Loftslagsbreytingar ekki lengur áhyggjur „hippa í sandölum“

Myndband frá Yale-háskóla sýnir fram á hvernig þurrkar og aðrar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga kunna að eiga þátt í ófriði fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs.

Lönd við strendur Miðjarðarhafsins hafa glímt við mikla þurrka undanfarin ár. Þurrkarnir eru hvað mestir fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Lönd við strendur Mið­jarð­ar­hafs­ins hafa glímt við mikla þurrka und­an­farin ár. Þurrk­arnir eru hvað mestir fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs­ins. Mynd: Birgir Þór / Gögn: Yale Climate Connections


Nokkrir alþjóða­póli­tískir heitir reitir, ef svo má að orði kom­ast, standa frammi fyrir auk­inni spennu sem er bein afleið­ing lofts­lags­breyt­inga í heim­inum. Þetta er umfjöll­un­ar­efni áhrifa­mik­ils mynd­bands Climate Connections, stof­unar á vegum Yale-háskóla í Connecticut í Banda­ríkj­unum. Stofn­unin er helguð vísanda­legri nálgun í tenglsum við lofts­lags­breyt­ingar og fram­leiðir mán­að­ar­lega mynd­bönd í þeim til­gangi.

Vís­inda­menn og hern­arð­ar­sér­fræð­ingar hafa bent á vax­andi áhyggjur af áhrifum lofts­lags­breyt­inga á stríðs­hrjáð svæði. Haft er eftir Kerry Emanuel, vís­inda­manni hjá MIT-háskól­anum í Banda­ríkj­unum, að hér sé ekki verið að ræða um áhyggjur „hippa í sand­ölum“ heldur er þetta „virðu­legt fólk“ sem hefur áhyggjur af „gríð­ar­legum alþjóða­póli­tískum afleið­ingum um allan heim“.

Í mynd­band­inu má sjá frétta­skýranda CNN-sjón­varp­stöðv­ar­innar, Christiane Amanpour, fjalla um lofts­lags­breyt­ingar og þverr­andi vatns­lindir sem eina af hugs­an­legum orsökum stríðs­ins í Sýrlandi. Sýrland er á þeim stað á jörð­inni hvar þurrkar hafa verið hvað mestir. Í þætti Amanpour á CNN segir að á árunum 2006 til 2010 hafi um 60 pró­sent sýr­lensks lands orðið gríð­ar­legum þurrkum að bráð og drepið 80 pró­sent kvik­fén­aðar í sumum hér­uðum. Það hefur leitt til þess að þrír fjórðu hlutar bænda hafi misst vinn­una og fært lífs­við­ur­væri 1,5 milljón manna úr skorðum.

„Enginn vill segja að hér sé um bein tengsl að ræða, en þurrk­arnir hafa tvístrað hópum í dreifðum byggðum og rekið til yfir­fullra borga og þannig lagt gríð­ar­legar efna­hags­legar og félags­legar birgðar á fyr­ir­fram brotið sam­fé­lag,“ segir Amanpour.

Myndband Yale Climate Connections má sjá hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár