„Fyrir hvern er jafnréttisparadísin Ísland?“

Jafnrétti kynjanna er hvergi meira en á Íslandi, sem situr í toppsæti á kynja­jafnréttis­lista World Economic Forum ellefta árið í röð. Þó er enn þá langt í land áður en Íslendingar geta státað af fullkomnu kynja­jafnrétti.

Hinn fordæma­lausi COVID-19 faraldur er álags­valdur í formi ólaunaðrar vinnu og umönnunar, sem er að mestu leyti á herðum kvenna. Heilbrigðis­kerfið er einnig borið uppi af konum, sem eru 85% starfs­manna. Plánetan okkar hitnar með hverju árinu, jöklar landsins eru að bráðna og samkvæmt Sameinuðu þjóðunum eru konur 70% þeirra sem eru á flótta sökum hamfara­hlýnunar á heimsvísu. Í ljósi þessa, auk komandi efnahags­samdráttar sem spáð er sökum kóróna­faraldursins, lýsa fjórar konur því hvað þær telja mikil­vægast að hafa í huga á þessum ágæta kven­réttinda­degi, 105 árum eftir að kosninga­réttur kvenna var leiddur í lög á Íslandi.

Konurnar sem um ræður eru þær Brynhildur Heiðar- og Ómars­dóttir, framkvæmd­stýra Kven­réttinda­félags Íslands, Claudia Ashonie Wilson, lögmaður og fyrrum vara­formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Halla Gunnars­dóttir, framkvæmda­stjóri ASÍ og Eliza Reid forsetafrú, sem vakti athygli þegar hún sagðist ekki vera handtaska eigin­manns síns. 

Verðum að heyra raddir kvenna oftar 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár