Forsetinn vill að starf sitt sé betur skilgreint

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hvatti þing­heim til þess að ráð­ast í nauð­syn­legar end­ur­bætur á stjórn­ar­skrá Íslands sem þyrfti að end­ur­spegla betur ríkj­andi stjórn­ar­far.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði þingheim við þingsetningu 147. löggjafarþings í dag.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ávarp­aði þing­heim við þing­setn­ingu 147. lög­gjaf­ar­þings í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það liggur beint við að huga að breyt­ingu á stjórn­ar­skrá Íslands vegna nýlegra álita­mála um stjórn­skipu­lega stöðu for­set­ans, sagði Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, í þing­setn­ing­ar­ræðu sinni á Alþingi í dag.

Guðni hvatti þing­heim til þess að taka þátt í því verk­efni sem rík­is­stjórnin hefði sett sér um að taka stjórn­ar­skrá Íslands til end­ur­skoð­unar. Guðni stakk upp á því að nota til­efni ald­ar­af­mælis íslensks full­veldis á næsta ári til þess að inn­leiða breyt­ingar á grunn­lögum lýð­veld­is­ins.

For­set­inn benti á háværar raddir um að tími væri kom­inn til þess að koma umhverf­is­vernd, þjóð­ar­eign á auð­lindum og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, svo dæmi séu nefnd. „Auk þess hafa stjórn­mála­leið­togar, stjórn­spek­ingar og fleiri marg­sinnis við­ur­kennt – ekki síst á þess­ari öld – að í stjórn­ar­skrá okkar þurfi að draga upp skýr­ari mynd af ríkj­andi stjórn­ar­fari.“

Þá vill Guðni áréttað sé að ráð­herrar fari með æðsta fram­kvæmda­vald og að nefnt verði berum orðum hvert hlut­verk for­seta Íslands sé í raun í stjórn­ar­skránni. „Í þeim efnum má meðal ann­ars huga að atbeina við stjórn­ar­mynd­anir, þing­rofi og skipun í ýmis emb­ætti. Loks varðar miklu að völd og ábyrgð fari saman,“ sagði Guðni. „Stjórn­ar­skrár­bundið ábyrgð­ar­leysi for­seta sem felur samt í sér stað­fest­ingu á ákvörðun ann­arra sam­ræm­ist ekki rétt­ar­vit­und fólks og á ekki heima í stjórn­sýslu sam­tím­ans.“

Hann sagði ábyrgð sína mikla eftir að hafa verið kjör­inn for­seti. Ábyrgðin væri gagn­vart kjós­endum og að það væri skylda sín „að færa mál til betri vegar þegar því verður við komið. Sú er raunin núna. Við óbreytt ástand verður ekki unað. Eftir óbreyttu verk­lagi verður ekki unnið.“

Mikilvægt að læra af reynslunni

„Fyrr í sumar brugð­ust fjöl­margir ókvæða við þegar kyn­ferð­is­brota­menn fengu upp­reist æru eftir afplánun dóms. Engu skipti að stuðst var við lög og ríka hefð um fram­kvæmd­ina,“ sagði Guðni. „Þetta skipti engu, vegna þess að laga­hug­takið upp­reist æru þykir úrelt og vill­andi. Löngu er tíma­bært það heyri sög­unni til.“

Guðni lagði benti hins vegar á að þeir sem hefðu hlotið dóm ættu að vissu­lega að „feta lífs­ins göngu þrátt fyrir þær þján­ingar sem þeir ollu öðrum, eftir ann­ari slóð en fyrr“.

For­set­inn sagði það skyn­sam­legt að end­ur­heimt ýmissa rétt­inda væri skil­yrt og tak­mörkuð í lögum í takti við það afbrot sem framið var.

„Við verðum að læra af bit­urri reynslu,“ sagði for­set­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár