Æ fleiri vilja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu

Fleiri Bretar styðja aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Brexit en áður.

Brexit hefur sett bresk stjórnmál uppnám. Bretland mun að óbreyttu ekki vera aðili að ESB í mars 2019.
Brexit hefur sett bresk stjórn­mál upp­nám. Bretland mun að óbreyttu ekki vera aðili að ESB í mars 2019. Mynd: EPA

Stuðn­ingur Breta við aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu eykst og er hefur nú aldrei verið meiri síðan breska þjóðin ákvað að ganga úr ESB í kosn­ingum í fyrra.

Frá þessu er greint á vef Business Insider.

41 pró­sent svar­enda í könnun Opinium í Bret­landi sögð­ust vilja að önnur atkvæða­greiðsla færi fram. Enn eru þó fleiri sem vilja ekki aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, eða 48 pró­sent svar­enda.

Hlut­föllin hafa hins vegar breyst nokkuð á síð­ustu mán­uðum. Um miðjan des­em­ber í fyrra voru aðeins 33 pró­sent svar­enda á því að ný þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla ætti að fara fram. Þá sögð­ust 52 pró­sent ekki vilja taka afstöðu til ESB-aðildar aftur. Munurinn hefur þess vegna minnkað úr 19 pró­sentu­stigum í 7 pró­sentu­stig.

Í þing­kosn­ing­unum í Bret­landi í síð­asta mán­uði fengu þeir flokkar sem styðja Brexit meira en 80 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum tap­aði Íhalds­flokk­ur­inn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Theresu May, meiri­hluta á þing­inu. May er enn for­sæt­is­ráð­herra en stýrir minni­hluta­stjórn með stuðn­ingi hins norð­ur­írska sam­bands­flokks.

[adspot]

Þessi aukni stuðn­ingur við nýja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu skýrist að mestu vegna auk­ins stuðn­ings þeirra sem kusu með áfram­hald­andi aðild í atkvæða­greiðsl­unni í fyrra. Tæpur helm­ingur Breta kaus með áfram­hald­andi aðild. 69 pró­sent þeirra vilja nú að önnur atkvæða­greiðsla fari fram, sam­an­borið við 11 pró­sent þeirra sem kusu með Brexit.

Fleiri hneigjast að áframhaldandi aðild

Þegar skoð­anir svar­enda voru kann­aðar í könnun Opinium kom í ljós að fleiri hafa sterk­ari skoðun um að Bretland eigi að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu en þeir sem vilja ganga út.

Sam­an­lagt sögð­ust fleiri vera á þeirri skoðun að Bretland ætti að vera áfram í ESB, eða 46 pró­sent svar­enda. 41 pró­sent svar­enda sögð­ust vera þeirrar skoð­unar að Bretland ætti að ganga út. Átta pró­sent sögð­ust ekki hafa skoðun á þessu og sex pró­sent sögð­ust ekki geta svarað spurn­ing­unni.

Spurt var hvaða full­yrð­ingar lýstu skoð­unum svar­enda á Brexit.

  1. Ég hef skýra skoðun á því að Bretland á að vera áfram í ESB – 34%
  2. Mér finnst að Bretland ætti að vera áfram í ESB en hef ekki sterka skoðun á því – 12%
  3. Ég hef ekki skoðun á því hvort Bretland sé áfram í ESB eða gangi út – 8%
  4. Mér finnst að Bretland eigi að ganga úr ESB en hef ekki sterka skoðun á því – 8%
  5. Ég hef skýra skoðun á því að Bretland á að ganga úr ESB – 33%
  6. Ég veit það ekki – 6%

Þrátt fyrir þessar nið­ur­stöður er nokkuð víst að Brexit mun verða, enda eru við­ræður Breta og full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins þegar hafnar. Theresa May hefur virkjað 5. grein Lisabon-sátt­mál­ans og klukkan tifar. Bretland verður að óbreyttu ekki lengur aðili að ESB í mars 2019.

Und­an­farið hafa hins vegar fleiri sterkar raddir heyrst sem tala um að hægt sé að afstýra Brexit og hætta við útgöngu. Tony Blair, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Verka­manna­flokks­ins, er einn þeirra. Hann er þeirrar skoð­unar (sem hann viðrar nú ítrekað) að Bretland megi ekki ganga út.

„Ég tel það vera mögu­legt núna að Brexit verði ekki. Ég tel það algjör­lega nauð­syn­legt að það ger­ist ekki vegna þess að á hverjum degi ber­ast okkur nýjar vís­bend­ingar um að þetta sé að skaða efna­hag­inn okkar... og stjórn­málin,“ sagði Blair í sam­tali við Sky News.

David Davis, Brex­it­ráð­herra í Bret­landi, hélt til Brussel í dag til þess að halda útgöngu­við­ræð­unum gang­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár