Trump og Pútín segja fréttir af samskiptum falsfréttir

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir Rúss­lands­hneykslið vera til­raun falskra fjöl­miðla til að hylma yfir mis­tök sem Hillary Clinton gerði í sinni kosn­inga­bar­áttu. Hann við­ur­kennir engu að síður að gögnum hafi verið lekið.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir fréttir banda­rískra miðla, þess efnis að starfs­fólk fram­boðs hans hafi verið í sam­bandi við rúss­neska leyni­þjón­ustu­menn end­ur­tekið á und­an­förnu ári, vera sam­sær­is­kenn­ingar og blint hatur falskra fjöl­miðla.

Tengsl fram­boðs hans við Rússland sé ein­göngu til­raun til þess að hylma yfir þau fjöl­mörgu mis­tök sem Hillary Clinton og hennar fram­boð hafi gert í kosn­inga­bar­átt­unni. Þetta kemur allt fram á Twitter-síðu for­set­ans. Hann talar þó einnig um að upp­lýs­ing­arnar, sem koma fram í fréttum New York Times og Washington Post í morgun, séu illa fengnar. Það sé raun­veru­legi skandall­inn í mál­inu og sé mjög óam­er­ískt.

Rússnesk stjórn­völd hafa einnig sagt fréttir New York Times og Washington Post vera fals­fréttir.

Í New York Times í morgun er vitnað til fjög­urra núver­andi og fyrr­ver­andi emb­ætt­is­manna í Banda­ríkj­unum vegna sam­skipta milli fólks sem teng­ist Trump og rúss­neskra leyni­þjón­ustu­manna, en fyrir liggja gögn um sím­töl­in, tíma­setn­ingu þeirra og úr hvaða tækjum var hring­t. Ekki liggja hins vegar fyrir upp­lýs­ingar um hvert efni sím­tal­anna var og þá hefur Hvíta húsið ekki stað­fest frétt­irn­ar, en þeim hefur heldur ekki verið hafn­að.

Mich­ael Flynn sagði í gær af sér sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir að hann við­ur­kenndi að hafa greint vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, rang­lega frá efni sam­tala sem hann átti við sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um, Ser­­­gei Kis­lyak. Hann ræddi meðal ann­ars við hann við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum, en því hafði hann áður neit­að.

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI hefur Flynn nú til rann­sóknar vegna tengsla hans við Rússa og þeirra sam­skipta sem hann átti við Rússa.

Sam­kvæmt New York Times og Was­hington Post skoða banda­rískar leyni­þjón­ustur nú hvort fram­boð Trumps hafi unnið með Rússum að tölvu­árásum á Demókra­ta­flokk­inn, þar á meðal tölvu­pósta Hill­ary Clinton og kosn­inga­stjóra henn­ar, með það fyrir augum að ýta undir líkur á því að Trump ynni í kosn­ing­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár