und­an­farin ár í um 30 millj­ónum króna, en sú tala velti aðal­lega á hvar í heim­inum keppnin er haldin hverju sinni. Kostn­aður stefni í að vera í með­al­lagi í ár, „þar sem keppnin verður haldin í Vín og gerum við ráð fyrir að sá ferða­kostn­aður rúmist innan áætl­ana okkar,“ sagði Skarp­héð­inn í tölvu­pósti til Kjarnans.

Fyrra und­an­kvöld Eurovision er á morgun, þriðju­dag. Íslenski hóp­ur­inn flytur svo fram­lag Íslands á seinna und­an­kvöld­inu á fimmtu­dag­inn. Þá ræðst það hvort Ísland fái að flytja lagið í aðal­keppn­inni á laug­ar­dags­kvöldið.

Myndbandið við framlag Ísland í Eurovision


https://youtu.be/sov_pE1cdFY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár