Núllstilling Pútíns

Í Rúss­landi hefst í vik­unni þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, sem meðal ann­ars opna á að Pútín for­seti gæti setið tvö kjör­tíma­bil í við­bót, eða allt til árs­ins 2036. Hann sagði í við­tali í gær að hann úti­lok­aði ekki að bjóða sig fram á ný.

Vladimír Pútín, Rússlandsforseti. Hann segist ekki útiloka að bjóða sig fram til forseta á ný árið 2024, geri stjórnarskrárbreytingar honum það kleift.
Vladimír Pútín, Rúss­lands­for­seti. Hann seg­ist ekki úti­loka að bjóða sig fram til for­seta á ný árið 2024, geri stjórn­ar­skrár­breyt­ingar honum það kleift. Mynd: EPA

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti gefur nú sterk­lega í skyn að hann hygg­ist bjóða sig aftur fram sem for­seta, að því gefnu að stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem eru í burð­ar­liðnum í Rúss­landi verði sam­þykktar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem lýkur 1. júlí.

Stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar myndu opna á þann mögu­leika að Pútín, sem verður í emb­ætti til árs­ins 2024, gæti gefið kost á sér á ný og jafn­vel setið á valda­stóli til árs­ins 2036. Þær fela nefni­lega meðal ann­ars í sér „núll­still­ingu“ á fjölda kjör­tíma­bila sem for­set­inn hefur setið.

Í við­tali sem Pútín veitti rúss­neskum rík­is­fjöl­miðli og sýnt var í gær sagði for­set­inn að hann hefði „ekki úti­lokað“ að bjóða sig fram á ný, færi svo að kjós­endur sam­þykktu stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar. Hann bætti því við að ef þær yrðu ekki sam­þykktar yrði senni­lega uppi fótur og fit í rúss­nesku stjórn­kerfi, þar sem allir á æðstu stöðum myndu fara að huga að því hver ætti að taka við af honum sem for­seti, í stað þess að geta ein­beitt sér að því að vinna Rúss­landi til heilla.

„Við þurfum að láta verkin tala, en ekki leita að arf­tökum,“ sagði Pútín í við­tal­inu, sem hefur vakið nokkra athygli, enda hefur Pútín til þessa talað með þeim hætti að hann hyggi ekki á að fram­lengja valda­tíð sína, þó mörgum hafi grunað að svo væri. Sjá má í mynd­skeið­inu hér að neðan hvað Steve Ros­en­berg, frétta­rit­ari BBC í Moskvu, fann á síðum rúss­neskra blaða um þessi ummæli Pútíns í dag.

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar hefst 25. júní og lýkur 1. júlí, sem áður segir. Samkvæmt frétt Reuters er búist við því að breyt­ing­arnar verði sam­þykktar af almenn­ingi í atkvæða­greiðsl­unni.

Pútín er orð­inn 67 ára gam­all og tók við af Boris Jeltsín sem for­seti á gaml­árs­dag árið 1999. Síðan þá hefur hann verið alltum­lykj­andi í rúss­neskum stjórn­málum og flakkað á milli emb­ættis for­seta og for­sæt­is­ráð­herra.

Einungis 59 prósent nú ánægð með Pútín

Hann hefur þó sjaldan notið jafn­lít­illar hylli á meðal almenn­ings og nú. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könnun óháða könn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Levada-mið­stöðv­ar­innar, sem fram­kvæmd var seint í maí, segj­ast 59 pró­sent Rússa sáttir með emb­ætt­is­færslur hans, en 34 pró­sent eru óánægðir með for­set­ann.

Viðbrögð rúss­neskra yfir­valda við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum hafa eflaust ein­hver áhrif þar á, en þau hafa þótt slæ­leg og margir Rússar upp­lifa nú fjár­hags­þreng­ingar, sem voru þó útbreiddar fyrir.

Oliver Carroll, frétta­rit­ari breska blaðs­ins Independent í Moskvu, segir í umfjöllun sinni um málið að fáir trúi því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar muni fara heið­ar­lega fram.

Hann bendir á að í síð­ustu viku hafi blaða­maður á útvarps­stöð­inni Dozhd flett ofan af svindli varð­andi raf­rænar kosn­ingar, sem fól í sér að eldri borg­arar í Moskvu voru skráðir til þess að kjósa raf­rænt án þeirrar vit­neskju, gegn greiðslu til þeirra sem skráðu þá.

Yfirvöld brugð­ust við þessu með því að senda lög­reglu­þjóna í heim­sókn á útvarps­stöð­ina síðla á mið­viku­dags­kvöld.

Stjórn­ar­and­stæð­ingar í Rúss­landi eru að sögn Carroll ekki sam­mála um hvernig skuli mót­mæla stjórn­ar­skrár­breyt­ing­unum, sem sagðar eru ólýð­ræð­is­legar. Sumir vilja hunsa þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una alfarið en aðrir vilja hvetja fólk til þess að mæta á kjör­stað og mót­mæla með atkvæðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár