Vegagerðin stöðvar framkvæmdir við Hljóðakletta

Vega­gerðin hefur ákveðið að gera hlé á vega­fram­kvæmdum um Vest­ur­dal í nágrenni Ásbyrgis og Hljóða­kletta. Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN, kærðu fram­kvæmd­irnar í síð­ustu viku.

Vegagerðin hefur nú ákveðið að lækka veginn sem náttúruverndarfólk hefur m.a. gagnrýnt.
Vega­gerðin hefur nú ákveðið að lækka veg­inn sem nátt­úru­vernd­ar­fólk hefur m.a. gagn­rýnt. Mynd: Aðsend

„Við höfum ákveðið að gera fram­kvæmda­hlé á svæð­inu sem hefur verið kært og fara yfir mögu­leik­ana,“ segir G. Pétur Matth­í­as­son, sam­skipta­stjóri Vega­gerð­ar­innar við Kjarnann spurður út í við­brögð stofn­un­ar­innar við kæru Samtaka um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN. Hann segir að einnig hafi verið ákveðið að lækka veg­inn, sem gagn­rýni nátt­úru­vern­ar­fólks hefur meðal ann­ars beinst að, og hafi það verið gert til að bregð­ast við óskum þjóð­garðsvarðar.

Svæðið sem um ræðir er nú innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs en hefur verið þjóð­garður síðan 1973.

[adspot]

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi sendu fyrir helgi kæru til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála þar sem þess var kraf­ist að vega­fram­kvæmd­irnar í Vest­ur­dal og við Hljóða­kletta yrðu stöðv­aðar. Gerðu sam­tökin „alvar­legar athuga­semdir varð­andi verk­lag í kringum fram­kvæmda­leyfi og umhverf­is­mat og gera kröfu um að betur sé að gætt þegar um svo dýr­mætan stað er að ræða“.

[links]Um er að ræða fram­kvæmdir á hluta Detti­foss­vegar en sú fram­kvæmd fór í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum árið 2006. Stjórn SUNN telur hins vegar eðli þeirra fram­kvæmda sem staðið hafa yfir í sumar ekki í sam­ræmi við hið fjórtán ára gamla umhverf­is­mat. „Þá kom skýrt fram af hálfu þjóð­garðs­yf­ir­valda að vega­bótum um Vest­ur­dal skyldi haldið lág­stemmdum til að standa vörð um þá ein­stöku kyrrð og nátt­úru­feg­urð sem ein­kennir tjald­stæðið í Vest­ur­dal sem veg­ur­inn liggur um. Þess í stað skyldi mæta auk­inni umferð með aðkomu að svæð­inu upp á Langa­vatns­höfða, fyrir ofan Hljóða­kletta og Vest­ur­dal. Þar er gert ráð fyrir bíla­stæði fyrir rútur og þá ferða­langa sem staldra [skemur] við en geta notið svæð­is­ins án þess að trufla þá kyrrð sem ríkir í Vest­ur­dal,“ sagði í til­kynn­ingu þeirra um kæruna fyrir helgi.

G. Pétur segir að Vega­gerðin hafi haldið fund með kærendum og þjóð­garðs­verði á föstu­dag og að sömu aðilar hafi svo farið í vett­vangs­ferð í gær­morgun.

„Það eru Vega­gerðin, Vatna­jök­uls­þjóð­garður og Norð­ur­þing sem eru kærð og við munum í kjöl­farið setj­ast saman yfir málið og skoða mögu­leik­ana en veg­ur­inn sem um ræðir er byggður á sama stað og veg­ur­inn sem fyrir var, og síðan er um að ræða tvö plön,“ segir G. Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár