„Hann er ekkert sérstaklega flókinn maður“

Mér fannst ég vera að vinna með leik­stjóra sem er að slá einhvern ferskan tón, segir Ingvar E. Sigurðsson um samstarfið við Hlyn Pálmason, sem leik­stýrir Hvítum, hvítum degi. Þeir ræddu við Stundina um samstarfið, kvik­mynda­gerðina og mannlegt eðli.

Það er fallegur sumar­dagur á kvikmynda­hátíðinni í Karlovy Vary þegar ég hitti Hlyn Pálmason og Ingvar E. Sigurðsson, leik­stjóra og aðal­leikara Hvíts, hvíts dags. Róleg píanó­tónlist er spiluð undir á hótelinu þar sem við hittumst.

Ingvar: „Ég veit ekki hversu skapandi maður getur verið með þessari tónlist.“

Hlynur: „Maður verður bara sorg­mæddur, fer að gráta.“

En blessunar­lega halda þeir aftur af tárunum og eru nógu skapandi til þess að tala í heilan klukku­tíma um myndina sem þeir voru að klára, næstu mynd, barna­stjörnur, dans, fótbolta, kvikmynda­hátíðir og skortinn á kvikmynda­húsum á lands­byggðinni. Og þeir félagar voru ekki að vinna saman í fyrsta skipti.

Ingvar: „Við unnum saman þegar hann var að útskrifast úr skólanum, Den danske filmskole. Það var nátt­úrlega geggjað. Hann situr auðvitað við hliðina á mér núna, en í alvörunni: það var stórkostlegt. Ég fann það bara strax í skólanum, í myndinni, að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár