Starfsemi Alvogen í Asíu seld fyrir tugi milljarða – Sjóður Wessman kaupir og selur

CVC Capital Partners og Temasek hafa selt hluti í lyfja­fyr­ir­tækjum í Asíu sem Alvogen á. Dótt­ur­fé­lag stærstu skráðu fyr­ir­tækja­sam­stæðu Taílands er kaup­and­inn ásamt fjár­fest­inga­stjóði sem stýrt er af Róberti Wessman.

Við undirskriftina í nótt.
Við und­ir­skrift­ina í nótt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aztiq, sjóður sem stýrt er af Róberti Wessman, og Innobic Asia, dótt­ur­fé­lag PTT Public Company Limited, stærstu skráðu fyr­ir­tækja­sam­stæðu Taílands, hafa keypt leið­andi hlut í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Lotus Pharmaceutical og allt hlutafé í Adalvo á alls 475 millj­ónir dala, eða rúm­lega 62 millj­arða króna af eig­endum Alvogen-sam­stæð­unnar, en um er að ræða starf­semi hennar í Asíu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans skipt­ast kaupin þannig að Innobic kaupir um tvo þriðju þess sem selt var og Aztiq um þriðj­ung.

Selj­endur eru CVC Capital Partners, Temasek Holdings í Singa­pore ásamt Aztiq, sem er þar af leið­andi bæði kaup­andi og selj­andi.

Við­skiptafléttan er nokkuð flókin. Hún fer þannig fram að félag sem kall­ast Aztiq III HoldCo, í eigu Aztiq og Innobic, kaupir allt hlutafé í Alvogen Emerging Markets Holding Limited af Alvogen Lux Holding Sarl, en fyrr­nefndar félagið er fyrir vikið á leið­andi hlut í lyfja­fyr­ir­tækj­unum Lotus Pharmaceutical og á Adalvo að fullu.

[adspot]Í til­kynn­ingu segir að Aztiq muni ann­ast rekstur Aztiq II HoldCo næstu þrjú árin. Það þýðir að Róbert Wessman og sam­starfs­menn hans hafa skuld­bundið sig til að starfa áfram í þann tíma og Róbert verður áfram stjórn­ar­for­maður Lotus, en eftir það geti orðið breyt­ingar á stjórn­enda­hópnum. Sú ákvörðun hvílir hjá Innobic sem er stærsti hlut­haf­inn.

Kaupin hafa ekki áhrif á Alvotech, sem ætlar sér að setja á markað sam­heita­lyf í nán­ustu fram­tíð og hefur byggt lyfja­verk­smiðju í Vatns­mýr­inni, né starf­semi Alvogen í Banda­ríkj­unum.

Stærsti hlut­haf­inn í Alvotech er Aztiq. Í fyr­ir­tækja­­skrá er Róbert skráður óbeinn end­an­­legur eig­andi að 38,6 pró­­sent hlut í Alvotech, sem gefur til kynna að það sé eign­­ar­hlut­­ur­inn sem hann stýr­­ir. Næst stærsti hlut­haf­inn er svo Alvogen, sem Aztiq Pharma á beint og óbeint um 40 pró­sent hlut í. CVC Capital og Temasek eru hinir hlut­haf­arnir.

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Tomas Ekman, stjórn­ar­manni Alvogen Lux, að komið sé að þeim tíma­mótum að selja hlut og láta Aztiq og Innobic halda áfram þeirri veg­ferð sem Lotus er á. Bæði Adalvo og Lotus munu halda áfram nánu sam­starfi við Alvogen fyr­ir­tækja­sam­stæð­urnar. Salan í dag á Adalvo og Lotus eru í sam­ræmi við þá lang­tíma stefnu sem var mótuð á sínum tíma og mun Alvogen ráð­stafa sölu­and­virð­inu með það í huga að hák­marka arð­semi hluta­hafa Alvogen.“

Róbert Wessman þakkar á sama stað frá­far­andi hlut­höfum fyrir stuðn­ing­inn og sam­starfið und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár