Saksóknari hafnar öllum ásökunum Hreiðars Más

Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari og áður sér­stakur sak­sókn­ari, hafnar öllum ásök­unum Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, um að starfs­menn emb­ætt­is­ins hafi leynt sönn­un­ar­gögnum í máli gegn Kaup­þings­mönnum. Þetta kemur fram í við­tali við Ólaf Þór á RÚV.

Líkt og greint var frá í gær hefur Hreiðar Már farið fram á lög­reglu­rann­sókn á starfs­háttum sér­staks sak­sókn­ara. Hann full­yrðir að starfs­menn þar hafi leynt mik­il­vægum sönn­un­ar­gögnum í máli gegn sér, sem hefði mögu­lega leitt til sýknu. Hreiðar Már hefur ítrekað gagn­rýnt sak­sókn­ara fyrir að veita ekki aðgang að öllum gögnum sem lög­regla hefur úr tölvu­kerfi Kaup­þings.

Ólafur seg­ist ekki vilja tjá sig um málið efn­is­lega en segir: „Við höfnum öllum ásök­unum á hendur starfs­mönnum emb­ætt­is­ins. Og nú er þetta mál í reynd rekið fyrir Hæsta­rétti og ég reikna með að þar verði tekið á þess­ari máls­á­stæðu og öðrum í tengslum við úrlausn Hæsta­réttar á þessu máli.“ Hann segir að nið­ur­staðan í þessu muni fást þar, þessum atriðum verði haldið til haga, vænt­an­lega mun verj­endur tefla þessu fram og Hæsti­réttur muni þá skera úr um hvort hann horfi til þessa eða ekki.

Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari segir að málið sé til með­ferðar hjá emb­ætt­inu og ekki sé búið að ákveða hvort það verður rann­sakað eða fellt niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár