Fellst ekki á að landinu sé stjórnað af hagsmunaöflum

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist hafa þá trú að flokk­arnir á Alþingi séu vand­ari að virð­ingu sinni en svo að þeir láti ein­göngu stjórn­ast af hags­muna­öflum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist hafa þá trú á stjórn­málum og stjórn­mála­mönnum að þeir láti ekki allir stjórn­ast af hags­munum. „Það væri auð­vitað veru­lega illa fyrir okkur komið ef svo væri.“

Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar, Logi Ein­ars­son, spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars út í það hvort hún hefði kallað eftir dæmum hvernig land­inu væri stjórnað af hags­muna­að­ilum og vís­aði í orð ráð­herr­ans síðan í síð­ustu viku þar sem hún sagði að hún vildi að seðla­banka­stjóri nefndi dæmi um slíkt.

Logi hóf mál sitt á því að minn­ast á fréttir sem birt­ust í morgun varð­andi það að norska fjár­mála­eft­ir­litið hefði sagt bank­ann DNB hafa staðið sig illa í að fram­fylgja lögum um pen­inga­þvætti árum saman. Kjarninn fjall­aði um málið í morgun en þar kemur fram að í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins um Sam­herj­a­málið fái bank­inn ákúrur fyrir að skoða ekki sér­stak­lega milli­færslur fyrir og eftir að Sam­herj­a­málið kom upp.

„Þetta þykir mjög stórt og alvar­legt mál í Noregi núna og er þungur áfell­is­dómur yfir þeirra helstu fjár­mála­stofnun. Fyrir tveimur árum áttum við for­sæt­is­ráð­herra orða­stað um aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í kjöl­far slá­andi birt­ingar gagna um starf­semi Samherja í Namibíu og þá áhættu sem skap­ast gæti fyrir orð­spor Íslands þar sem Samherji er stórt og öfl­ugt fyr­ir­tæki í íslensku sam­hengi, fyr­ir­tæki sem hefur áhrif í alla kima sam­fé­lags­ins. Þá svar­aði for­sæt­is­ráð­herra því að verið væri að fara yfir hvað hægt væri að gera til að standa betur að laga- og reglu­verki til að koma í veg fyrir að slík mál end­ur­tækju sig,“ sagði Logi.

Spurði hann í fram­hald­inu hvað hefði verið gert síðan þá. „Hvernig hafa íslensk stjórn­völd tryggt að eft­ir­lits­stofn­anir hafi styrk og getu til að takast á við svo yfir­grips­miklar rann­sóknir? Hefur emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem hefur Sam­herj­a­málið til rann­sóknar, nægi­legar fjár­heim­ildir og bol­magn? Er Fjár­mála­eft­ir­litið hér á landi nægi­lega vel fjár­magnað til að standa í sam­bæri­legum athug­unum og það norska? Og hefur verið gengið úr skugga um að íslenskir bankar hafi ekki verið seldir undir sams konar áhættu og nú er að afhjúp­ast í Noregi?“

Íslensk stjórnvöld gripið til margháttaðra aðgerða

Katrín svar­aði og sagð­ist vilja í fyrsta lagi nefna að úrskurð­ur­inn sem Logi vís­aði í, gagn­vart norska bank­anum DNB, varð­aði slæ­lega fram­kvæmd laga um pen­inga­þvætti.

„Íslensk stjórn­völd hafa gripið til marg­hátt­aðra aðgerða til að tryggja betur varnir gegn pen­inga­þvætti. Þau mál höfðu allt of lengi verið látin reka á reið­anum og þó að gripið hafi verið til aðgerða var ekki nógu hratt brugð­ist við þannig að Ísland lenti um tíma á hinum gráa lista FATF, sem við ræddum hér í þessum sal. Við vorum um leið mjög fljót af honum aftur vegna þess að við höfum verið að grípa til ráð­staf­ana til að hafa betra eft­ir­lit með pen­inga­þvætti sem þetta mál, sem hv. þing­maður nefnir, sner­ist um, en líka til að tryggja betur gagn­sæi í íslensku atvinnu­lífi, m.a. með skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda. Það var líka þjóð­þrifa­mál sem of langan tíma hafði tekið að breyta til batn­aðar. Það hefur því ýmis­legt verið gert á þessu sviði,“ sagði hún.

Varðandi Fjár­mála­eft­ir­litið þá benti ráð­herr­ann á að Alþingi hefði sam­þykkt lög um sam­ein­ingu Seðla­banka og Fjár­mála­eft­ir­lits og væri það hennar mat og mat margra ann­arra, þar á meðal seðla­banka­stjóra, að sú sam­ein­ing hefði orðið til þess að styrkja þessar tvær stofn­anir og gera þeim betur kleift að takast á við eft­ir­lits­hlut­verk sitt.

„Raunar kom það líka fram, í þeirri vinnu sem unnin var við gerð þeirra laga, að það myndi styrkja betur hefð­bundið fjár­mála­eft­ir­lit, og líka ann­ars konar eft­ir­lits­verk­efni eins og nefnd hafa verið í tengslum við Samherja, og er ég þá að vitna til gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins, að hafa þarna sterka stofnun á þessu sviði. Ég tel því að ýmis­legt hafi verið gert og ég tel að þessi sam­ein­ing hafi verið til að styrkja hið mik­il­væga eft­ir­lits­hlut­verk sem um ræðir.“

Ósammála ráðherranum

Logi steig aftur í pontu og sagð­ist vera ósam­mála ráð­herra um það. „Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur auk þess sagt að þau hefðu ekki nægt fjár­magn. Geta Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur og verið tak­mörkuð með laga­breyt­ingum rík­is­stjórn­ar­innar. Nú síð­ast lagði rík­is­stjórnin niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í núver­andi mynd og veikti neyt­enda­vernd svo um munar.“

[links]Benti hann á að seðla­banka­stjóri hefði stigið fram og talað um að land­inu væri stýrt af hags­muna­öflum. „Undir það hafa helstu hag­fræð­ingar lands­ins tekið og for­ystu­fólk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. For­sæt­is­ráð­herra gerði heldur lítið úr þessum orðum í síð­ustu viku og brást við með því að kalla eftir dæmum.“ Spurði Logi hvort Katrín hefði fengið slík dæmi ein­hvers staðar og kallað eftir þeim.

Héraðssaksóknara tryggðar fjárheimildir

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að það lægi alveg skýrt fyrir að hér­aðs­sak­sókn­ara yrðu tryggðar þær fjár­heim­ildir sem þarf til að ljúka rann­sókn þessa máls. Benti hún á að málið væri enn til með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og sagð­ist hún hafa fulla trú á því að emb­ættið myndi sinna verk­efni sínu af heil­indum og eins vel og hægt er.

„Já, ég kall­aði eftir dæmum vegna þess að ég held að við höfum dæmi um það að hags­muna­að­ilar beiti sér með ótæpi­legum og óhóf­legum hætti. En ég hef líka þá trú að flokk­arnir hér á Alþingi séu vand­ari að virð­ingu sinni en svo að þeir láti ein­göngu stjórn­ast af hags­muna­öflum. Þess vegna segi ég að þegar sagt er að land­inu sé stjórnað af hags­muna­öflum sé vænt­an­lega verið að segja að stjórn­mála­flokk­arnir hér séu allir undir stjórn hags­muna­afla. Ég fellst ekki á það,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Sagðist hún hins vegar vita að hags­muna­öfl reyndu mjög oft að beita sér óhóf­lega fyrir ýmsum breyt­ingum og málum. „Þess vegna hef ég beitt mér fyrir því og meðal ann­ars fengið sam­þykkt hér á Alþingi lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum af því að mér finnst svo mik­il­vægt að við tryggjum aukið gagn­sæi um þessi mál. En ég hef þá trú á stjórn­málum og stjórn­mála­mönnum að þeir láti ekki allir stjórn­ast af hags­munum. Það væri auð­vitað veru­lega illa fyrir okkur komið ef svo væri,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár