Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist með smit í gærkvöldi

Hagkaup segja frá því að starfs­maður sinn hafi greinst með COVID-19 í gær­kvöldi. Almanna­varnir svara því ekki hvort sá ein­stak­lingur var sá eini sem greind­ist jákvæður fyrir veirunni í gær eða ekki.

Búið er að sótthreinsa snertifleti í verslun Hagkaups í Garðabæ, samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins.
Búið er að sótt­hreinsa snertifleti í verslun Hagkaups í Garðabæ, sam­kvæmt til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Fjárfestakynning Haga

Starfs­maður Hagkaups í Garðabæ greind­ist jákvæður fyrir COVID-19 á mánu­dags­kvöld. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hagkaup, sem birt­ist á Facebook í morgun. Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra gefur ekki upp hvort fleiri smit greindust í gær.

Yfir þús­und manns fóru í skimun í gær eftir að breska afbrigði veirunnar greind­ist úti í sam­fé­lag­inu um helg­ina.

„Umræddur starfs­maður vinnur á nótt­unni við áfyll­ingar og var við störf aðfara­nótt laug­ar­dags og sunnu­dags sl. helgi. Starfs­mað­ur­inn var lítið sem ekk­ert í sam­skiptum við við­skipta­vini, bar grímu við störf sín og fór eftir þeim sótt­varn­ar­reglum sem gilda á vinnu­staðnum,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Hagkaup, þar sem fram kemur að umfangs­mikil sótt­hreinsun á snerti­flötum í versl­un­inni hafi átt sér stað.

„Þeir starfs­menn sem unnu á sömu vöktum og umræddur starfs­maður um helg­ina verða sendir í skimum í dag og munu halda sig heima þar til rakn­ing­arteymi almanna­varna hefur gefið grænt ljós á end­ur­komu. Öll við­brögð við þess­ari stöðu eru unnin í nánu sam­starfi við almanna­varnir,“ segir í til­kynn­ingu sem Sigurður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri Hagkaups skrifar undir.

Sem áður segir fást ekki upp­lýs­ingar frá almanna­vörnum um það hvort þetta var eina smitið sem greind­ist í gær­kvöldi eða ekki, en tölur um hversu mörg smit greindust verða birtar kl. 11 á vefnum Covid.is.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár