Ísland er „ofboðslega dýrt“

Drauma­ferða­lagið hennar Ritu var til Íslands. Willem, kærast­inn hennar, gaf henni ferða­lagið í afmæl­is­gjöf. Þau hafa verið á flakki um Ísland í tvær vikur og kunna vel við land og þjóð, þó það sé heldur dýrt hér fyrir þeirra smekk.

Willem og Rita hafa verið á ferðalagi á Íslandi undanfarnar tvær vikur. Þau ætla að fara út að borða í Reykjavík í kvöld. Það verður í fyrsta sinn í ferðinni sem þau leyfa sér slíkan munað, endan segja þau Ísland vera ofboðslega dýrt land fyrir ferðalanga
Willem og Rita hafa verið á ferða­lagi á Íslandi und­an­farnar tvær vikur. Þau ætla að fara út að borða í Reykja­vík í kvöld. Það verður í fyrsta sinn í ferð­inni sem þau leyfa sér slíkan munað, endan segja þau Ísland vera ofboðs­lega dýrt land fyrir ferða­langa Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Við byrj­uðum í Keflavík fyrir tveimur vikum síðan,“ segja Rita og Willem, tveir ferða­langar sem voru staddir á Drangs­nesi þegar blaða­maður Kjarnans átti þar leið hjá. Ferða­manna­tíma­bilið á Drangs­nesi er ekki nærri því byrjað, þó gisti­heim­ilið sé opnað ber­ist bók­anir um vet­ur­inn. Rita og Willem voru þess vegna einu ferða­menn­irnir á gisti­heim­il­inu á skír­dag.

„Þetta hefur verið draum­ur­inn minn í langan tíma að koma til Íslands og Willem gaf mér þessa ferð í afmæl­is­gjöf,“ segir Rita og Willem er fljótur að benda á í gríni að þetta sé síð­asta afmæl­is­gjöfin til hennar í tíu ár, svo mikið hafi hún kostað.

Þau hafa ferð­ast á bíla­leigu­bíl eftir hring­veg­inum und­an­farnar tvær vikur og hafa gist á gisti­heim­ilum víða um landið. Þau fljúga heim til Belgíu í dag þar sem þau búa. Rita er lett­nesk en Willem er Belgi.

Willem og Rita ákváðu að koma í apríl, á meðan það er enn vetur á Íslandi, því þá myndu þau síður lenda í vand­ræðum vegna mann­mergðar og upp­bók­ana. „Okkur þykir skemmti­legra að ferð­ast með lítil plön. Við viljum ákveða hvar við gistum næstu nótt á ferð­inni. Ef við myndum koma um sumar þyrftum við að skipu­leggja það í þaula,“ segir Rita.

„Þetta hefur verið geggjað. En maður finnur líka fyrir krafti nátt­úr­unnar,“ segir Rita. „Ég vissi alltaf af veðr­inu og hélt að við myndum alltaf ráða við það. En svo var bara hellidemba framan af ferð­inni. Hún hætti aldrei og við vorum sífellt renn­andi blaut og okkur var kalt. Þá fer maður að missa áhug­ann á þessum helstu stöðum. Og maður hugsar: „Annar foss! Komm on!“

„En þegar maður kemst í gegnum þessar til­finn­ingar – þegar nátt­úran er búin að brjóta þig niður – og maður áttar sig á að allt snýst um veðrið hér þá getur maður notið þess. Við höfum verið mjög heppin með veður síðan þá.“

Rita seg­ist alveg höndla snjó­inn enda komi hún frá Lett­landi þar sem hún lærði að aka í snjó. „Ég veit hvernig snjór er og það er ekk­ert svo slæmt að lenda í honum.“

Mun dýrara hér en þau héldu

Willem segir ferð­ina hafa verið mjög áhuga­verða. „Ég kann vel við landið. Ég hef gaman af úti­ver­unni, fjall­göng­unum og ferða­lag­inu. Það hefur einnig verið auð­velt að ferð­ast hér. Við höfðum fullt að skoða og það var ein­falt að finna allt sem okkur lang­aði að sjá. Og allar upp­lýs­ingar var auð­velt að nálg­ast, eins og hvernig færðin á veg­unum yrði.“

Spurð hvers vegna þau ákváðu að koma á Drangs­nes segj­ast þau hafa langað til þess að koma á Vest­firði en að þau hafi heyrt að það væri erf­ið­ara á vet­urnar. „Svo frá hring­veg­inum var auð­veld­ast að koma hingað,“ segir Willem. „Fyrir mig er svo­lítið merki­legt að koma í þessa litlu bæi því í Belgíu eru engir bæir, bara borgir.“

Rita segir að þau hafi reynt að kom­ast upp með að gera ferð­ina sem ódýrasta. Það hafi hins vegar reynst nokkuð erfitt að sam­ræma vænt­ingar við veskið. „Við eigum ekki enda­lausan pen­ing. Við ætl­uðum að gista í heimagist­ingum, eins og AirBnB, en það kom í ljós að það væri í raun mun dýr­ara en að vera á gisti­heim­ilum,“ segir Rita. „Okkur finnst skemmti­legra að vera í heimagist­ingum því þá hittir maður fólkið sem býr hérna. Alls staðar ann­ars staðar eru bara túristar. Á gisti­heim­il­unum hafa heima­menn­irnir ekki tíma fyrir túristana og maður getur ekki rætt við það.“

Hafiði blandað miklu geði við heima­fólk?

„Fólkið hér er vina­legt en það er ekki eins og við höfum hitt marga. Sam­skiptin eru yfir­leitt snubb­ótt, okkur er bara vísað til her­bergis og þá er það búið,“ segir Willem og þau hlæja.

Rita segir það samt vera leið­in­legt því ferða­lagið snú­ist einnig um að hitta fólk. „Fyrir mér snýst ferða­lagið raun­veru­lega meira um að hitta fólk. En hér sér maður eig­in­lega ekki fólkið, hér snýst allt um nátt­úr­una og minna um fólkið. Kannski er það bara hluti af Íslandi og Íslands­upp­lifun­inni...“

Rita og Willem ræddu mikið um að þeim fynd­ist Ísland dýrt. „Ekki svo­lítið dýrt, heldur ofboðs­lega dýrt,“ leið­réttir Rita þegar spurn­ingin um verð­lagið er borin upp. Þau segj­ast vera með með­al­laun fyrir sína vinnu í Belgíu en þegar þau koma hingað verði þau að lifa veru­lega spar­lega.

„Okkur þykir eðli­legt að geta farið út að borða einu sinni á dag þegar við ferð­umst,“ útskýrir Rita. „Hér er það bara ekki mögu­legt. Svo við höfum eldað mat sjálf á þeim gisti­heim­ilum þar sem hefur verið aðstaða til þess. Við ætlum samt að leyfa okkur að fara út að borða síð­asta kvöldið í Reykja­vík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár