Framsókn „smáflokkur með mikilmennskubrjálæði“

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir ekki eðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lyfti for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins til æðstu met­orða.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er „smá­flokkur með mik­il­mennsku­brjál­æði“ og það er ekki eðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lyfti for­ystu Fram­sóknar til æðstu met­orða. Þetta segir Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. „Nú er mál að linni,“ segir Vil­hjálmur.

Í grein­inni, sem ber heitið „Aldrei kaus ég Framsókn, en alltaf fæ ég Framsókn!“ skrifa hann um flokk­inn og sögu valda­tíma hans. „Það eru und­ar­leg örlög sem þess­ari þjóð eru búin. Það er sama á hvern veg kosið er, alltaf fá menn Fram­sókn­ar­flokk­inn upp úr hatt­inum. Þessi flokkur telur að hann sé jafn stór eða stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sama hvernig kosn­ingar fara.“

Á þess­ari öld hafi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verið smá­flokkur. „Með lýð­skrumi og rang­látri kjör­dæma­skipan tókst flokknum þó að fá jafn mörg þing­sæti og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með 4.000 færri atkvæði! Forseti lýð­veld­is­ins taldi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri sig­ur­veg­ari kosn­inga 2013. Því skyldi for­maður flokks­ins hafa for­ystu um stjórn­ar­myndun! Alveg nýr mæli­kvarði! Enn á ný lét Sjálf­stæð­is­flokkur það yfir sig ganga að lyfta for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins í stól for­sæt­is­ráð­herra.

Þegar sá for­sæt­is­ráð­herra sagði af sér til­nefndi hann eft­ir­mann sinn. Og enn lét Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn það fyrir sig ganga, jafn­vel þótt hin nýút­nefndi for­sæt­is­ráð­herra hefði látið hafa sig hafa það níð­ings­verk að greiða atkvæði með því að draga fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir Landsdóm,“ skrifar Vil­hjálmur. „Nú er mál að linni. Það er ekki eðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lyfti for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins til æðstu met­orða, flokki sem er smá­flokkur með mik­il­mennsku­brjál­æði."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár