Mynd: EPA

Guns N´Roses spila á Laugardalsvelli í sumar

Þann 24. júlí næst­kom­andi spilar ein vin­sælasta, og goð­sagna­kenndasta, rokk­hljóm­sveit sög­unnar á Íslandi. Axl Rose, Slash, Duff McKagan og hinir mæta á Laug­ar­dals­völl.

Banda­ríska rokk­hljóm­sveitin Guns N´Roses, sem selt hefur yfir 100 milljón plötur á ferli sínum, mun halda tón­leika á Laug­ar­dals­velli 24. júlí næst­kom­andi. Um verður að ræða stærstu tón­leika sem haldnir hafa verið hér­lendis. Miðasala hefst 1. maí næst­kom­andi og mun kosta 18.900 krónur á tón­leik­anna. Hún fer fram á vef­síð­unni www.show.is og hefst stund­vís­lega klukkan 10 fyrir hádegi. Teymið á bak­við Secret Soltice-hát­ið­ina stendur að tón­leik­unum.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að sviðið sjálft á tón­leik­unum verði 65 metra breitt með risa­skjáum á hlið­inum. Svið, ljós og hljóð­kerfi verður flutt inn erlendis frá. „Lagt verður sér­stakt gólf á grasið á Laug­ar­dals­velli til þess að vernda völl­inn fyrir öllu álagi vegna tón­leika­halds­ins.

Það mun taka um það bil viku að setja upp völl­inn fyrir tón­leik­ana og það eru 35 gámar sem þarf að flytja inn til lands­ins. Rúmlega 150 manns ferð­ast með hljóm­sveit­inni hingað til lands til að sjá um upp­setn­ingu í sam­vinnu við íslenskt fram­leiðsluteymi.“

Slagaraframleiðsla

Guns N´Roses var stofnuð árið 1985 og sló í gegn með frum­burð­inum „Appetite for Destruction“ sem kom út tveimur árum síðar. Hún hefur selst í yfir 30 millj­ónum ein­taka síðan að hún kom út og er enn þann dag í dag sú fyrsta plata hljóm­sveitar eða tón­list­ar­manns sem selst hefur best. Á meðal laga plöt­unnar sem náðu feiki­legum vin­sældum eru „Welcome to the Jungle“, „Paradise City“ og „Sweet Child o´Mine“.

Í sept­em­ber 1991 gaf hljóm­sveitin svo út tví­bura­plöt­unar „Use Your Illusion I&II“. Í aðdrag­anda þeirrar útgáfu, og eftir hana, fór Guns N´Roses á 28 mán­aða langt tón­leik­ar­ferða­lag um allan heim­inn sem átti eftir að taka sinn toll. Alls hélt hljóm­sveitin 192 tón­leika í 27 löndum á þeim tíma. Um er að ræða eitt lengsta, ef ekki lengsta, sam­fellda tón­leika­ferða­lag sög­unnar.

Báðar plöt­urnar slógu í gegn og hafa selst í yfir 35 millj­ónum ein­taka sam­tals um heim allan. Á meðal laga þeirra sem fólk ætti að muna eftir eru epísku ball­öðusmell­irnir „Don´t Cry“, „November Rain“ og „Estranged“. Þar var einnig að finna lög á borð við „Civil War“, „14 years“, „Yester­days“ og tök­u­lögin „Knockin´on Heavens Door“ og „Live and Let Die“.

Ósætti...

Ósætti milli hljóm­sveita­með­lima gerði það hins vegar að verkum að hljóm­sveitin leyst­ist upp á árunum 1994 til 1999. Mest mun­aði um það þegar gít­ar­leik­ar­inn goð­sagna­kenndi Slash, annar leið­toga Guns N´Roses, hætti í sveit­inni í októ­ber 1996. Hinn leið­tog­inn, söngv­ar­inn sér­lund­aði Axl Rose hélt hljóm­sveit­inni hins vegar starf­andi, að minnsta kosti annað veifið, með nýjum liðs­mönnum.

Svona litu liðsmenn út árið 1987 þegar „Appetite for Destruction“ kom út.
Svona litu liðs­menn út árið 1987 þegar „Appetite for Destruction“ kom út.

Árið 2008 gaf Guns N´Roses, sem var þá í raun bara Axl Rose, út plöt­una „Chinese Democracy“ sem hafði verið meira en ára­tug í vinnslu og kostað um 1,4 millj­arð króna í fram­leiðslu. Það gerir hana að lang­dýr­ustu rokk­plötu allra tíma. Almennt álit aðdá­enda og gagn­rýnenda er að þeim fjár­munum hafi ekki verið vel varið.

...og endurkoma

Árið 2016, 20 árum eftir að Slash hætti í Guns N´Roses, var til­kynnt um að sættir hefðu náðst. Slash, bassa­leik­ar­inn Duff McKagan og Dizzy Reed gengu aftur í hljóm­sveit­ina og boð­uðu „Not in This Lifetime…“ tón­leika­ferða­lagið. Auk þeirra þriggja var Axl Rose vit­an­lega með auk gít­ar­leik­ar­ans Richard Fortus, trommar­ans Frank Ferrer og hljóm­borðs­leik­ar­ans Mellisu Reese.

Sú tón­leika­ferð stendur enn yfir og er nú á leið­inni til Íslands. Hún hefur halað inn tæp­lega 50 millj­örðum króna sem gerir hana að fjórða arð­bærasta tón­leik­ar­ferða­lagi allra tíma. Alls hafa um 4,4 millj­ónir manna séð hljóm­sveit­ina á umræddu tón­leika­ferð­ar­lagi, þar sem Guns N´Roses hafa haldið 125 tón­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár