Telur rétt að skoða tollamál til að efla innlenda matvælaframleiðslu

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra segir að Íslend­ingar þurfi að leggja aukna áherslu á mat­væla­fram­leiðslu á næst­unni. Til þess þurfi að skoða tolla­mál, sér­stakar land­greiðslur og tryggja bændum ódýrt raf­magn.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra segir að Íslend­ingar þurfi aug­ljós­lega að leggja aukna áherslu á mat­væla­fram­leiðslu á næst­unni, þar sem eft­ir­spurn eftir mat sé enn til staðar á meðan eft­ir­spurn eftir ýmsu öðru, til dæmis ferða­þjón­ustu og afurðum orku­freks iðn­aðar, fari þverr­andi. Hann segir að skoða þurfi tolla­mál í því sam­hengi og auka toll­vernd.

„Tollar eru jú not­aðir til þess að vega upp kostnað við mis­mun­andi stofn­kostnað eða rekstr­ar­kostnað við fram­leiðslu, það er hugs­unin á bak við tolla. Við höfum látið það óáreitt í mjög langan tíma. Ef við meinum eitt­hvað með því að auka inn­lenda fram­leiðslu, þá er það nokkuð aug­ljós leið að við þurfum að skoða það líka, myndi ég telja,“ sagði Sigurður Ingi í ræðu sinni á Alþingi í dag eftir munn­lega skýrslu for­sæt­is­ráð­herra um COVID-19 far­ald­ur­inn og við­brögð við honum.

Í máli hans kom fram að rík­is­stjórnin og ráð­herra land­bún­að­ar­mála væru búin að vera í samn­inga­við­ræðum við garð­yrkju­bændur að und­an­förnu og að við þá samn­inga­gerð þyrfti að horfa til þess að lækka dreifi­kostnað raf­orku og við­halda þeim stuðn­ingi eins háum og hægt er. Auk þess sagði Sigurður Ingi ráð­legt að taka til skoð­unar sér­stakar land­greiðslur til þess að hvetja til úti­rækt­unar á græn­meti.

Hann sagði einnig ljóst að huga þyrfti að því að hjálpa ferða­þjón­ust­unni að takast á við stöð­una, með frek­ari hætti en þeim aðgerðum sem þegar hafa verið kynntar af hálfu stjórn­valda.

„Við þurfum kannski að hvetja enn frekar til inn­an­lands­neyslu með ferða­þjón­ust­unni í land­inu á næstu mán­uðum,“ sagði Sigurður Ingi og vís­aði þar til þess að í fyrsta aðgerða­pakk­anum sem rík­is­stjórnin kynnti var lagt til að hver og einn Íslend­ingur fengi nokkur þús­und króna gjafa­bréf frá rík­inu til þess að nota hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sem eiga nú undir högg að sækja.

Næstu aðgerðir muni „án efa ekki duga“ til lengri tíma litið

Hann bætti því við að þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin væri að velta fyrir sér þessa dag­ana myndu „án efa ekki duga“ til þess að mæta afleið­ingum veiru­far­ald­urs­ins.

„Við þurfum að við­ur­kenna það að aðgerð­irnar sem við erum að velta fyrir okkur núna munu án efa ekki duga. Ef veiran hagar sér með versta hætti getur verið að við þurfum að grípa hér inn í á næstu mán­uðum og ef til vill lengra og lengra inn í fram­tíð­ina,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár