Stefnir ríkinu vegna saknæmrar hegðunar lögreglustjóra

Fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar hefur stefnt rík­inu á grund­velli sak­næmar og ólög­mætar til­færslu sinnar í starfi. Í stefn­unni segir að lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi beitt hana ítrek­uðu ein­elti. Lög­reglu­stjóri neitar að tjá sig.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir vill ekki tjá sig um stefnuna á hendur ríkinu.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir vill ekki tjá sig um stefn­una á hendur rík­inu.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, beitti Aldísi Hilm­ars­dóttur, fyrr­ver­andi yfir­mann fíkni­efna­deildar lög­regl­unnar, ítrek­uðu ein­elti og færði hana til í starfi á röngum for­sendum. Aldís hefur stefnt rík­inu á grund­velli þess að til­færsla hennar í starfi hafi verið sak­næm og ólög­mæt. Sigríður Björk neitar að tjá sig um málið.

„Dulbúin og fyrirvaralaus brottvikning“

Stefnan var birt rík­is­lög­manni í vik­unni. Þess er kraf­ist að til­færslan verði ógild og að íslenska ríkið verði dæmt til að greiða Aldísi 2,3 millj­ónir króna í miska­bætur. Fram kemur í stefn­unni að rök fyrir breyt­ingu á starfi Aldísar hafi verið byggð á ómál­efna­legum for­sendum og tekin án þess að gæta að lögum og reglum um stjórn­sýslu­rétt. Ákvörð­unin hafi í raun falið í sér „dul­búna og fyr­ir­vara­lausa brott­vikn­ingu úr starfi.“ Þá er vísað til þess að lög­reglu­stjór­inn hafi aldrei litið á breyt­ing­una sem neitt annað en brott­rekstur, þar sem hún vís­aði til Aldísar í fjöl­miðlum í júní sem „fyrr­ver­andi yfir­mann“ fíkni­efna­deildar.

Sigríður Björk færði Aldísi til í starfi viku eftir að Aldís átti fund með Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra þar sem sam­skipta­vandi innan lög­regl­unnar var meðal ann­ars ræddur. Hún var áður yfir­maður fíkni­efna­deildar lög­regl­unnar.

Fékk ekki andmælarétt

Í stefn­unni er málið útli­stað og upp talin atriði sem hafa valdið því að til­færsla Aldísar í starfi hafi verið henni íþyngj­andi. Lög­reglu­stjóri hafi tekið ákvörð­un­ina gegn vilja Aldísar og hafði það í för með sér að hún var svipt öllum manna­for­ráðum. Hún var í kjöl­farið sett undir stjórn starfs­manns sem nýtur ekki form­legrar tignar innan lög­regl­unnar. Hún fékk allt öðru­vísi verk­efni en hún var vön að fást við og ekki lá fyrir hversu lengi þessi breyt­ing í starfi átti að standa. Karl­maður með minni reynslu af rann­sóknum brota en Aldís og enga reynslu af stjórnun rann­sókn­ar­deildar var settur í hennar stað.

Þá segir í stefn­unni að Sigríður Björk hafi brotið gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga á fleiri en einn hátt, meðal ann­ars með því að neita Aldísi um að and­mæla þegar henni var til­kynnt um breyt­ing­arnar. Hún fékk því aldrei að koma sjón­ar­miðum sínum form­lega á fram­færi.

Las upp úr tölvupóstum fyrir undirmenn

Aldís segir Sigríði Björk hafa lagt sig í ein­elti á vinnu­staðnum með ámæl­is­verðum hætti. Í stefn­unni kemur fram að með end­ur­teknum hætti hafi hún valdið henni van­líðan, meðal ann­ars með því að draga að skipa hana í starf sem aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjón, reynt að koma henni úr starfi með því að leggja til flutn­ing til hér­aðs­sak­sókn­ara og gengið um deild Aldísar og lesið upp­hátt úr tölvu­póstum hennar til sín fyrir und­ir­menn og aðra sam­starfs­menn Aldísar.

Ferill málsins

  • Apríl 2014 - Aldís var ráðin til eins árs sem aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og yfir­maður fíkni­efna­deild­ar, með fram­tíð­ar­skipun í huga.
  • Vorið 2015 - Vinnu­sál­fræð­ingur feng­inn til að meta sam­skipta­vanda innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ágrein­ingur kom upp á milli Aldísar og Sig­ríðar Bjarkar um hvernig taka ætti á málum starfs­manns í deild Aldísar sem hafði verið sak­aður um brot í starf­i.
  • 29. apríl 2015 - Aldís var skipuð í stöð­una til næstu fimm ára.
  • Júlí 2015 - Rann­sókn­ar­deildir fjár­muna­brota og fíkni­efna­brota voru sam­ein­aðar í nýja deild undir stjórn Aldís­ar.
  • Sept­em­ber 2015 - Inn­leið­ing­ar­hópur tekur til starfa til að inn­leiða breyt­ing­arnar á nýju deild­inni. Aldís var í þeim hópi.
  • Nóv­em­ber 2015 - Vinnu­sál­fræð­ingur skilar skýrslu um sam­skipta­vanda innan lög­regl­unn­ar.
  • 14. des­em­ber 2015 - Aldís var boðuð á fund Sig­ríðar Bjark­ar. Á fund­inum var einnig Alda Hrönn Jóhanns­dótt­ir, aðal­lög­fræð­ingur emb­ætt­is­ins. Í stefn­unni segir að á fund­inum hafi lög­reglu­stjóri „á fram­færi ýmsum órök­studdm ásök­unum á hendur stefn­anda og bauð stefn­anda í lok fundar að flytja sig til hér­aðs­sak­sókn­ara.“
  • Jan­úar 2016 - 17 lög­reglu­menn höfðu kvartað til Lands­sam­bands lög­reglu­manna vegna vinnu­bragða og fram­komu lög­reglu­stjóra.
  • 15. jan­úar 2016 - Aldís á fund með Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra þar sem hún ræðir um sam­skipta­vanda hennar og lög­reglu­stjór­ans. Síðar sama dag kom Sig­ríður Björk á skrif­stofu Aldísar til að ræða hvað fram hefði farið á fund­inum með inn­an­rík­is­ráð­herra.
  • 18. jan­úar 2016 - Aldís fékk tölvu­póst frá lög­reglu­stjóra þar sem henni var til­kynnt að „vegna ástands­ins í fíkni­efna­deild­inni“ hafi lög­reglu­stjóri ákveðið að breyta skipan val­nefndar sem hafði það hlut­verk að ráða nýja lög­reglu­full­trúa í hina mið­lægu deild undir stjórn henn­ar. Þá sagði Sig­ríður Björk einnig að Aldís ætti ekki lengur sæti i nefnd sem réði í nýjar stöð­ur, en Aldís hafði verið skráður tengiliður fyrir nýja umsækj­end­ur.
  • 22. jan­úar 2016 - Sig­ríður Björk til­kynnti Aldísi breyt­ingar á starfs­skyldum hennar og afhenti henni bréf þess efn­is. Breyt­ingin átti að taka gildi frá og með 25. jan­úar og vara í hálft ár eða þar til annað yrði ákveð­ið. Hún átti þá að vinna nýtt starf á nýrri deild, undir stjórn Öldu Hrann­ar. Í kjöl­farið fór Sig­ríður Björk í við­töl í fjöl­miðlum og nafn­greindi Aldísi án hennar leyf­is.
  • 25. jan­úar 2016 - Aldís óskaði eftir rök­stuðn­ing­i.
  • 5. febr­úar 2016 - Sig­ríður Björk sendi rök­stuðn­ing. Í stefn­unni segir að hann hafi helg­ast „öðrum þræði af til­hæfu­lausum hug­myndum um að stefn­andi hefði á ein­hvern hátt gerst sek um van­rækslu í starfi og ásak­anir á hana bornar sem ekki eiga við nein rök að styðj­ast.“
  • 23. febr­úar 2016 - Aldís svarar bréfi Sig­ríðar Bjarkar og bendir henni á að brotið hefði verið gegn rétt­indum henn­ar.

Mikið áfall

Ákvörðun lög­reglu­stjór­ans varð Aldísi mikið áfall og segir í stefn­unni að þetta hafi verið áfell­is­dómur yfir hennar störfum hjá lög­regl­unni. Hún hefur verið óvinnu­fær síðan. Þá hefur það haft áhrif hversu mikla athygli málið hefur fengið í fjöl­miðlum og að Sigríður Björk hafi tjáð sig um það með „opin­skáum, röngum og mis­vísandi hætti“. Orðspor Aldísar hafi því beðið til­hæfu­lausa hnekki.

Skorað á ráðherra að leggja fram skýrsluna

Skorað er á Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að mæta fyrir dóm fyrir hönd íslenska rík­is­ins þegar málið verður þing­fest í dóms­húsi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þann 11. sept­em­ber næst­kom­andi. Þá er einnig skorað á ríkið að leggja fram skýrslu vinnu­sál­fræð­ings sem greindi sam­skipta­vand­ann innan lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár