Tuttugu og eitt COVID-19 smit greindust hér á landi í gær – 16 innanlands. Þar af voru 10 einstaklingar utan sóttkvíar. Þetta er haft eftir Má Kristjánssyni, yfirlækni á smitsjúkdómadeild Landspítala, í frétt RÚV.
[links]Almannavarnir boðuðu í morgun að haldinn yrði upplýsingafundur á vegum almannavarna og Embættis landlæknis í dag kl. 11 þar sem farið yrði yfir þá stöðu sem komin er upp.
Það fundarboð hefur verið afturkallað og í nýrri tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að upplýsinga sé að vænta síðar í dag.
Nokkur smit hafa komið upp hjá nemendum í Laugarnesskóla, en einn kennari við skólann greindist með COVID-19 um liðna helgi. Af þessum sökum eru allir nemendur skólans og Laugalækjarskóla sömuleiðis í sóttkví eða úrvinnslusóttkví á meðan smitrakning stendur yfir og frístundastarf barna í Laugardal liggur niðri að nær öllu leyti.
[adspot]
Leiðrétt: Fréttin hefur verið uppfærð og fyrirsögnin sömuleiðis. Rangt var farið með fjölda smita innanlands, þau eru 16 að sögn Más en ekki 21.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir