Píratar bæta við sig og Björt framtíð mælist með 4,4 prósent fylgi

Fylgi Pírata mælist 35 pró­sent í nýrri skoð­ana­könnun MMR, sam­an­borið við 33,2 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Bjartrar fram­tíðar mælist 4,4 pró­sent en var síð­ast 5,6 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 33,2 pró­sent og eykst frá síð­ustu könnun, þegar stuðn­ing­ur­inn mæld­ist 30,4 pró­sent.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist nú 23,1 pró­sent, borið saman við 23,8 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist nú 12,2 pró­sent, borið saman við 10,6 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mæld­ist nú 10,2 pró­sent, borið saman við 12,0 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist nú 9,6 pró­sent borið saman við 9,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist undir 2 pró­sent.


Könnunin var gerð dag­ana 22. til 30. júlí.

Langstærsti flokkur landsins


Píratar bæta við sig frá síð­ustu könnun MMR. Þá mæld­ist fylgi flokks­ins 33,2 pró­sent. Þetta er sjötta könnun MMR í röð sem Píratar mæl­ast með yfir 30 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn er langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni.

Þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokkur með 23,1 pró­sent fylgi. Hann dalar á milli kann­ana og mælist með minna fylgi en hann fékk í verstu alþing­is­kosn­ingum í sögu flokks­ins, árið 2009. Þá fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk mest fylgi allra stjórn­mála­flokka í síð­ustu kosn­ingum, 23,7 pró­sent atkvæða.

Staða Fram­sókn­ar­flokks­ins vænkast lít­il­lega frá því að MMR mældi hana síð­ast. Nú segj­ast 12,2 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn er hins vegar enn langt frá kjör­fylgi sínu en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í apríl 2013. Fylgi hans hefur því nákvæm­lega helm­ing­ast síðan þá.

Björt framtíð næði ekki inn manni


Sá flokkur sem þarf að hafa mestar áhyggjur af stöðu sinni er Björt fram­tíð. Fylgi flokks­ins hefur verið í frjálsu falli síðan í fyrra­haust þegar það mæld­ist um 22 pró­sent í könn­unum MMR. Nú mælist fylgið ein­ungis 4,4 pró­sent og er það í fyrsta sinn sem Björt fram­tíð mælist undir fimm pró­sent þrösk­uld­inum sem þarf til að koma manni að á Alþingi eftir að flokk­ur­inn náði inn á þing vorið 2013.

Sam­fylk­ingin glímir við sam­bæri­lega til­vist­ar­kreppu. Þótt fylgi flokks­ins hækki lít­il­lega á milli kann­ana, fari úr 9,3 pró­sentum í 9,6 pró­sent, er það samt tölu­vert frá þeim 12,9 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Og sú nið­ur­staða var sögu­legt afhroð fyrir Sam­fylk­ing­una, sem hafði minnst fengið 26,8 pró­sent í kosn­ingum áður. Nið­ur­staðan í nýju könnun MMR er næst lægsta fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur mælst með í mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins frá upp­hafi. Eina skiptið sem hún hefur mælst með lægra fylgi var í könn­un­inni á undan.

Vinstri grænir eru sá stjórn­mála­flokkur sem sýnir mestan stöð­ug­leika í fylgi í könn­unum. Nú mælist fylgi hans 10,2 pró­sent, sem er ekki langt frá þeim 10,9 pró­sentum atkvæða sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2013. Á þessu kjör­tíma­bili hefur MMR mælt fylgi flokks­ins hæst 17 pró­sent en lægst 9,6 pró­sent. Vinstri grænir eru því að mæl­ast við neðri mörk fylg­is­bils síns um þessar mundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár