Ivanka Trump verður nágranni Geirs Haarde

Verðandi for­seta­dóttirin Ivanka Trump er sögð vera búin að festa sér hús í Washington, gegnt íslenska sendi­ráðs­bú­staðnum.

Ivanka Trump, dóttir verð­andi Banda­ríkja­for­set­ans Donald Trump, er verð­andi nágranni íslenska sendi­herr­ans í Washington, Geirs Haarde sam­kvæmt banda­rískum fjöl­miðlum.

Trump og eig­in­maður hennar, Jared Kushner, eru að flytja að 2449 Tracy Place, í Kalorama-hverf­inu í Washington, sam­kvæmt fjöl­mörgum heim­ild­ar­mönnum fjöl­mið­ils­ins Washingtonian. Húsið er stein­snar frá íslenska sendi­ráðs­bú­staðnum sem stendur við 2443 Kalorama Road.

Áður hefur verið greint frá því að Barack Obama, frá­far­andi Banda­ríkja­for­seti, og fjöl­skylda hans muni setj­ast að í hverf­inu þegar þau flytja úr Hvíta hús­inu. Þau munu flytja inn í hús við Belmont Road. Sjá má á kort­inu hér að neðan hversu nálægt bæði hús Trump og Obama eru sendi­ráðs­bú­stað Íslands, sem Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórð­ar­dóttir búa í. 

Kalorama-hverfið er eitt dýrasta hverfið í Washington, og húsið sem Trump mun flytja inn í var keypt fyrir 5,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 628 millj­ónir íslenskra króna, í des­em­ber síð­ast­liðnum. Ekki liggur fyrir hvort hjónin keyptu húsið sjálf eða hyggj­ast leigja það. Það er með sex svefn­her­bergjum, nokkrum færri en íslenski sendi­ráðs­bú­stað­ur­inn, sem er með tíu svefn­her­bergjum og 6,5 bað­her­bergjum. Eftir hrun var reynt að selja sendi­herra­bú­stað­inn í Washington, ásamt sendi­ráðs­bú­stöðum í New York, London, Kaup­manna­höfn og Osló, en ekki tókst að selja húsið á hag­stæðu verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár