Ólafur Ragnar með 41 prósenta fylgi en 30 prósent taka ekki afstöðu

Yfir 40 pró­sent kjós­enda vilja Ólaf Ragnar Grímsson sem for­seta eftir næstu kosn­ingar. Andri Snær Magnason er með rúm­lega 18 pró­sent. Stór hluti á eftir að gera upp hug sinn, sam­kvæmt nýrri könnun. Þjóðin skipt­ist í tvennt í afstöðu sinni til Ólafs.

Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti framboð sitt á Bessastöðum fyrir tíu dögum síðan.
Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti fram­boð sitt á Bessa­stöðum fyrir tíu dögum síðan. Mynd: Birgir Þór

Tæplega 30 pró­sent kjós­enda vill ekki taka afstöðu til þeirra for­seta­fram­bjóð­enda sem eru í fram­boði. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, nýtur lang­mests stuðn­ings í könn­un­inni, en 41 pró­sent segj­ast myndu kjósa hann. 18,3 pró­sent myndu kjósa Andra Snæ Magnason og 6,2 pró­sent Höllu Tóm­as­dóttur. Nið­ur­stöð­urnar voru birtar í fréttum RÚV í gær­kvöld.

Aðrir fram­bjóð­endur eru með undir tveggja pró­senta fylgi. Af þeim eru Hrannar Pét­urs­son og Bæring Ólafsson hæstir, Hrannar með 1,5 pró­sent og Bæring með 1,1. Þeir hafa báðir dregið fram­boð sitt til baka. 15,3 pró­sent kjós­enda eru enn óákveðnir og 9,9 segj­ast ætla að skila auðu. Tæp 2 pró­sent vilja ekki kjósa og jafn margir vildu ekki svara. Samtals taka því nærri 30% ekki afstöðu til fram­bjóð­end­anna.

Fyr­ir­tækið Zenter gerði könn­un­ina dag­ana 20. til 28. apríl. 812 svör bár­ust.

Þjóðin skiptist í tvennt

Afar skiptar skoð­anir eru um þá ákvörðun Ólafs Ragnars um að bjóða sig aftur fram til for­seta. Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun Gallup, sem RÚV greindi frá í gær­kvöld, eru 44 pró­sent ánægð með það og 43 pró­sent óánægð.

Séu nið­ur­stöð­urnar skoð­aðar betur þá sögð­ust 22 pró­sent alfarið ánægð með ákvörðun Ólafs og 23 pró­sent alfarið óánægð. Þrettán pró­sent voru mjög ánægð og níu pró­sent mjög óánægð. Tíu pró­sent voru frekar ánægð og ell­efu pró­sent frekar óánægð. Þrettán pró­sent sögð­ust hvorki vera ánægð né óánægð.

Eins og í nið­ur­stöðum nýj­ustu skoð­ana­könn­unar MMR, sem birt var á mið­viku­dag, kemur skýr munur í ljós í afstöðu til Ólafs Ragnars eftir búsetu og tekjum. Í könnun Gallup kemur fram að fleiri höf­uð­borg­ar­búar voru óánægðir með fram­boðstil­kynn­ing­una en ánægðir en þegar litið er til íbúa lands­byggð­ar­innar er afstaðan öfug. Sé litið til tekna þá eru þeir tekju­lægstu flestir ánægðir með ákvörðun Ólafs Ragnars, en eftir því sem tekjur aukast breyt­ist afstaðan. Helm­ingur þeirra sem hefur milljón til 1.250 þús­und í tekjur á mán­uði óánægður með ákvörð­un­ina. En helm­ingur þeirra sem hafa enn hærri tekjur er ánægður með fram­boð for­set­ans.

Þessi könnun Gallup var gerð dag­ana 20. til 27. apríl, en Ólafur Ragnar til­kynnti ákvörðun sína fyrir 11 dögum síðan, mánu­dag­inn 18. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár