Mynd: Wiki Commons

Er frjálslyndi tóm tugga?

Auður Jóns­dóttir og Bára Huld Beck leit­uðu til þriggja sér­fræð­inga sem hafa inn­sýn í hug­takið, þeirra Jóns Orms Hall­dórs­sonar, Ásgeirs Frið­geirs­sonar og Eiríks Bergmann.

Þegar við veltum hug­tak­inu frjáls­lyndi fyrir okkur hugs­uðum við fyrst um frelsi en fannst eins og við­skeytið lyndur mild­aði það – frjáls í lund. Kannski að hug­takið fangi frels­is­við­horf með mann­legum und­ir­tóni; frelsi með ábyrgð og sið­ferð­is­við­miðum. Það krefst hugs­unar að njóta frelsis og við verðum að ræða raun­veru­lega þýð­ingu frjáls­lyndis – ef lýð­ræðið á að virka sem skyldi. Við spurðum tvo stjórn­mála­fræð­inga út í hug­takið og líka þriðja mann­inn sem skil­greinir sig fyrst og fremst frjáls­lyndan.

Jón Ormur Hall­dórs­son alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur segir að ólík­ustu flokkar í fjöl­mörgum löndum, á ólíkum tímum og við marg­breyti­legar aðstæður, hafi kosið að kenna sig við frjáls­lyndi. Það segi lítið annað um hug­takið en að það hafi víða verið talið lík­legt til vin­sælda að segj­ast frjáls­lyndur.

„Við sjáum þetta líka með hug­tök eins og lýð­ræði og fram­farir sem ein­ræð­is­flokkar og aft­ur­halds­öfl af ýmsu tagi kenna sig gjarnan við. Það sem gerir hug­takið öllu snún­ara í alvar­legri umræðu er að það hefur verið notað í fullri alvöru í stjórn­mála­um­ræðu og eins í fræði­legri grein­ingu um tals­vert ólíkar stefnur og fyr­ir­bæri,“ segir Jón Ormur.

Raunhyggja, þekking og skynsemi sótti að trúarlegum hugmyndum

Samkvæmt honum er upp­runa hug­taks­ins best að rekja til Upp­lýs­ing­ar­innar svo­nefndu sem hafði mikil áhrif í Evrópu á átj­ándu öld og með óbeinni hætti áfram í sam­tím­anum. „Almennt sner­ist Upp­lýs­ingin um þá skoðun að þekk­ing sem aflað var með vís­inda­legum vinnu­brögðum ætti að leysa af hólmi trú­ar­setn­ingar og hug­myndir um yfir­nátt­úru­leg öfl sem drottn­uðu á mið­öldum. Í póli­tík gróf þetta undan valdi trú­ar­stofn­ana og guð­legrar helg­unar á kon­ungs­valdi. Um leið veikti þetta vald yfir­stétta sem höfðu drottnað í skjóli hug­mynda um að valda­kerfi ríkja og þjóð­fé­laga væru guð­leg skikkan. Í sam­fé­lags­málum sótti raun­hyggja, þekk­ing og skyn­semi líka að trú­ar­legum hug­myndum af ýmsu tagi. Almennar nið­ur­stöður af þeim spurn­ingum, sem þetta allt saman vakti, voru aukin trú á nátt­úru­legan rétt manns­ins til frelsis,“ segir hann.

Í beinu fram­haldi hafi spurn­ingin vaknað hvort allir menn hefðu þá ekki jafnan rétt – sem leiddi til þess að kvikn­uðu nýjar hug­myndir um jafn­rétti. „Þær hug­myndir sem þarna komu fram um frelsi og jafn­rétti eru því nátengdar og urðu grunnur að kenn­ingum um alls kyns frelsi og eins um lýð­ræði sem stjórn­ar­form. Hins vegar ríkir ákveðin spennu­af­staða á milli hug­mynda um frelsi ann­ars vegar og jafn­rétti hins vegar sem enn hefur grund­valla­r­á­hrif á stjórn­mál í sam­tím­anum.“

Neikvætt frelsi er ein­fald­lega frelsi frá afskiptum ann­arra. Jákvætt frelsi snýst hins vegar um mögu­leika manna til að njóta raun­veru­legs frekar en bara form­legs frelsis.

Þegar Jón Ormur er spurður út í hversu mikið vægi frjáls­lyndi hafi sem slíkt – og/eða skortur á því – í stjórn­málum nútím­ans, þá svarar hann að hægt sé að nálg­ast þetta með ýmsum hætti og menn líti þetta auð­vitað ólíkum augum. „Það má til dæmis horfa á þetta út frá þess­ari spennu sem ég nefndi á milli frelsis og jafn­réttis í frjáls­lyndri hugsun. Sumir gera grein­ar­mun á jákvæðu og nei­kvæðu frelsi. Þá eiga menn alls ekki við að það nei­kvæða sé vont en hið jákvæða gott. Neikvætt frelsi er ein­fald­lega frelsi frá afskiptum ann­arra. Jákvætt frelsi snýst hins vegar um mögu­leika manna til að njóta raun­veru­legs frekar en bara form­legs frelsis. Þeir mögu­leikar geta bein­línis byggst á afskiptum ann­arra frekar en afskipta­leysi,“ segir hann.

Sem dæmi um það nefnir Jón Ormur skerð­ingu á frelsi manna til að nota sína eigin pen­inga með því að taka af þeim fé með skatt­heimtu en nota síðan þá pen­inga til að fjár­magna heil­brigð­is­kerfi og borga fyrir menntun almenn­ings. Með því geti menn greini­lega aukið jafn­rétti og raun­gert mögu­leika venju­legs fólks til að njóta frelsis því frelsi hins ómennt­aða og heilsu­lausa sé kannski ekki mik­ils virði. Svipað megi segja um bann við eit­ur­lyfjum eða öðru af þeim toga. „Frelsi manna er rýrt með slíku banni en þá má spyrja: Hvert er frelsi fíkils­ins? Í raun­inni hefur stjórn­mála­bar­átta á Vest­ur­löndum að veru­legu leyti staðið um spurn­ingar af þessu tagi, það er um eðli frels­is­ins og hlut­verk sam­fé­lags­ins í að tak­marka eða auka frelsi ein­stak­linga, þótt þetta sé sjaldan orðað með þeim hætti.“

Fólk á að njóta verndar frá alræði

En hver er helsta birt­ing­ar­mynd frjáls­lyndis í átökum stjórn­mála­afla í Evrópu og í Banda­ríkj­unum, sem og í öðrum heims­álfum?

Jón Ormur segir að eitt meg­in­at­riðið varð­andi frjáls­lyndi sé að það leiði til þeirrar nið­ur­stöðu að vald­inu sé dreift sem mest og að fólk eigi að njóta verndar frá alræði ein­hvers konar meiri­hluta sem kunni að mynd­ast í við­kom­andi þjóð­fé­lagi. Það þýði meðal ann­ars að kosn­ingar eigi ekki að vera leikur þar sem sig­ur­veg­ari fái öll völd en þeir sem tapa engin. Meiri­hluta­vilji sé því alls ekki öllu ofar í frjáls­lyndu þjóð­fé­lagi.

Hann bendir á að ein helsta hættan í stjórn­málum sam­tím­ans á Vest­ur­löndum sé að sums staðar hafi mynd­ast stemm­ing gegn þeim vörnum sem frjáls­lyndið myndar gegn ofríki í krafti lýð­hylli. „Nokkuð víða á Vest­ur­löndum og mjög víða utan þeirra hafa fasískar hug­myndir notið auk­innar hylli, hug­myndir um að til sé eitt­hvað sem menn kalla vilja fólks­ins og að engar stofn­anir eigi að varna því að sá vilji fái alltaf ráðið. Þeir sem þannig hugsa vilja rífa niður stofn­anir eða þrengja að þeim og auka völd leið­toga. Þeir sem fara fyrir slíkum hreyf­ingum segj­ast venju­lega túlka vilja fólks­ins og vilja vernda rétt og hags­muni fólks­ins gegn útlendum ógn­unum – og einnig gegn inn­lendum elítum sem ekki séu hluti af fólk­inu og stundum ein­hvers konar hand­bendi útlend­inga og óþjóð­legra afla.“

Hann segir að þessum hreyf­ingum sé líka oft sér­lega upp­sigað við fjöl­miðla og segi að þeir þjóni ekki vilja almenn­ings. Í raun­inni sé oft stutt í svona hug­myndir þegar menn verði þreyttir á valda­kerfum og elítu­hópum sem þeir telji að stjórni þjóð­fé­lag­inu. Hug­myndir um beinna lýð­ræði hljómi þá oft vel og séu án efa oft góðar en þær geti líka verið hættu­legar út frá sjón­ar­hóli frjáls­lyndis. Frjáls­lyndi hafi orðið til í bar­áttu gegn því ein­hver einn æðri sann­leikur sé til og í bar­áttu fyrir jafn­rétti allra manna – hverrar skoð­unar sem þeir kunna að vera.

Í Banda­ríkj­unum sjáum við til dæmis fólk sem berst fyrir algeru frelsi frá afskiptum rík­is­ins af efna­hags­málum og vopna­eign en vill hins vegar að ríkið skipti sér af kyn­lífi fólks og taki leið­sögn frá trú­ar­ritum í ýmsum greinum.

Sumir þeirra sem vilja sem allra mest frjáls­lyndi í efna­hags­málum, til dæmis fylg­is­menn nýfrjáls­hyggju, eru frekar áhuga­lausir um félags­legt frjáls­lyndi eða jafn­vel mjög ófrjáls­lyndir í þeim efnum, að sögn Jóns Orms. „Í Banda­ríkj­unum sjáum við til dæmis fólk sem berst fyrir algeru frelsi frá afskiptum rík­is­ins af efna­hags­málum og vopna­eign en vill hins vegar að ríkið skipti sér af kyn­lífi fólks og taki leið­sögn frá trú­ar­ritum í ýmsum greinum. Um leið eru margir þeirra sem eru frjáls­lynd­astir í þjóð­fé­lags­málum lítið áhuga­fólk um við­skipta­frelsi og finna því jafn­vel margt til for­áttu,“ segir hann.

Af þeim ástæðum sé svo­lítið erfitt að tala um frjáls­lynd­is­hug­sjón sem eitt fyr­ir­bæri. „Það má hins vegar hugsa sér til mik­illar ein­föld­unar að frjáls­lyndið sé á miðju stjórn­mála en að því sé sótt úr tveimur áttum. Langt frá vinstri kom sá skiln­ingur marx­ista að ein­stak­ling­ur­inn og þjóð­fé­lagið eigi að renna saman með ein­hverjum hætti. Langt frá hægri kom svo sú skoðun að þjóðin eða fólkið væri miklu æðri fyr­ir­bæri en ein­stak­lingar.“

Hart sótt að frjálslyndinu

„Fyrir fáum ára­tugum var mest sótt að frjáls­lynd­inu frá vinstri en í sam­tím­anum er örugg­lega sótt meira að því frá hægri,“ segir Jón. „Senni­lega eru þetta við­brögð við heim­s­væð­ing­unni og þeirri kreppu sem skall yfir Vest­ur­lönd fyrir tíu árum. Þá sýnd­ist mörgum víða um Vest­ur­lönd sem að þjóð­fé­lög þeirra væru mjög ber­skjölduð gegn innri og ytri ógnum þar sem rík­is­valdið var orðið áhrifa­m­inna en það hafði verið og hóp­arnir sem stýrðu þessum þjóð­fé­lögum sýnd­ust líka frekar óþjóð­legir og ólík­legir til að skilja almenn­ing.“

Hann segir að þeir sem hafi klúðrað fjár­mála­kerfi heims­ins hafi ekki verið vinstri menn heldur trú­aðir frjáls­hyggju­menn og þess vegna geti virst skrítið að við­brögðin hafi verið hrun á miðju stjórn­mála og til vinstri. „Margir vildu hins vegar end­ur­heimta full­veldi, sjálf­stæði og styrk rík­is­ins í hverju landi fyrir sig. Það var af dálítið flóknum sögu­legum og póli­tískum ástæðum að þeir sem vildu auka styrk – og sjálf­stæði ríkj­anna – fylktu sér frekar um flokka langt til hægri en flokka til vinstri. Það kann hins vegar að breyt­ast og ég held að það muni gera það sums staðar þótt ég sjái ekki mikið um það rætt,“ botnar Jón Ormur og bætir því við að ójöfn­uð­ur­inn innan sam­fé­laga sé ein­fald­lega orð­inn of mik­ill til að hann fái stað­ist og það muni kalla á hreyf­ingu frá vinstri.

„En varð­andi frjáls­lyndið þá er eng­inn vafi á því að hart er nú sótt að þessu akk­eri, þess­ari miðju og þessu sér­kenni sem frjáls­lyndið er í stjórn­málum Vest­ur­landa. Frjáls­lynt fólk ætti hins vegar að líta svo­lítið oftar um öxl og horfa með ánægju og sjálfs­trausti á þá stór­kost­legu sigra sem frjáls­lyndið og hug­myndir þess um frelsi og jafn­rétti allra manna, kynja og kyn­þátta hafa unnið á ótrú­lega skömmum tíma,“ segir hann að lokum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti er af sumum talinn einn af höfuðandstæðingum frjálslyndis í heiminum í dag.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti er af sumum tal­inn einn af höf­uð­and­stæð­ingum frjáls­lyndis í heim­inum í dag.

Ásgeir Frið­geirs­son, fyrrum kenn­ari, blaða­maður, rit­stjóri og vara­þing­maður, hefur starfað und­an­farin sextán ár sem ráð­gjafi alþjóð­legra fjár­mála­fyr­ir­tækja og fjár­festa í sam­skiptum og við­skiptum. Hann telur sig ekki vera sér­fræð­ing í stjórn­málum en hann sé hlynntur frjáls­lyndum skoð­unum. Ásgeir segir að frjáls­lyndi sé í grunn­inn hug­myndin um að mað­ur­inn sé fæddur frjáls. Að ekk­ert í mann­fé­lag­inu rétt­læti eða heim­ili yfir­boð eða vald. „Í sögu­legu ljósi, þegar hug­takið byrj­aði að mót­ast, sner­ust hug­mynd­irnar fyrst og fremst um mót­spyrnu gegn aðli, kon­ungs­veldi og léns­veldi. Og sum­part jafn­vel trú­ar­stofn­unum.“

Hann telur að í sam­tím­anum snú­ist hug­mynd­irnar um frjáls­lyndi frekar um frelsi undan alþjóð­lega auð­magni og rík­is­valdi. Hann segir að í dag séu léns­herrar horfnir en yfir­vald birt­ist í rík­is­valdi og auð­valdi og að frjáls­lynt fólk vilji losna undan oki þess. „Að þegar þú fæð­ist eigi ríkið þig ekki og á sama hátt að ein­stak­ling­ur­inn sé ekki ofur­seldur hinu gríð­ar­lega valdi sem fylgir auð­vald­inu.“ Hann segir að í dag hafi kap­ít­al­ism­inn þró­ast á þann hátt að búið sé að normalísera yfir­vald pen­ing­ana.

Frelsi ekki til án ábyrgðar

Ásgeir bendir aftur á móti á að ekki sé hægt að líta fram­hjá tveimur öðrum hug­tökum í þessu sam­hengi: jafn­rétti og umburð­ar­lyndi. „Hug­myndin um að mað­ur­inn sé fæddur frjáls þýðir að allir séu jafnir. Og ef þú sam­þykkir það verð­urðu líka að við­ur­kenna umburð­ar­lyndi. Þú verður að umbera að fólk nýti sér frelsið í raun, það frelsi sem í boði er. Þegar við síðan tölum um frelsi og jafn­rétti er stutt í bræðra­lagið en þar birt­ist hug­myndin um félags­lega ábyrgð. Því frelsi er ekki til án ábyrgðar. Og ábyrgðin er upp­hafs­stefið í Frjáls­lynda flokknum í Bret­landi sem varð til á nítj­ándu öld,“ útskýrir hann. Það sem kall­ast sós­íal-líber­al­ismi eða félags­legt frjáls­lyndi er hug­myndin um að frjáls maður eigi að gera sam­fé­lag­inu gagn, að sögn Ásgeirs. Um það snú­ist bræðra­lagið.

Hug­myndin um að mað­ur­inn sé fæddur frjáls þýðir að allir séu jafnir. Og ef þú sam­þykkir það verð­urðu líka að við­ur­kenna umburð­ar­lyndi. Þú verður að umbera að fólk nýti sér frelsið í raun, það frelsi sem í boði er.

„Svo er annað, þessi hug­mynda­fræði er and­stæð aðskiln­að­ar­hug­mynd­inni. Sama hvort um er að ræða þjóð, kyn­þætti eða kynin,“ segir hann og bætir við að það sé ekki partur af frjáls­lyndi að setja fólk í hópa. „Á þann hátt finnst mér hug­takið alls ekki falla vel að hinni klass­ísku stéttapóli­tík sem gengur út á að stefna einum hópi á móti öðrum. Þar er hug­mynda­fræðin sú að sam­fé­lag sé sam­sett úr hópum sem tak­ist á um hags­muni og völd. Mér finnst þetta frjáls­lyndi fjarri þeirri sýn á sam­fé­lagið,“ segir hann. Frjáls­lyndur maður geti því bæði verið til vinstri og hægri, í þeim skiln­ingi. Því liggi beinna við að tala um frjáls­lyndi versus stjórn­lyndi. Komm­ún­ism­inn sé til dæmis stjórn­lynt fyr­ir­bæri. Fasismi líka á sama hátt. And­stæðan sé þá frjáls­lyndi. Hug­mynd­ina um að mað­ur­inn sé frjáls Og axli ábyrgð.

Ásgeir segir að gyð­ingar á vest­ur­löndum hafi á síð­ust tveimur öldum verið miklir tals­menn frjáls­lyndis. Þeir hafi alltaf upp­lifað sig í and­stöðu við yfir­vald, hvort sem um hafi verið að ræða aðal í þá tíð eða þegar þeir voru hluti af borg­ara­stétt og/eða kyn­þátta­drottnun. Margir frjáls­lyndir gyð­ingar stilli sér upp í stjórn­málum í dag, til að mynda í Banda­ríkj­unum, jafnt til vinstri og hægri.

Hann segir að þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi á sjötta og sjö­unda ára­tugi síð­ustu aldar verið undir stjórn Ólafs Thors – en faðir hans,Thor Jensen, var af dönskum gyð­inga­ættum – þá hafi til dæmis verið inn­leiddar umbætur í vel­ferð­ar­málum á borð við almanna­trygg­ingar. Þá hafi í raun­inni frjáls­lynd öfl haft yfir­hönd­ina í Sjálf­stæð­is­flokknum án þess að það hafi bein­línis verið tek­ist á um það. For­mað­ur­inn hafi verið mjög frjáls­lyndur í við­horfum.

„Nær okkur í sögu, eða um 1980, var nátt­úr­lega Bandalag jafn­að­ar­manna sem bar fyrir sig frjáls­lyndi en vildi stað­setja sig utan við eða á miðju vinstri-hægri áss­ins í stjórn­málum. Svo vorum við ára­tugnum fyrr með Samtök frjáls­lyndra og vinstri manna þannig að menn hafa unnið með hug­takið á báða eða alla kanta. Frjáls­lyndi er ekki bundið í klafa stétta­stjórn­mála eða hags­muna­á­tök hópa“ segir hann.

Boð og bönn ræna tækifærum til þroska

Ásgeir kveðst hafa hug­leitt þetta nokkuð því hann skil­greini sig núorðið fyrst og fremst sem frjáls­lyndan. „Svo renni ég mér upp og niður á þessum vinstri-hægri-skala þegar kemur að við­horfum til ólíkra mála. Til dæmis umræð­unni um áfengi í búðir. Það er dæmi um eitt­hvað sem ég á mjög erfitt með að skilja af hverju sé bannað, þó það skipti þannig séð alls ekki miklu máli. En þar birt­ist með skýrum hætti stjórn­lyndi. Að rík­is­valdið, fræða­sam­fé­lag, intel­ektúalar eða auð­vald, hvað sem er, reyni að hafa vit fyrir öðrum.

Í því umhverfi er búið að taka frá ein­stak­lingnum tæki­færið að axla ábyrgð­ina og þroskast sem ein­stak­lingur. Pælingar í þessum dúr og and­staðan við for­ræð­is­hyggju gera mig að frjáls­lyndum manni í dag.“

Ef fólk byggir við­horf sín og hegðun alfarið á reglum missir það tæki­færin á að fara í gegnum rök, til­finn­ingar og sjón­ar­mið en slík upp­lifun og reynsla er ekk­ert annað en þroski.

„Það sem mér finnst vera merki­leg­ast í íslenskri póli­tík í dag, þegar við skoðum ásinn stjórn­lyndi-frjáls­lyndi, eru Píratar. Ég las stefnu­skrá þeirra fyrir kosn­ing­arnar 2013 og þar eru ýmsar hug­myndir af meiði frjáls­lyndis og jafn­vel anar­k­isma sem hefur skotið nokkuð djúpum rótum víða m.a. í tölvu- og hátækni­sam­fé­lag­inu.

Í hina rönd­ina eru líka gríð­ar­lega afskipta­söm við­horf innan Pírata. Mér finn­ast þing­menn­irnir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Helgi Hrafn Gunn­ars­son vera gjör­sam­lega á sitt hvorum enda þessa áss. Helgi virð­ist mjög frjáls­lyndur maður. En á sama hátt finnst mér mjög áber­andi hjá Pírötum á borð við Þórhildi Sunna að vilja setja fólki strangar reglur um hitt og þetta. Útilokun, boð og bönn og ofur­reglur eru mér sjaldn­ast að skapi. Í huga mínum ræna þær okkur sem mann­eskju mögu­leik­anum á að takast á við hlut­ina. Taka frá okkur áskor­anir sem efla okkar sið­ferð­is­þroska og per­sónu­þroska. Ef fólk byggir við­horf sín og hegðun alfarið á reglum missir það tæki­færin á að fara í gegnum rök, til­finn­ingar og sjón­ar­mið en slík upp­lifun og reynsla er ekk­ert annað en þroski.“

Hann segir að því sé honum meinilla við boð og bönn, þó að sjálf­sögðu þurfi að vera til meg­in­reglur og leið­bein­ingar. „Þetta hefur litað allt mitt líf og er lífs­kjör­orð mitt. Ég á til dæmis erfitt með að vinna með mjög afskipta­sömum stjórn­endum. Stjórn­semi vinnur gegn mögu­leikum ein­stak­ling­anna að efl­ast og finna ástæður sínar fyrir því af hverju hlut­irnir virka svona eða hinsegin.“

Frjálslyndi ekki það sama og frjálshyggja

Ásgeir bendir á að frjáls­lyndi sé oft ruglað saman við frjáls­hyggj­una – sem sé allt annar hand­leggur. Frjáls­hyggja sé afstaða til mark­aðar. Og gangi út á að lög­mál mark­að­ar­ins eigi að teygja sig yfir sem flesta þætti sam­fé­lags­ins. Að allar athafnir í sam­fé­lag­inu eigi að ráð­ast af ein­földu lög­máli fram­boðs og eft­ir­spurnar. Að stjórn­völd og rík­is­vald hafi engin afskipti af því.

Frjáls­hyggj­una megi aftur á móti auð­veld­lega sjá sem anga af frjáls­lyndi en hún snú­ist um annað. Hún sé stjórn­mála­stefna sem hafi vaxið af anga frjáls­lyndis; frelsi ein­stak­lings­ins til athafna. En frjáls­hyggjan gangi lengra því hún yfir­færi þessi lög­mál á alla þætti. Og þá skolist ábyrgðin til.

„Ég held að til dæmis að félags­legt frjáls­lyndi, líkt og í Bret­landi og víðar, hafi átt mik­inn þátt í upp­bygg­ingu á vel­ferð­ar­kerf­inu. Á Norð­ur­löndum birt­ist glöggt þessi hug­mynd um félags­lega ábyrgð hins frjáls­lynda manns. Vel­ferðin í hávegum höfð og engar kenni­setn­ingar um hvort ríki eða einka­fram­tak henti betur til að fram­kvæma eða veita þjón­ustu. Í frjáls­hyggj­unni, á hinn bóg­inn, er vel­ferð­ar­kerfið skil­greint sem afskipti rík­is­valds­ins af lög­málum um fram­boð og eft­ir­spurn og þykir þess vegna ekki heppi­legt,“ segir hann.

Ásgeir telur því frelsi og umburð­ar­lyndi vera órjúf­an­legan þátt frjáls­lyndis en því miður hafi umburð­ar­lyndið horfið í skugg­ann í stjórn­málum dags­ins í dag þó svo alltaf heyr­ist ákall um frelsi. Hástig and­stöð­unnar við umburð­ar­lyndi sé hreinn aðskiln­aður hópa, eins og hafi verið í Þýska­landi á fjórða og fimmta ára­tug síð­ustu aldar, í Suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna lengi framan af þeirri öld og í Suður-Afríku á sjö­unda til tíunda ára­tugnum.

Togstreita milli íhaldsafla og frjálslyndra

Í sögu­legu til­liti hafa frjáls­lyndir oft verið í mik­illi and­stöðu við íhalds­öfl og íhalds­öfl finn­ast alls staðar á vinstri-hægri ás stjórn­mála. „En á meðal hægri manna þykir ekki slæmt að vera íhalds­samur. Menn eru hæg­fara og vilja litlu breyta. Íhalds­stefna finnur sér yfir­leitt skjól og stað hjá þeim hópum sem hafa völdin og sjá því ekki til­efni til breyt­inga. Íhaldið vill hafa sitt frelsi til athafna og við­ur­kennir því hug­mynd­ina um frelsi en það er hæg­fara og skynjar ekki hina knýj­andi þörf. Hinir frjáls­lyndu skynja hins vegar óbreytt ástand oft sem ok og yfir­vald, sem viðjar vana, og vilja brjót­ast undan því.

Þetta eru hin eilífu átök, eins og í atvinnu­líf­inu eða land­bún­að­inum þar sem íhalds­við­horf eru mjög ráð­andi. Þar er ekki vilji til að breyta því menn ótt­ast afleið­ingar þess að hreyfa um of við hlut­unum. Eins í verslun og þjón­ustu þar sem gamlir sér­hags­munir ráða ríkjum. En þessu er ólíkt farið í nýjum greinum eins og hug­bún­að­ar­geir­anum. Síðustu árin höfum við upp­lifað að nýir auð­kýf­ingar koma úr nýjum greinum sem standa utan girð­inga íhalds­afl­anna. Eins og Bill Gates og allir þessir inter­net-mógúlar. Þeir eru stað­settir fyrir utan girð­ingar hefð­bund­inna hags­muna. Eins var ný tækni sem óx utan hefð­bund­inna hags­muna t.d. land­eig­anda, hreyfi­afl breyt­inga á síð­ustu öld. Í atvinnu­líf­inu leita hin frjáls­lyndu öfl undan okinu og út fyrir ramma gam­alla og staðn­aðra hags­muna. Það er dýnamíkin sem hefur knúið áfram þróun í atvinnu­lífi.“

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, var lýðræðislega kjörinn en hann þykir hægri-öfgamaður sem fótum treður mannréttindi og það sem talist gæti með frjálslyndum áherlsum.
Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, var lýð­ræð­is­lega kjör­inn en hann þykir hægri-öfga­maður sem fótum treður mann­rétt­indi og það sem talist gæti með frjáls­lyndum áher­lsum.

Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst, til­tekur að til ein­föld­unar megi segja að til séu tvær teg­undir af lýð­ræði, ann­ars vegar hreint meiri­hlutaræði og hins vegar frjáls­lynt lýð­ræði.

Frjáls­lyndið gangi í því sam­hengi út á að vernda ein­stak­ling­inn fyrir afstöðu meiri­hlut­ans. „Til þess að svo megi vera eru byggðir inn í lýð­ræð­is­kerfið þeir frjáls­lyndu þættir sem gera okkur öllum kleyft að lifa með okkar eigin kenjar án afskipta heild­ar­innar. Þannig vegur frjáls­lyndið upp á móti meiri­hluta­vilj­anum. Þess vegna höfum við frjálsa fjöl­miðlun, akademískt frelsi í háskólum, rétt­inn til að mót­mæla, tján­ing­ar­frelsi, verk­falls­rétt, mann­rétt­indi og borg­ara­leg rétt­indi – til þess að verja ein­stak­linga frá lýð­ræð­is­legum vilja meiri­hlut­ans. Og því er sam­taka­máttur líka hluti af hinu frjáls­lynda lýð­ræði.“

„Þetta er kerfið sem við búum við,“ segir hann og bendir á að óþægi­legt geti reynst að búa við hreinan eða of öfl­ugan meiri­hluta­vilja, þá verði alltaf ein­hverjir undir og því sé mik­il­vægt að vernda ein­stak­linga og skoð­anir þeirra. Það verði að verja minni­hlut­ann fyrir ofríki meiri­hlut­ans.

Um leið og menn fara að tala um að frjáls­lyndi hafi ekki merk­ingu ættum við að ótt­ast grund­völl íslensks þjóð­fé­lags.

Eiríkur segir menn á borð við þá Victor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, og Vladímír Pútín Rúss­lands­for­seta séu dæmi um sterka leið­toga sem kosnir hafi verið í emb­ætti – það sama hafi raunar átt við um Adolf Hitler en það sé önnur Ella. Hann bendir á að eng­inn þess­ara manna geti talist vernd­ari ein­stak­linga eða frjáls­lyndis. Þannig séu kosn­ingar einskis virði ef þær séu ekki bæði frjálsar og frjáls­lyndar – eins og nú skorti til að mynda á með í Rúss­landi. Hann segir að jafn­vel í Evrópu og í Banda­ríkj­unum steðji nú ákveðin hætta af hinum frjáls­lynda þætti lýð­ræð­is­kerf­is­ins.

„Frjáls­ræði hefur haft jákvæðan blæ yfir sér – margir hafa sagst vera frjáls­lyndir en eru það ekki,“ segir Eiríkur og bendir á að til að mynda hafi Frjáls­lyndi flokk­ur­inn ekki alltaf staðið undir nafni á meðan aðrir flokkar hafi viljað standa vörð um hug­takið og vera á önd­verðum meiði við meiri­hluta­vilj­ann. Enn aðrir mis­skilji hug­takið – vilj­andi eða óvilj­andi – að mati Eiríks. „Um leið og menn fara að tala um að frjáls­lyndi hafi ekki merk­ingu ættum við að ótt­ast grund­völl íslensks þjóð­fé­lags,“ segir hann.

Popúlismi eyðir út blæbrigðum í samfélaginu

Popúl­ismi gengur út á að skipta hópi fólks í tvennt og þá verður til þjóð og ein­hvers konar and­þjóð – eða þeir sem fylgja ekki meiri­hlut­anum. Popúl­ismi, eða lýð­hyggja eins og hug­takið hefur verið þýtt, er í eðli sínu nei­kvætt hug­tak, sam­kvæmt Eiríki, sem skipti sam­fé­lag­inu í tvennt – í þjóð og and­þjóð. Það eyði út öllum blæ­brigðum í sam­fé­lag­inu, þrengt sé að frjáls­lynd­inu með öðrum orðum. Hann segir popúlista mis­nota aðstæður og hafi til að mynda siglt inn í þá eyðu sem vinstri hreyf­ingin hafði skilið eftir, í kjöl­far þess að hún hafi fjar­lægst grund­völl sinn, sjálfa alþýðu­bar­átt­una.

„Hvít­flibbar hafi tekið yfir verka­lýðs­bar­átt­una og að miklum hluta snúið sér að öðrum verk­efnum en skilið alþýð­una eftir for­ystu­lausa. Þannig mynd­ast aðstæður sem gera popúlistum kleift að stíga inn og ala á ótta sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár