Meira en 2.000 hugmyndir í Gullegginu á níu árum

Skila­frestur hug­mynda í stærstu frum­kvöðla­keppni lands­ins rennur út 20. jan­úar. Fjölmörg far­sæl fyr­ir­tæki hafa orðið til í keppn­inni í þau níu skipti sem hún hefur verið haldin.

Vinnusmiðjur Gulleggsins hefjast í lok þessa mánaðar þegar umsóknarfresturinn í keppnina rennur út 20. öld.
Vinnu­smiðjur Gul­leggs­ins hefj­ast í lok þessa mán­aðar þegar umsókn­ar­frest­ur­inn í keppn­ina rennur út 20. öld.

Gul­leggið, stærsta frum­kvöðla­keppni lands­ins, er að fara af stað í níunda sinn á jafn mörgum árum. Hægt er að senda inn hug­myndir til 20. jan­úar næst­kom­andi en úr hópi umsókna verða tíu hug­myndir frum­kvöðla valdar sem verða kynntar fyrir fjár­festum auk þess sem sig­ur­veg­ar­inn í keppn­inni hlýtur Gul­leggið. Lesendur Kjarnans fá jafn­framt tæki­færi til að kjósa sína áhuga­verð­ustu hug­mynd hér á síð­unni.

Icelandic Startups (áður Klak Innovit) hefur umsjón með keppn­inni. Gul­legg­inu hefur borist um 2.000 hug­myndir frá því að keppnin hófst. Keppnin er opin öllum og hægt er að senda inn hvaða hug­mynd sem er. Stjórn Gul­leggs­ins hefur þess vegna valið umræðu­táknið #eng­ar­hindr­anir fyrir keppn­ina. Fróðlegt er að skoða tíst frá fyrr­ver­andi kepp­endum og öðrum sem fylgst hafa með keppn­inni.

Vinnu­smiðjur hug­mynda­smið­anna hefj­ast eftir að umsókn­ar­frestur rennur út en í lok þeirra skila þátt­tak­endur inn við­skipta­á­ætlun. Rýni­hópur mun svo velja tíu bestu hug­mynd­irnar. Teymin tíu fá þjálfun í fram­komu og kynna svo áætl­anir sínar fyrir fjár­festum á loka­degi Gul­leggs­ins 12. mars.

Fjöldi fyr­ir­tækja hefur náð fram­úr­skar­andi árangri eftir þátt­töku í Gul­legg­inu. Þar á meðal má nefna Meniga, Clara, Karolina Fund, Controlant, Pink Iceland, Radient Games og CrowBar Protein, svo fátt eitt sé nefnt. Svava Björk Ólafs­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Icelandic Startups og umsjón­ar­maður Gul­leggs­ins, segir keppn­ina löngu orðna gæða­stimpil á við­skipta­hug­myndir. „Gul­leggið stuðlar að sköpun nýrra starfa og verð­mæta fyrir Íslenskt sam­fé­lag. Það sann­ast sem helst með því að horfa til fyrri Gul­leggja sem náð hafa góðum árangri.“

Hægt er að fylgj­ast með íslensku nýsköp­un­ar­sen­unni á Watchbox í glugg­anum hér að neðan eða í Watchbox-app­inu. „Við höfum ákveðið að hvetja frum­kvöðla til að deila myndum og mynd­böndum á rásinni #icelandicstartups á Watchbox,“ segir Svava. Einnig er hægt að fylgj­ast með mark­aðsteymi Gul­leggs­ins á nova-rásinni á Snapchat í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár