83 prósent kjósenda Framsóknarflokks ánægðir með framboð Ólafs Ragnars

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur lang­mests stuðn­ings meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Yfir 70 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks eru líka ánægðir með ákvörðun hans um fram­boð. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Framboð Ólafs Ragnars Grímssonar nýtur langmests stuðnings meðal Framsóknarmanna.
Framboð Ólafs Ragnars Gríms­sonar nýtur lang­mests stuðn­ings meðal Fram­sókn­ar­manna. Mynd: Birgir Þór

Lang­flestir kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru ánægðir með ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms­sonar um að gefa kost á sér til end­ur­kjörs sem for­seti Íslands. Fæstir kjós­endur Sam­fylk­ingar og Pírata eru ánægðir með fram­boðið. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Kjósendur flokksins og forystan fagnar

Ólafur nýtur mests stuðn­ings meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. 83 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks segj­ast vera ánægðir með fram­boð Ólafs og 71 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks. 26 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna eru ánægðir með fram­boðið, 23 pró­sent kjós­enda Pírata og 22 pró­sent Sam­fylk­ing­ar­fólks. 30 pró­sent þeirra sem segj­ast myndu kjósa aðra flokka eru ánægðir með ákvörðun Ólafs að bjóða sig fram.

Bæði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og starf­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Ásmundur Einar Daðason þing­flokks­for­maður hafa lýst yfir ánægju sinni með fram­boð Ólafs Ragnars.

Meirihluti kjósenda annarra flokka óánægðir

71 pró­sent stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar eru ánægðir með ákvörð­un­ina og 27 pró­sent þeirra sem styðja hana ekki. Af þeim sem eru óánægðir eru flestir kjós­endur Pírata, eða 65 pró­sent. Svo koma Vinstri græn, með 63 pró­sent, Sam­fylk­ing með 61 pró­sent og aðrir flokkar með 60 pró­sent. 19 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru óánægðir með ákvörð­un­ina og 10 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks.

Af þeim sem kusu Ólaf í síðustu for­seta­kosn­ingum eru 75% ánægð með ákvörðun hans um að gefa kost á sér aftur en mun færri meðal þeirra sem kusu aðra fram­bjóðendur síðast eða kusu ekki. 82 pró­sent þeirra sem kusu Þóru Arn­órs­dóttur í síð­ustu kosn­ingum eru óánægðir með ákvörð­un­ina.

Munur á afstöðu eftir búsetu

Sé heildin skoðuð eru afar skiptar skoð­anir um þá ákvörðun Ólafs Ragn­ars um að bjóða sig aftur fram til for­seta. Sam­kvæmt Þjóð­ar­púls­inum eru 44 pró­sent ánægð með það og 43 pró­sent óánægð.

Séu nið­ur­stöð­urnar skoð­aðar betur þá sögð­ust 22 pró­sent alfarið ánægð með ákvörðun Ólafs og 23 pró­sent alfarið óánægð. Þrettán pró­sent voru mjög ánægð og níu pró­sent mjög óánægð. Tíu pró­sent voru frekar ánægð og ell­efu pró­sent frekar óánægð. Þrettán pró­sent sögð­ust hvorki vera ánægð né óánægð.

Meiri ánægja er með ákvörðun for­set­ans meðal íbúa lands­byggðar- innar en höfuð­borg­ar­svæð­is­ins en einnig er munur á við­horfi fólks eftir tekjum og menntun. Fólk er almennt ánægð­ara með ákvörðun for­set­ans eftir því sem það hefur lægri fjölskyldu­tekjur, fyrir utan fólk með allra hæstu tekj­urnar sem er aftur álíka ánægt og fólk með lægstu tekj­urnar. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi eru óánægð­ari með ákvörðun for­set­ans en þeir sem hafa minni menntun að baki.

Yfirburðir í könnunum

For­seta­kosn­ing­arnar verða haldnar hér þann 25. júní. Eins og staðan er núna eru 11 í fram­boði, en ein­ungis þrír fram­bjóð­endur hafa mælst með yfir tveggja pró­senta fylgi: Ólafur Ragnar Grímsson, Andri Snær Magnason og Halla Tóm­as­dóttir. Ólafur er með mikla yfir­burði í öllum skoð­ana­könn­unum og hefur mælst með fylgi á bil­inu 40 til 52 pró­sent. Andri Snær hefur mælst með á bil­inu 18 til 30 pró­sent og Halla á bil­inu 6,6 til 8,8 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár