Tónlist geti dimmu í dagsljós breytt

Magnea Tómasdóttir óperu­söngkona segir að tónlistin sé líklega það síðasta sem hverfi frá fólki sem sé með heila­bilun. Músíkin sé enda djúpt í kjarna okkar allra. Magnea hefur um árabil kennt starfs­fólki hjúkrunar­heimila og aðstand­endum fólks með heila­bilun að nota tónlist til að bæta líðan þeirra sem eru veik.

Frelsi til tjáningar
Frelsi til tján­ingar Magnea Tóm­as­dóttir, óperu­söng­kona segir að tón­list geti verið mjög góð leið til að ná til kjarna mann­eskj­unnar og þar með veitt fólki með heila­bilun frelsi til tján­ingar. Mynd: Golli

Þetta snýst um að opna hjartað. Þó að fólk sé búið að tapa alls kyns færni er alltaf eitthvað sem hægt er að grafa eftir. Ég held að tónlistin sé það síðasta sem fer hjá okkur. Svo lengi sem við drögum andann getum við notið tónlistar.“

Þetta segir Magnea Tómasdóttir óperu­söngkona, sem hefur meðal annars kennt á námskeiðinu Tónlist og heila­bilun í Lista­háskóla Íslands og stýrir á næstunni námskeiði hjá Mími sem er ætlað starfs­fólki í umönnunar­störfum og aðstand­endum fólks með heila­bilun. 

Sextug þegar hún greindist með heilabilun

Mamma og pabbi Magneu veiktust bæði af heila­bilunar­sjúkdómi. „Mamma var bara sextug þegar hún greindist og ég var mjög ung þegar það gerðist, eða 27 ára. Mér fannst ég ekki ung á þeim tíma en sé núna að svo var. Pabbi minn greindist síðan seinna með heila­bilun. Hann var gröfukarl en líka tónlistar­maður sem spilaði djass.“ 

…
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár