Hrólfur hættir sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins

Fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins dregur sig í hlé í kjöl­far umfjöll­unar um aflands­fé­laga­eign hans. Hann við­ur­kennir ekki að hafa gert neitt rangt en segir umræð­una óvægna.

Hrólfur Ölvisson hefur ákveðið að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, en hann hefur gengt því starfi frá árinu 2010. Hrólfur var til umfjöll­unar í Kast­ljós­þætti á mánu­dag þar sem varpað var ljósi á aflands­fé­laga­eign hans. Í yfir­lýs­ingu á heima­síðu Fram­sókn­ar­flokks­ins segir Hrólfur að hann taki þess ákvörðun í ljósi þess hversu „eins­leit og óvægin umræðan er. Þetta er per­sónu­leg ákvörðun mín og á engan hátt við­ur­kenn­ing á því að ég hafi brotið lög eða starfað með óheið­ar­legum hætti."

Hrólfur segir að hann hafi þegar til­kynnt fram­kvæmda­stjórn flokks­ins um ákvörðun sína og öðrum sem fara með trún­að­ar­störf fyrir hann. „Spurn­ingum blaða­manna um mjög tíma­bundna aðkomu mína að tveimur aflands­fé­lögum tel ég mig hafa svarað full­nægj­andi. Því hefur rang­lega verið haldið fram að ég hafi keypt hlutafé í BM Vallá með tor­tryggi­legum hætti. Arion banki bauð BM Vallá til sölu í opnu sölu­ferli sem félag mitt ásamt öðrum fjár­festum tók þátt í. Að bendla þau kaup við aflands­fé­lög er alfarið rangt. Ég dreg mig í hlé til að koma í veg fyrir að rýrð verði kastað á Fram­sókn­ar­flokk­inn og þau góðu störf sem hann hefur unnið að í tíð þess­arar rík­is­stjórnar. Ég er ekki kjör­inn full­trúi en tel þetta engu að síður rétta ákvörðun."

Keypti í BM Vallá

Hrólfur Ölv­is­son hefur árum saman gegnt ýmsum­ ­trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og verið fram­kvæmda­stjóri flokks­ins frá árinu 2010. Hann sat meðal ann­ars í banka­ráði Bún­að­ar­bank­ans skömmu áður en að sá banki var einka­væddur og í stjórnum ýmissa opin­berra fyr­ir­tækja eða ­stofn­ana fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins í árarað­ir. Hrólfur var til að mynda ­stjórn­ar­for­maður Vinnu­mála­stofn­unar frá árinu 1998 til 2008. Sam­hliða öll­u­m þessum trún­að­ar­störfum var Hrólfur mjög virkur í við­skipt­um, og er enn.

Í umfjöllun Kast­ljóss á mánu­dag kom fram að Hrólfur hefði árið 2003 ­stofnað félagið Chamile Mar­ket­ing á Tortóla í Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Um ­upp­setn­ingu og umsjón félags­ins sá panamíska lög­fræði­stofan Mossack Fon­seca. Hrólfur var með pró­kúru í félag­inu og var ásamt við­skipta­fé­lögum sínum eig­and­i þess.

Á þessum tíma var Hrólfur einn þriggja eig­enda félags­ins Eld­berg ehf. í gegnum annað félag, Jarð­efna­iðnað ehf. Rekstur fyr­ir­tækj­anna snérist um að safna og flytja út vikur­efni. Í Kast­ljósi kom fram að Tortóla­fé­lagið hafi verið notað til að fela fjár­fest­ingu íslensku félag­anna t­veggja í danska félag­inu Scancore ApS. Það var gert með því að Eld­berg lán­að­i ­fé­lag­inu 12 millj­ónir króna vaxta­laust til að kaupa hlut í Scancore. Í lána­samn­ingi milli Eld­bergs og Chamile Mar­ket­ing vegna fjár­fest­ing­ar­inn­ar, sem birtur var í Kast­ljósi á mánu­dag, sagði að til­gangur láns­ins væri „að tryggja að ­nafn Eld­bergs eða móð­ur­fé­lags þess verði ekki skráð í tengslum við fjár­fest­ingar Chamile Mar­ket­ing.” Í íslenskum skatta­lögum eru ákvæði sem ­tak­marka lán sem þessi.

Kast­ljós greindi einnig frá því að á síð­ustu árum, eftir að Hrólfur tók við sem fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi hann tekið þátt í kaupum þriggja stórra fyr­ir­tækja. Árið 2012 keypti hann í félagi við aðra fjár­festa hlut Arion banka í BM Vallá sem síðan var sam­einað Björgun og ­Sem­ents­verk­smiðj­unni. Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, hef­ur ít­rekað ásakað þáver­andi stjórn­völd um marg­háttuð lög­brot sem leitt hafi til þess að hann hafi misst fyr­ir­tækið sitt og undir þann mál­flutn­ing hafa sumir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins tek­ið. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­and­i ­for­sæt­is­ráð­herra, sagði ásak­anir Vig­lundar slá­andi og að það þyrfti að rann­saka þær. Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, hefur einnig gagn­rýnt „Víg­lund­ar­mál­ið“ mjög.

Í sam­tali við Kast­ljós sagði Hrólfur að hann hefði ekki séð á­stæðu til að kynna þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins um þessi tengsl sín, en hann situr í stjórn BM Vallár. Hann hafi hins vegar gert Sig­mundi Dav­íð, for­mann­i Fram­sókn­ar­flokks­ins, grein fyrir tengsl­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár