Tvöföld landamæraskimun verður skylda

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í dag að afnema mögu­leik­ann á því að þeir sem til lands­ins koma fari í sótt­kví í stað tvö­faldrar skimunar með 5 daga sótt­kvi. „Neyð­ar­úr­ræði“ sem tekur gildi strax í dag, segir heil­brigð­is­ráð­herra.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Allir sem til Íslands koma verða skyld­aðir til þess að fara í skimun við kom­una, nema lækn­is­fræði­leg rök megi færa fyrir öðru. Reglu­gerð um þetta tekur gildi strax í dag, sam­kvæmt því sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði við frétta­menn bæði Bylgj­unnar og RÚV í hádeg­inu í dag.

Mögu­leik­inn á því að ferða­menn velji 14 daga sótt­kví í stað skimunar verður ekki lengur til staðar, en það er í takt við það sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir lagði til við heil­brigð­is­ráð­herra í minn­is­blaði sínu 6. jan­úar.

Heil­brigð­is­ráð­herra hafði áður sagt að óvíst væri hvort laga­legar stoðir væri að finna í núver­andi sótt­varna­lögum til þess að hægt væri að fara eftir til­lögum sótt­varna­læknis.

„Við teljum að lögin séu nægi­lega styðj­andi við þessa ákvörðun vegna þess hve alvar­leg staðan er. Því gríp ég til þessa neyð­ar­úr­ræðis,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir í við­tali í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar. Hún sagði einnig að þessi ákvörðun væri tekin í ljósi fregna að nýjum og meira smit­andi afbrigðum kór­ónu­veirunnar og auk­innar smit­tíðni á landa­mærum Íslands.

Fram kom í frétt á mbl.is í morgun að alls hefðu 41 til­felli hins svo­kall­aða breska afbrigðis veirunnar greinst Íslandi til þessa, 35 hjá komu­far­þegum og sex til­felli inn­an­lands, sem hefðu í öllum til­fellum verið rakin til ferða­manna.

„Varfærin skref“ til vægari landamæraaðgerða 1. maí

Rík­is­stjórnin sam­þykkti einnig á fundi sínum í morgun að fyr­ir­komu­lag aðgerða á landa­mærum yrði með sama móti fram til 1. maí. Þá verða tekin „var­færin skref“ til aflétt­ingar sótt­varna­að­gerða, sem munu taka mið af ástandi far­ald­urs­ins á brott­far­ar­stað komu­far­þega.

„Frá og með 1. maí verður byggt á reglu­lega upp­færðu áhættu­mati Sótt­varn­ar­stofn­unar Evrópu og ríki flokkuð í græn, app­el­sínugul, rauð og grá eftir stöðu far­ald­urs­ins,“ segir í til­kynn­inguum þetta á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Skrefin virð­ast nokkuð var­færin. Áfram verður gerð almenn krafa um tvær skimanir og fimm daga sótt­kví á milli hjá þeim sem koma frá grænum og app­el­sínu­gulum ríkjum, en fólk sem þaðan kemur mun þó að geta fram­vísað nei­kvæðri nið­ur­stöðu úr fyrri skimun sem fram­kvæmd er á brott­far­ar­stað. Allir verða skimaðir einu sinni við kom­una til lands­ins.

Þeir sem eru með nei­kvæða nið­ur­stöðu að utan þurfa þó ekki að fara í sótt­kví né síð­ari skimun á Íslandi.

Mótefna­vott­orð og bólu­setn­ing­ar­vott­orð verða einnig tekin gild, líka hjá þeim sem koma frá rauðum eða gráum ríkjum, þar sem far­ald­ur­inn er í upp­sveiflu eða upp­lýs­ingar um stöðu hans liggja ekki fyrir. 

„Með því að greina svo snemma frá fyr­ir­komu­lagi sótt­varna­ráð­staf­ana á landa­mærum sem stefnt er að í vor er fram­kvæmdar- og sölu­að­ilum gert kleift að und­ir­búa breyt­ingar vel. Áhættu­mat lita­kóð­un­ar­kerfis tekur mið af óvissu um þróun far­ald­urs og gerir meiri fyr­ir­sjá­an­leika mögu­legan,“ segir í til­kynn­ing­unni á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár