Sex árum eftir að lög um kynjakvóta tóku gildi var markmiðum þeirra enn ekki náð

Samkvæmt lögum sem tóku gildi haustið 2013 ber að tryggja að hlut­fall hvors kyns í stjórnum sé ekki undir 40 pró­sent. Um síð­ustu ára­mót var hlut­fall kvenna í stjórnum stærri fyr­ir­tækja 34,7 pró­sent.

Konum hefur fjölgað við stjórnarborð íslenskra fyrirtækja á undanförnum árum. Þær eru samt sem áður færri en lög gera ráð fyrir.
Konum hefur fjölgað við stjórn­ar­borð íslenskra fyr­ir­tækja á und­an­förnum árum. Þær eru samt sem áður færri en lög gera ráð fyrir. Mynd: 123rf.com

Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja hefur aldrei náð því að vera í sam­ræma við lög sem sam­þykkt voru árið 2010 um kynja­kvóta. Þau tóku gildi í sept­em­ber 2013. Samkvæmt lög­unum ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­menn að tryggja að hlut­fall hvors kyns í stjórnum sé ekki undir 40 pró­sentum. Árið 2007 hafði það hlut­fall verið 12,7 pró­sent.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu, sem þáver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra lagði fram, sagði að mark­mið þess værið að stuðla að jafn­ari hlut­föllum kvenna og karla í áhrifa­stöðum í hluta­fé­lögum og einka­hluta­fé­lögum með auknu gagn­sæi og greið­ari aðgangi að upp­lýs­ingum“.

Í árs­lok 2017 var það 32,6 pró­sent. Ári síðar var það orðið 33,6 pró­sent og um síð­ustu ára­mót var að 34,7 pró­sent, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Rúmum sex árum eftir að lögin um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku gildi hafði mark­mið lag­anna aldrei náðst.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja með færri en 50 laun­þega er enn lægra, eða 26,1 pró­sent, og hækk­aði um 0,2 pró­sentu­stig frá fyrra ári.

Hlutfall kvenna í stöðu fram­kvæmda­stjóra hækk­aði lít­il­lega á milli ára og er nú 23 pró­sent. Hlutfall kvenna í stöðu stjórn­ar­for­manna var 24,3 pró­sent í lok árs 2019.

Karlar stýra þorra peninga á Íslandi

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjár­magni á Íslandi eru árlega frá 2014. Sú síð­asta var birt í byrjun mars síð­ast­lið­ins og var sú sjö­unda sem fram­kvæmd hefur verið.

[adspot]Í ár náði hún til 96 æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, raf­eyr­is­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða.

Nið­ur­staðan var sú að 83 þeirra eru karlar en þrettán eru konur. Konum fjölg­aði um þrjár á milli ára en körlum um fjóra, vegna ýmissa breyt­inga sem orðið höfðu á eft­ir­lits­skyldum aðilum á árinu. Hlutfall kvenna á meðal helstu stjórn­enda fjár­magns á Íslandi fór með því úr 11,1 pró­sent í 13,5 pró­sent milli áranna 2019 og 2020.

[links]Þessi hópur sem fellur undir úttekt­ar­skil­yrðin stýrir sam­tals þús­undum millj­arða króna og velur í hvaða fjár­fest­ingar þeir pen­ingar rata hverju sinni.

Frá því að Kjarninn gerði úttekt sína fyrst hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað um helm­ing, farið úr sex í tólf. Körlunum hefur hins vegar líka fjölgað, alls um tvo, og eru nú líkt og áður sagði 84. Og hlut­falls­lega bilið milli þeirra ekki lækkað sem neinu nemur.

Ef 16 af stærstu einka­fjár­festum lands­ins eru einnig taldir með þá breyt­ist myndin aðeins. Körlunum fjölg­aði í 100 en kon­urnar voru 16. Hlutfall kvenna fer því upp í 16 pró­sent.

Hægt er að lesa úttekt Kjarnans hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjakvóti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár