Engin áform um að láta ÁTVR aðgreina tóbak og áfengi frekar í reikningum sínum

Fjár­mála­ráðu­neytið hefur engin áform um að skylda ÁTVR til þess að breyta fram­lagn­ingu árs­reikn­inga sinna, en skoðar þó hvernig mætti auka gagn­sæi í rekstri stofn­un­ar­innar, sem sögð hefur verið nið­ur­greiða áfeng­is­sölu með tóbaks­sölu.

Vínbúð ÁTVR í Borgartúni.
Vínbúð ÁTVR í Borg­ar­túni. Mynd: Anton Brink

Engin áform eru uppi um það af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að skylda ÁTVR til að leggja fram árs­reikn­inga sína með öðrum hætti en nú er gert. Ráðu­neytið skoðar þó hvort hægt væri að auka gagn­sæi í rekstri ÁTVR, meðal ann­ars með því að til­greina sér­stak­lega afkomu hverrar og einnar versl­unar sem ÁTVR rekur.

[links]Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þorstein Víglunds­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Við­reisnar, sem birt var á vef Alþingis í gær, en Þor­steinn kall­aði eftir því að fá upp­lýs­ingar um afkomu ÁTVR af sölu áfengis ann­ars vegar og tóbaks hins vegar.

Þau svör fékk þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi þó ekki, en í svari fjár­mála­ráð­herra segir það sem oft áður hefur komið fram, að ÁTVR greinir ekki í sundur rekstr­ar­kostnað eftir áfengi ann­ars vegar og tóbaki hins vegar.

„Árið 1961 voru Áfeng­is­verslun rík­is­ins og Tóbaks­verslun rík­is­ins sam­ein­aðar í eina stofnun Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins, ÁTVR. Nú er versl­unin rekin sem ein heild og rekstr­ar­kostn­aði ekki haldið aðskildum enda ekki gerð krafa um slíkt, hvorki í lögum né af hálfu eig­anda,“ segir í svari Bjarna.

Árum saman hafa verið færð rök fyrir því að svo virð­ist sem ÁTVR sé að nið­ur­greiða kostnað sinn af áfeng­is­sölu með hagn­aði sem til fellur vegna tóbaks­sölu. ÁTVR hefur hingað ekki sagst geta upp­lýst um hver beinn kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins af tóbaks­söl­unni er, einmitt sökum þess að rekstr­ar­kostn­að­inum sé ekki haldið aðskildum, en það gæti styst í að þær upp­lýs­ingar liggi fyrir.

[links]

Fyrr í sumar greindi Frétta­blaðið nefni­lega frá því að Rík­is­end­ur­skoðun hefði óskað eftir að fá rekstr­ar­kostnað stofn­un­ar­innar vegna sölu á áfengi ann­ars vegar og tóbaki hins vegar verði sund­ur­lið­aður.

Reikningsdæmi frá 2018

Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2018 kom fram að alls hefðu sjö manns verið við störf í nef­tó­baks­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins og tólf við heild­sölu og dreif­ingu tóbaks. Alls var kostn­aður ÁTVR vegna launa og launa­tengdra gjalda á árinu 2018 um 2,8 millj­arðar króna og árs­verk voru 354. Það þýðir að árlegur kostn­aður við hvert árs­verk var um 7,9 millj­ónir króna. Þau 19 árs­verk sem eru í tóbaks­hluta fram­leiðsl­unnar ættu því að kosta um 150 millj­ónir króna á ári.

Það myndi þýða að um 1,5 millj­arða króna hagn­aður stæði eftir af tóbaks­söl­unni eftir að búið væri að gera ráð fyrir tóbaks­gjaldi og launa­kostn­aði þeirra sem störf­uðu beint við tóbaks­dreif­ingu, eða -fram­leiðslu. Það er upp­hæð sem er tæp­lega 400 millj­ónum krónum yfir heild­ar­hagn­aði ÁTVR á árinu 2018.

Þó verður að gera ráð fyrir því tóbaks­salan sé ábyrgð fyrir ein­hverjum við­bót­ar­kostn­aði vegna skrif­stofu­halds og ann­arra sam­eig­in­legra kostn­að­ar­þátta í rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið hefur hins vegar ekki, líkt og áður segir, verið til­búið að sund­ur­liða þann kostn­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár