Sigmundur: Steig til hliðar um tíma á meðan hlutirnir skýrðust

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að hann hafi beðið Sigurð Inga Jóhanns­son að fara í hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra fyrir sig á meðan hann steig til hliðar um tíma. Hann heldur því fram að ummerki um inn­brot hafi fund­ist í tölvu hans.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann hafi tekið þá ákvörðun að „stíga til hliðar um tíma á meðan hlut­irnir væru að skýr­ast“ þegar hann sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra þann 5. apríl síð­ast­lið­inn. Þetta kom fram í við­tali við Sigmund Davíð í þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í gær.

Sig­mundur marg­ít­rek­aði í við­tal­inu að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi lofað að fara ekki gegn honum í for­manns­emb­ættið í flokknum. „Þegar ég á sínum tíma ákvað að það væri rétt að stíga til hliðar um tíma, á meðan að hlut­irnir væru að skýr­ast, og ræddi við Sigurð Inga og bað hann um það að fara í þetta hlut­verk fyrir mig á meðan – að verða for­sæt­is­ráð­herra – þá sagði ég ein­göngu, ég sagð­ist treysta honum fyrir þessu og bæði ekki um annað en að hann leyfði mér að fylgj­ast með gangi mála og svo vissi ég, sem hann hefði svo oft sagt við mig áður, að hann myndi aldrei nýta þá stöðu til að fara gegn mér,“ sagði Sig­mundur. Hann sagði að eftir þetta sam­tal hafi þeir Sigurður Ingi tek­ist í hendur og fall­ist í faðma.

Sig­mundur Davíð sagði einnig að hann von­að­ist til þess að sem flestir yrðu vinir á flokks­þingi flokks­ins í byrjun októ­ber. „Það var synd að við skildum ekki ná að klára kjör­tíma­bilið og klára síð­ustu fjár­lögin, sem maður batt auð­vitað mjög miklar vonir við, en þá skiptir þeim mun meira máli að flokk­ur­inn nái að stilla saman strengi og koma með öfl­uga stefnu inn í kosn­ing­arnar.“

Segir sannreynt að brotist hafi verið í tölvuna

Sig­mundur Davíð var einnig spurður um þá full­yrð­ingu sína að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans. Hann var spurður að því hvort það hafi verið sann­reynt og svar­aði „Já. Mér barst póstur sem var lát­inn líta út fyrir að vera frá manni sem ég þekki, sem hafði svo ekki sent póst­inn og í ljós kom að við­hengið sem í honum var var svona njósn­a­for­rit til að fara inn í tölvu. Þetta kom í ljós eftir að ég hafði látið tækni­menn í ráðu­neyt­inu eða rekstr­ar­fé­lagi stjórn­ar­ráðs­ins til að skoða tölv­una en það var ekk­ert auð­vitað hægt að átta sig á því hversu miklum upp­lýs­ingum við­kom­andi hefði náð. Þeir sögðu mér bara að það eina örugga fyrst að þetta væri svona væri að skipta um harða diskinn í tölv­unni.“

Þá var hann spurður á ný hvort þetta hafi verið stað­fest af „manni í ráðu­neyt­inu“ og svar­aði aftur ját­andi. „Þessir tækni­menn sem skoð­uðu þetta fyrir mig sögðu að þetta væri ein­hvers konar vírus eða for­rit af þess­ari gerð, það var hins vegar ekki hægt að sjá hversu mikið það hefði virkað.“

Þá var hann spurður hvort hann hefði ekki til­kynnt málið til lög­reglu. „Nei ég gerði það nú ekki enda sko er maður ýmsu vanur úr þessu í póli­tík­inni og hafði fengið þau ráð, ekki bara út af þessum stóru málum sem við var að eiga á þessum tíma heldur bara almennt að við ættum að gera ráð fyrir því ráð­herrar og jafn­vel þing­menn almennt, að allt sem við settum í tölvu­póst væri lesið.“

Rekstrarfélagið segir engin ummerki um innbrot

Fram­kvæmda­stjóri Rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins stað­festi það hins vegar í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í gær að engin stað­fest ummerki um inn­brot hefðu fund­ist í tölvu Sig­mundar Davíðs við skoðun. Rekstr­ar­fé­lagið hefur umsjón með stað­ar­neti Stjórn­ar­ráðs­ins og undir það fellur tölva for­sæt­is­ráð­herra. Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot. Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­mundar Hall­dórs Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­fé­lags­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Fyrr í gær hafði Vísir greint frá því að inn­brot í tölvu for­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­kynnt til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­­­skipan rík­­is­ins og æðstu stjórn­­völdum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár