Tæplega 15 milljarðar af aflandskrónum flæddu út

Þorri þeirra aflandskróna sem urðu frjálsar til ráð­stöf­unar með laga­breyt­ingu í byrjun mars fóru ekki út úr íslensku efna­hags­kerfi. Eigendur 83 pró­sent þeirra króna sem leystar voru úr höftum völdu að halda þeim í fjár­fest­ingum á Íslandi.

Þingmenn Miðflokksins beittu málþófi gegn frumvarpi um að losa aflandskrónurnar úr höftum í febrúar.
Þingmenn Mið­flokks­ins beittu mál­þófi gegn frum­varpi um að losa aflandskrón­urnar úr höftum í febr­úar. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Alls lækk­aði heild­ar­um­fang aflandskrónu­eigna úr 83,2 millj­örðum króna hinn 4. mars 2019 í 68,5 millj­arða króna í lok dags 23. maí síð­ast­lið­ins. Umfangið lækk­aði því um 14,7 millj­arða króna á tæpum þremur mán­uðum. Því voru tæp­lega 17 pró­sent aflandskróna færðar út úr íslensku hag­kerfi eftir að lög voru sam­þykkt sem gerðu það að verkum að þær væru lausar. Eigendur meg­in­þorra krón­anna völdu að fjár­festa áfram á Íslandi. Þær fjár­fest­ingar eru í inn­lánum og inn­stæðu­bréfum Seðla­banka Íslands, rík­is­skulda­bréfum, öðrum verð­bréfum eða hlut­deild­ar­skír­teinum í fjár­fest­ing­ar­sjóðum.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið. Svarið byggir á upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands.

Seðlabankinn lagði áherslu á að frumvarp yrði samþykkt

Í lok febr­úar stóð til að afgreiða frum­varp sem átti að heim­ila Seðla­banka Íslands að beita þrenns konar heim­ildum við losun aflandskrónu­eigna og fól auk þess í sér breyt­ingar á bráða­birgða­á­kvæði laga um gjald­eyr­is­mál sem varð­aði reglur um bind­inu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyris.

[adspot]Seðla­banki Íslands skil­aði efna­hags- og við­skipta­nefnd umsögn um málið seint í þeim mán­uði þar sem meðal ann­ars kom fram að mik­il­vægt yrði að frum­varpið yrði að lögum fyrir 26. febr­úar.

Ástæðan væri sú að þá væri gjald­dagi til­tek­ins flokks rík­is­bréfa. Ef frum­varpið yrði ekki afgreitt fyrir þann tíma myndi umfang aflandskrónu­eigna í lausu fé aukast um næstum 70 pró­sent eða um 25 millj­arða króna.

Í umsögn Seðla­banka Íslands sagði enn fremur: „Við það eykst hætta á að stórir aflandskrónu­eig­endur, sem átt hafa sín bréf í sam­felldu eign­ar­haldi frá því fyrir höft og taldir hafa verið lík­legir til að end­ur­fjár­festa í íslenskum skulda­bréfum þegar þeirra bréf koma á gjald­daga þann 26. febr­úar muni í stað þess leita út þegar þeir losna af bundnum reikn­ingum. Það mun hafa tvenns konar áhrif. Í fyrsta lagi mun Seðla­bank­inn þurfa að eyða mun meiri forða til að koma í veg fyrir geng­is­fall í tengslum við losun aflandskróna. Í öðru lagi mun draga meira úr fram­boði erlends fjár á inn­lendum skulda­bréfa­mark­aði en reiknað var með þegar frum­varpið var samið. Mark­aðs­að­ilar hafa kvartað undan skorti á slíku fram­boði í tengslum við bind­ingu fjár­magns­streymis inn á skulda­bréfa­markað.“

Málþóf í febrúar

Mið­flokk­ur­inn lagð­ist í mál­þóf á Alþingi gegn því að frum­varpið yrði sam­þykkt og tafði með því afgreiðslu þess. Þingmenn flokks­ins héldu því fram að með frum­varp­inu væri ríkið að gefa eftir tugi millj­arða króna og að skapa hættu­legt for­dæmi. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, sagði að sú upp­hæð sem hægt væri að sækja til eig­enda þess­ara eigna gæti hæg­lega numið tugum millj­arða króna.

Málþófið varð til þess að frum­varpið var ekki sam­þykkt fyrr en 28. febr­úar og lögin tóku ekki gildi fyrr en 5. mars.

[adspot]Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, sagði í atkvæða­greiðslu um frum­varpið að Mið­flokk­inn hefði staðið fyrir inni­halds­lausu þvaðri og sögu­fölsun. Ekkert sann­leiks­korn væri að finna í full­yrð­ingum þeirra.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, tók einnig til máls og sagði að hann undrað­ist að ekki væri bros á öllum and­litum til að fagna fyr­ir­hug­aðri sam­þykkt. Það væri stór­kost­legt að Ísland væri komið í slíka stöðu og allar rík­is­stjórnir frá árinu 2008, frá tíma neyð­ar­lag­anna, gætu unað vel við sinn hlut.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði í við­tali við sjón­varps­þátt­inn 21 á Hring­braut í byrjun mars síð­ast­lið­ins að útflæð­is­á­hyggj­urnar hefðu ekki raun­gerst. „Okkar von er sú að þetta hafi verið nægj­an­lega tím­an­lega til að hún muni ekki raun­ger­ast. Auð­vitað var þarna einn stór aðili, sem vill bara gjarnan vera hér áfram og er ekki vog­un­ar­sjóður á neinn hátt, meira svona gam­al­dags fjár­fest­ing­ar­sjóður og frekar hæg­fara í öllu og veltir öllu nákvæm­lega fyrir sér. Hann er núna ennþá að skoða þessa stöðu og það er vel opið að hann fari ekki út.“

Samkvæmt svörum fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar hafa eig­endur meg­in­þorra aflandskrón­anna sem gefnar voru frjálsar í mars ákveðið að halda þeim á Íslandi. Rúmlega 82 pró­sent þeirra eru hér enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár