Vegur sunnan Hljóðakletta verður með „allt öðrum brag“ þegar framkvæmd lýkur

Vega­gerðin segir hækkun veg­ar­ins um Vest­ur­dal vera nauð­syn­lega, m.a. vegna rútu­um­ferðar. Nátt­úru­vernd­ar­fólk hefur harð­lega gagn­rýnt fram­kvæmd­ina en Vega­gerðin segir hana unna í góðu sam­ráði og sam­vinnu við þjóð­garðs­vörð.

Frá vegaframkvæmdum í Vesturdal.
Frá vega­fram­kvæmdum í Vest­ur­dal. Mynd: Aðsend

Vegagerð verður oft mjög áber­andi í lands­lag­inu meðan á fram­kvæmdum stendur og vegstæðið virð­ist þá mun umfangs­meira en það er í raun. Ástandið breyt­ist síðan mjög þegar verki er lokið með við­eig­andi frá­gangi.

Þetta segir G. Pétur Matth­í­as­son, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Vega­gerð­ar­innar, um vega­fram­kvæmdir í Vest­ur­dal sunnan Hljóða­kletta sem vakið hafa hörð við­brögð nátt­úru­vernd­ar­fólks. Fyrr­ver­andi þjóð­garðs­vörður í Jök­ulsár­gljúfri sagði að hinn breiði og „mjög upp­hækk­aði“ vegur spillti lands­lag­inu og Andri Snær Magnason rit­höf­undur sagði veg­inn virð­ast ein­hvers­konar „fantasía verk­fræð­ings og gröfu­stjóra“. Verið væri að búa til „upp­byggða hrað­braut eins og mark­miðið sé að kom­ast á sem mestum hraða milli staða.“

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN, hafa seint kæru til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála og krefj­ast þess að vega­fram­kvæmd­irnar í Vest­ur­dal og við Hljóða­kletta verði stöðv­aðar. Segjast sam­tökin gera „alvar­legar athuga­semdir varð­andi verk­lag í kringum fram­kvæmda­leyfi og umhverf­is­mat og gera kröfu um að betur sé að gætt þegar um svo dýr­mætan stað er að ræða“.

[adspot]

G. Pétur, segir við Kjarnann að Vega­gerðin eigi eftir að skoða kæru­málið og geti því ekk­ert sagt um það á þessu stigi.

Varðandi vega­gerð­ina sjálfa þá segir hann um að ræða veg sem liggi að bíla­stæði fyrir hvoru tveggja rútur og bíla. „Vega­gerðin í Vest­ur­dal er hefð­bund­inn vegur að hluta til en að hluta til er hann ein­ungis fjög­urra metra breiður og er lagður á nákvæm­lega sama stað og sá slóði sem fyrir var,“ segir hann. Hækkun veg­ar­ins frá því sem var sé nauð­syn­leg vegna breyttrar umferðar, til dæmis ferða­þjón­ust­unnar á rútu­bif­reiðum. Auk þess sé hún nauð­syn­leg svo unnt sé að þjón­usta veg­inn og halda honum opnum meira en ella.

[links]G. Pétur bendir á að í verk­inu sé gerð krafa um frá­gang þannig að svarð­lag sem upp er tekið er geymt og því komið fyrir aftur á fláum veg­ar­ins og því miðað við að gróður verði sá sami og er á svæð­inu og tryggt verði að fláar fái þá ásýnd sem er ann­ars staðar á svæð­inu. „Því mun þessi vega­gerð verða með allt öðrum brag en nú má sjá meðan unnið er í verk­inu,“ segir hann.

Að hluta til er ekk­ert svarð­lag og í þeim til­vikum verði ákveðið í sam­ráði við þjóð­garðs­vörð Norð­ur­svæðis Vatna­jök­uls­þjóð­garðs hvernig frá­gangi verði háttað, hvort sáð verði grasi, þöku­lagt eða farin önnur leið til að ná þeirri áferð sem á svæð­inu er. „Öll þessi fram­kvæmd hefur verið unnin í góðu sam­ráði og sam­vinnu við þjóð­garðs­vörð en vega­lagn­ing þessa hluta Detti­foss­vegar hefur nú staðið í nokkuð mörg ár eða síðan þessir áfangar á norð­an­verðum veg­inum voru fyrst boðnir út árið 2014.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vegagerð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár