Verðbólgan komin í 9,9 prósent – Ekki mælst hærri í 13 ár

Fatnaður og skór auk hús­gagna og hús­bún­aðar lækk­aði í verði á milli mán­aða en verð á flug­far­gjöldum hækk­aði umtals­vert. Verð­bólgan hefur ekki mælst jafn mikil síðan í sept­em­ber árið 2009.

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði í júlí um 1,17 pró­sent frá fyrri mán­uði og hefur vísi­talan því hækkað um 9,9 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum. Árs­verð­bólga hefur ekki mælst eins mikil síðan í sept­em­ber árið 2009 fyrir hart­nær 13 árum. Hag­stofan birti upp­færða vísi­tölu neyslu­verðs í dag en hún stendur í 553,5 stigum.

Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hækk­aði um 0,94 pró­sent í júlí og stendur hún í 459,4 stigum. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hefur hækkað um 7,5 pró­sent síð­asta árið.

Fram kemur á vef Hag­stof­unnar að sum­ar­út­sölur hafi haft áhrif til lækk­unar á vísi­töl­una en verð á fötum og skóm lækk­aði um 6,8 pró­sent og verð á hús­gögnum og heim­il­is­bún­aði lækk­aði sömu­leiðis um 2,6 pró­sent.

Hátt í 40 prósent hækkun á flugfargjöldum

Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hækk­aði aftur á móti um 2,4 pró­sent og verð á flug­far­gjöldum hækk­aði um 38,3 pró­sent. Þessi mikla hækkun á verði flug­far­gjalda í júlí er til­komin vegna van­mats á hækk­un­inni í fyrri mán­uði.

„Hækkun á flug­far­gjöldum til útlanda er til­komin vegna verð­hækk­unar í júlí 19,9% (0,43%), en einnig vegna þess að flug­far­gjöld voru van­metin í júní 2022 (0,29%). Hækkun flug­far­gjalda í júní hefði átt að vera 20,4% ef ekki hefði komið til van­mats. Leið­rétt­ingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísi­tölu neyslu­verðs í júní,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

Spá fimm til sex prósenta stýrivöxtum í lok árs

Til að reyna að stemma stigu við verð­bólgu hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt að und­an­förnu. Þeir standa nú í 4,75 pró­sentum og voru hækk­aðir um heilt pró­sentu­stig fyrir mán­uði síðan. Vextir Seðla­bank­ans náði lág­marki sínu í nóv­em­ber árið 2020 þegar þeir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Í maí í fyrra hófst svo vaxta­hækk­un­ar­ferli þegar vextir voru hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig, upp í eitt pró­sent. Síðan þá hafa þeir hækkað upp í áður­nefnd 4,75 pró­sent.

Í hag­spá Lands­bank­ans frá því í maí er því spáð að stýri­vextir muni halda áfram að hækka og verða sex pró­sent við lok árs. Íslands­banki spáir því að vext­irnir verði á bil­inu fimm til sex pró­sent við lok árs í sinni hag­spá sem er einnig frá því í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár