Þjóðgarðsvörður: „Blessuð sé minning Skaftafellsjökuls“

Myndir sem teknar hafa verið árlega frá 2012 sýna hvernig Skafta­fells­jök­ull hefur bráðnað.

Myndir sem Guð­mundur Ögmunds­son, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, hefur tekið árlega frá 2012 sýna hvernig Skafta­fells­jök­ull hefur hopað með árunum.

„Ef Skafta­fells­jök­ull væri sjón­varps­þátta­röð þá væri hún senni­lega sögð óspenn­andi, fyr­ir­sjá­an­leg og með slæman endi,“ skrifar Guð­mundur við mynd­irnar sem hann birti á Facebook síðu sinni. „Í raun hefði ég getað sleppt því að taka mynd í ár því jök­ull­inn var strax í fyrra horf­inn frá því sjón­ar­horni sem ég hef myndað hann síð­ustu átta ár. Blessuð sé minn­ing Skafta­fells­jök­uls…“

Hlýnun jarðar hefur haft mikil áhrif á jökla í heim­inum sem flestir hafa þynnst og hopað á und­an­förnum ára­tugum. Græn­lands­jök­ull hefur bráðnað mun hraðar en áður var talið og ísinn á Suð­ur­skauts­land­inu hverfur á met­hraða. Bráðnun jökla hefur áhrif til hækk­unar yfir­borðs sjávar, sem veldur flóðum og skemmir vist­kerfi víða um heim.

Sjá færsl­una á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár