Kínverjar með kaupæði

Kín­verjar kaupa nú og byggja stór­skipa­hafnir um allan heim undir for­merkjum Beltis og brautar. Að baki eru þó áform um að tryggja stra­tegíska stöðu Kína og aðferð­irnar eru ekki alltaf til fyr­ir­myndar.

Uppbygging stórskipahafnarinnar í Colombo Port City.
Upp­bygg­ing stór­skipa­hafn­ar­innar í Colombo Port City. Mynd: EPA

Þing Sri Lanka hefur sam­þykkt lög um sér­stakt efna­hags­svæði sem nú rís við höf­uð­borg­ina og er kallað Colombo Port City. Þar verða, auk stór­skipa­hafnar, m.a. íbúðir, hótel, íþrótta- og golf­vellir, skemmti­garðar og Formúlu 1 kappakst­urs­braut. Fram­kvæmdin er sam­kvæmt samn­ingi sem stjórn­völd á Sri Lanka gerðu við kín­verskt fyr­ir­tæki sem leggur til fjár­magn og fær í stað­inn rétt til að nýta sér til­tekið land­svæði.

Eins og þetta sé ekki nóg þá hafa Kín­verjar einnig staðið að bygg­ingu stór­skipa­hafnar við Haban­tota á Sri Lanka. Verkefni sem frá byrjun hefur virst harla til­gangs­laust enda kom á dag­inn að lítið hefur verið að gera í höfn­inni því afkasta­mikil höfn er þegar til staðar við höf­uð­borg­ina. Auk þess hefur nýbyggður alþjóða­flug­völlur staðið ónot­aður og hrað­brautir sem áttu að tengja svæðið verið not­aðar af bændum til að þurrka afurðir sínar.

Þessar fram­kvæmdir Kínverja hafa verið ákaf­lega umdeildar og margir bent á að þær vegi að full­veldi Sri Lanka. Þeir hafi nýtt sér bága stöðu lands­ins, greitt háar fjár­hæðir í kosn­inga­sjóði spiltra stjórn­mála­manna – og með því að lána fyrir fjár­fest­ingum sem ljóst hefur verið að aldrei muni borga sig. Skuldir Sri Lanka við Kína nema u.þ.b. heilum fjár­lögum og í krafti þessa muni Kín­verjar geta farið sínu fram, þrátt fyrir ákvæði sem tak­marka hern­að­ar­legra umferð um hafn­ar­svæðin.

Belti og braut

Á yfir­borð­inu eru þessar fram­kvæmdir hluti af „Belti og braut“ eins og flest það sem Kín­verjar fram­kvæma þessi miss­erin, tví­skiptri áætlun sem tekur til inn­viða­upp­bygg­ingar um heim allan en öllum ríkjum hefur verið boðin þátt­taka. Kína er mjög háð útflutn­ingi en jafn­framt inn­flutn­ingi á olíu og gasi frá Mið-Aust­ur­löndum. Þeir hafa því verið að leggja vegi og járn­brautir og byggja hafn­ar­að­stöðu til að bæta teng­ingar milli Kína, Mið-Asíu og Mið-Aust­ur­landa, á því sem kallað hefur verið „Nýja silki­leiðin“.

Nú þegar hafa þeir tryggt sér yfir­ráð yfir stór­skipa­höfnum alla leið inn á Mið­jarð­ar­haf. Má nefna höfn­ina í Singa­pore sem þeir keyptu nýverið og áður­nefndar hafnir á Sri Lanka, auk mik­illa fjár­fest­inga í höfnum í Jemen, Djíbútí og Súdan. Kín­verjar hafa keypt meiri­hluta í höfn­inni við Piraeus, stærstu höfn Grikk­lands, og lýst því yfir að fjár­fest verði fyrir um 600 millj­ónir evra í upp­bygg­ingu hafn­ar­innar sem þá yrði stærsta höfn Evrópu.

Aukin umsvif Kína eru gjarnan í nafni nokk­urra risa­fyr­ir­tækja sem eru að mestu í eigu kín­verska rík­is­ins, jafn­vel kín­verska hers­ins. Þau er flest undir hatti hinnar gríð­ar­stóru COSCO Shipping-sam­steypu og CCCC sem sinnir hönnun og bygg­ingu inn­viða; sam­skipta­kerfa, hafna, járn­brauta, vega, brúa og olíu­vinnslu­stöðva.

Kínverjar hugsa fram í tímann – mögulegar norðurslóðasiglingar

En Kín­verjar eru ekki ein­ungis að tryggja greiðar sigl­ingar og hafnir í sínu næsta nágrenni. Þeir hafa á und­an­förnum árum verið að kaupa hluti í stór­skipa­höfnum um allan heim og eiga nú í gegnum nefnd fyr­ir­tæki ýmist ráð­andi hlut eða hluta í fjölda risa­hafna. Hvort sem það er í Asíu, Ameríku, Evrópu eða Eyjaálfu.

Gott dæmi er Panama þar sem Kín­verjar hafa fjár­fest umtals­vert, m.a. með fram Panama­skurð­inum. Miðað við sögu og tengsl Banda­ríkja­manna við Panama­skurð­inn gæti jafn­vel slegið í brýnu. Kína hefur jafn­framt náð tals­verðri fót­festu meðal ann­arra ríkja rómönsku Ameríku en 19 ríki á svæð­inu hafa skrifað undir samn­inga um Belti og braut.

Kín­verjar horfa langt fram í tím­ann og hafa þeir m.a. reynt að koma í kring upp­bygg­ingu stór­skipa­hafnar í Nova Scotia, til að tryggja aðstöðu vegna mögu­legra íshafs­sigl­inga um Norð­vest­ur­leið­ina. Þeir hafa jafn­framt sýnt áhuga á Íslandi og und­ir­bún­ingi bygg­ingar risa­hafnar í Finna­firði og COSCO hefur einnig komið að áformum um höfn við Kirkenes í Noregi. Norsk stjórn­völd hafa lýst yfir and­stöðu við áformin en þeim verið haldið áfram engu að síður.

Er eitthvað að því að Kína stundi alþjóðaviðskipti?

En spyrja má hvort eitt­hvað þurfi að vera athuga­vert við að kín­versk fyr­ir­tækin kaupi önnur fyr­ir­tæki eins og tíðkast á alþjóð­legum mark­aði. Þessi umsvif Kínverja hleypa vissu­lega lífi í bág­bor­inn efna­hag ríkja víða um heim og geta rennt stoðum undir efna­hags­lega vel­sæld.

Að sama skapi hefur verið bent á að það sé einmitt frjálst og óhindrað flæði á vörum og þjón­ustu um heim­inn sem hafi átt sinn þátt í að halda frið­inn milli ríkja. Að ríkjum sé nú sem mest í mun að óheft við­skipti fái að blómstra, að hægt sé að koma vörum á markað og fólk fái þær vörur og þjón­ustu sem það vantar.

Í því sam­hengi má nefna að efna­hags­leg útþensla Kínverja kann einnig að tengja þá meira við Vest­ur­lönd og umheim­inn almennt og auka sam­skipti, sem hefði jákvæðar afleið­ingar. Slíkt myndi færa Kína og Vest­ur­lönd nær hvoru öðru, félags- og menn­ing­ar­lega, öllum til hags­bóta.

Varhugaverð þróun þegar veikburða ríki eru annars vegar

Eða hvað? Þó Belti og braut-verk­efnið og þessi gríð­ar­legu umsvif Kínverja kunni að líta vel út á yfir­borð­inu eru þetta ekk­ert venju­leg við­skipti. Þau eru aug­ljós­lega ekki ein­ungis til að tryggja flutn­inga svo koma megi vörum og orku til og frá land­inu. Með þeim er jafn­framt verið að tryggja Kína fót­festu og ítök um heim allan.

Þó það eigi kannski ekki við um öfl­uga aðila eins og Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið þá nýta Kín­verjar sér gjarnan ástand í ríkjum þar sem efna­hags­á­stand er bág­borið. Stjórn­völd slíkra ríkja freist­ast til að taka við við fjár­magni til fjár­fest­inga sem síðan reyn­ist hafa ýmsa van­kanta – og getur leitt þau í skulda­gildru. Fram­kvæmdir eru oft­ast á hendi kín­verskra fyr­ir­tækja sem koma með sína starfs­menn þannig að inn­lendur vinnu­mark­aður nýtur tak­mark­aðs ávinn­ings.

Þetta á við um m.a. Sri Lanka, Panama, og nokkur ríki Afríku. Atvinnu­á­stand og efna­hagur ríkj­anna kann að batna að ein­hverju leyti en fórn­ar­kostn­að­ur­inn er oft mik­ill. Fjár­streymi inn í lönd sem eiga í vök að verj­ast efna­hags­lega og þar sem lýð­ræði á undir högg að sækja getur því verið var­huga­vert. Slíkt kallar gjarnan á spill­ingu og leiðir til ójafn­vægis og klofn­ings sam­fé­lag­anna.

Kína er ein­ræð­is­ríki sem virðir ekki lýð­ræði og virð­ist ekki alltaf ganga út frá þeirri heims­mynd að við­skipti geti gengið án þess að neyta afls­munar. Upp­bygg­ing þar sem gríð­ar­leg völd og áhrif safn­ast á hendur eins ríkis eins og Kína, hefur nei­kvæð áhrif þegar kemur að valda­jafn­vægi í heim­inum. Slíkir yfir­burðir eru öðrum ríkjum óhag­felldir, sér í lagi smá­ríkjum, hvort sem það er Sri Lanka, Panama, nú eða Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár