Stærðfræði notuð sem vopn gegn launamun kynjanna

Margrét Vilborg Bjarna­dóttir, stofnandi íslenska sprota­fyrir­tækisins PayAnalytics, notar stærð­fræði sem vopn gegn launamun kynjanna. Hún hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrir­tækjum að lækka launabil sitt.

Margrét Vilborg Bjarna­dóttir, stofnandi íslenska sprota­fyrir­tækisins PayAnalytics, hlaut nýverið aðal­verðlaun alþjóð­legs þings Heims­samtaka frumkvöðla- og uppfinninga­kvenna (GWIIN). Hún ræddi við Kjarnann um hvernig stærð­fræðin getur verið notuð sem vopn gegn launamun kynjanna, hvernig hægt sé að hjálpa fyrir­tækjum að lækka launabil sitt, ássamt því að ræða um karllægu akademíuna í Banda­ríkjunum.

Margrét kynnti fyrir þingi GWIIN nýja hugbúnaðar­lausn PayAnalytics sem hjálpar fyrir­tækjum að framkvæma launa­greiningar og skoða áhrif launa­ákvarðana til að minnka launabil kynjanna með aðgerðar­áætlun og kostnaðar­greiningu. Hugbúnaðurinn hjálpar fyrir­tækjum að halda launa­bilinu lokuðu með því að gefa ráðgjöf hvað varðar nýráðningar og launa­breytingar.

Margrét segir að á þingi GWIIN hafi margar áhuga­verðar hugmyndir komið fram. Til að mynda voru þar konur frá Finnlandi sem hafi hannað fjöl­skynjunar (multi-sensory) kynningar til að kynna fyrir stjórn­völdum hvernig væri að búa í flóttamanna­búðum. Einnig voru konur frá Indlandi með hugbúnað fyrir börn í grunn­skólum í nýsköpun, jafnframt hafi önnur íslensk kona verið á þinginu, hún Kristín Gunnars­dóttir sem vinni með íslenska ull blandaða við silki.

Stærðfræðilíkön mæla launabil

Margrét segir hjartað í hugbúnaðinum vera fyrirtæki sem sé með launabil og viðbrögð þess við því. „Áður en við hönnuðum þennan hugbúnað voru fyrirtæki að mæla launa­muninn, kannski fimm prósent eða tíu prósent, en enginn gat svarað hvað svo?,“ segir Margrét. Í kjölfarið hafi þau farið að þróa stærð­fræði til þess að taka ákvarðanir um hvað þurfi að gera og hversu mikið þurfi að fjárfesta til að loka launa­bilinu. „Þú ert í sjö prósentum en vilt koma niður í fjögur prósent [launabil] á næstu mánuðum, hvað heldurðu að það kosti? Við erum að þróa þetta til að tækla vanda­málið,“ segir hún.

Margrét notar stærð­fræði við að reikna út vandann og hvaða ákvarðanir séu bestar út frá niður­stöðunum. „Þetta byggir rauninni mest á tölfræði og bestun,“ segir hún. Hún notar aðhvarfs­greiningu við útreikninginn. „Það eru sem sagt stærðfræði­líkön. Aðferða­fræðin að mæla launa­bilið er þekkt [...] allir sammála um það. Hvernig eigi að loka launa­bilinu sé hins vegar ósvarað. Það sem við gerðum er að taka þess aðferða­fræði til að mæla launabil og grófum inn til þess að mæla launa­bilið sem kallast aðhvarfs­greining. Við tættum í sundur stærð­fræðina til að skilja áhrif hvers starfs­manns á launa­bilið í fyrir­tækjum. Hver hefur mestu áhrif á launa­bilið? Hverjum er verið að mismuna meira en öðrum?“ segir Margrét

Byrjaði allt sem rannsóknarverkefni

Margrét er einnig lektor við Viðskipta­háskólann í University of Maryland og byrjaði PayAnalytics sem rannsóknar­verkefni. „Framkvæmda­stjóri í bænum var búinn að mæla átta prósent launabil og allir ætluðu að vera meðvitaðir næstu tólf mánuði [...] ári síðar hafði ekkert breyst og hann spurði hvernig tækla ég vanda­málið? Enginn hafði svar við þessari spurningu og ég hugsaði sem stærðfræðinörd að þetta er eitthvað sem ég gæti tæklað með þessari aðferða­fræði.“

Ef við erum ekki á stöð­ugu varð­bergi þá koma launa­bilin skríð­andi til baka

Margrét segir eitt að loka launa­bilinu og annað að halda því lágu. „Ef þú ert ekki meðvitaður þá kemur bilið skríðandi til baka.“ Margrét segir PayAnalytics nú hafa bætt í lausnina sína aðferðum að finna út góð laun fyrir nýjan starfs­mann til að innleiða í fyrirtæki til að halda þessari vegferð áfram.

„Það er búið að vera ótrúlega skemmtilegt að vinna með mannauðs­stjórum úti um allan bæ. Þegar maður ræðir við mannauðs­fólk þá er það með allt fólk í hausnum á sér. Þótt þú sért með frábæran mannauðs­ráðgjafa, þegar verið að taka þessa launa­ákvarðanir og þú ert ekki með gögnin fyrir framan þig þá myndast þessi ómeðvitaða hlut­drægni sem hefur þá áhrif á þessar ákvarðanir. Þess vegna verða þessi launabil til. Ef við getum hjálpað þér með þessu tóli, að setja þetta í samhengi, getum við hjálpað þér að halda því niðri og jafnvel í núlli.“

Margrét segir drauminn að koma góðum ákvörðunar­tólum í hendurnar á mannauðs­stjórum „í fyrsta lagi til þess að ráðstafa launabili, þá er nauðsynlegt að vera með góðar áætlanir, skilja vanda­málið og númer tvö, ef við ætlum að ná þessum árangri, hvernig höldum við okkur vakandi? Það gerum við með því að vera með rauntíma­gögn og testa launa­ákvarðanir áður en við fram­kvæmum þær.“

„Ef Jóna eða Jón koma til þín og segjast munu hætta ef þau fá ekki hærri laun þá er hægt að slá það inn og sjá hvaða áhrif það hefur á launa­bilið og launa­strúktúrinn. Þá geturðu tekið ákvörðun hvort þú þetta sé góð ákvörðun eða ekki,“ segir Margrét. Hún segir að sama hversu mikið maður vilji laga launa­bilið ef að „við erum ekki á stöðugu varðbergi þá koma launa­bilin skríðandi til baka.“

Margrét er til vinstri á myndinni.
Margrét er til vinstri á mynd­inni.

Ótrúleg orka sem fer í að standa í stappi

„Ég hef alltaf verið jafnréttis­kona og þurft að berjast áfram í karllægu umhverfi, sérstak­lega akademíunni í Ameríku. Maður hefur oft rekist á veggi og glerþök og þurft að standa í stappi. Ég er mikil jafnréttis­kona og þurft að takast á við alls konar vitleysu í þessum málum,“ segir hún.

Hún segir mikla orku starfs­manna fara í að velta sér yfir því hvort þau fái sanngjörn laun. „Ef við setjum það í samhengi, ef þú rekur fyrirtæki, að starfs­menn geti verið þess full­vissir að þeir fái sanngjörn laun annars fer rosaleg orka hjá þeim að pæla hvort þau fái sanngjörn laun,“ segir Margrét. „Það er ótrúleg orka sem fer í að standa í stappi og þú vilt frekar að starfs­menn eyði tíma sínum í starfið en að standa í stappi.“ Hún segir að í þeim störfum þar sem mikil samkeppni er um starfs­fólk séu þau fyrirtæki oft komin lengst í að lágmarka kynbundinn launamun því annars fari starfs­fólkið einfald­lega annað.

Margrét segir skemmtilegast við vinnu sína hversu miklir snillingar mannauðs­fólk sé til hópa og að það sé afar gefandi að vinna með þeim. Það sem komi hafi mest á óvart sé hversu vel hafi gengið. „Ef maður byrjar með startup veit maður ekkert hverju maður á von,“ segir Margrét. Hins vegar hafi hún mætt miklum velvilja og að enn sé PayAnalytics skemmtilegt ævintýri. „Það er mest gefandi að sjá rannsóknar­verkefni verða að einhverju sem hefur áhrif um hvernig ákvarandir eru teknar,“ bætir Margrét við.

Fikra sig inn á erlenda markaði

„Við erum að fikra okkur inn á erlenda markaði, það er stóra áherslan núna,“ segir Margrét aðspurð um hvað sé framundan hjá PayAnalytics. „Það hefur gengið rosa vel og hugbúnaðurinn er kominn á 5 tungumál. Hann er kominn inn á lista hjá þýskum ráðuneytum yfir hugbúnaðar­lausnir og við erum að taka fyrstu skrefin að kynna okkur þetta í Skandinavíu og reyna að koma á fundum og samböndum,“ segir hún. „Við fengum líka markaðs­styrk frá tækni­þróunar­sjóði og sú vinna er til að sækja erlenda markaði og sú vinna hefst á morgun.“

Maður hefur oft rek­ist á veggi og gler­þök og þurft að standa í stappi. Ég er mikil jafn­rétt­is­kona og þurft að takast á við alls konar vit­leysu í þessum málum.

„Við fengum líka vaxta­styrk frá tækni­þróunar­sjóði fyrr rúmu hálfu ári sem var algjör vítamín­sprauta og breytti öllu fyrir okkur. Sá styrkur hefur stutt ótrúlega vel við bakið á okkur,“ segir Margrét. „Þegar við byrjuðum á Íslandi fengum við með okkur Orkuveitu Reykja­víkur og VÍS, til að vera viss um að við værum að leysa rétt vandamál og svara réttu spurningunum. Löggjöfin er aðeins mismun­andi [á milli landa]. Það þarf alltaf aðeins að aðlaga kerfið að markaði. Við reynum að finna samstarfs­aðila til að testa kerfið miðað við þinn raun­veruleika og fyrsti svoleiðis kúnninn er í Nýja-Sjálandi. Það er fyrirtæki sem er bæði með starfsemi í Nýja-Sjálandi og Ástralíu og það er fyrsti þróunar­kúnninn okkar.“ Margrét segir að framundan séu spennandi tímar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár