Stjórnvöld umbylta áætlunum um orkuskipti

Fimm ára áætlun stjórn­valda um orku­skipti í sam­göngum verður til 15 ára. Unnið er að þings­á­lyktun í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu og leggja á fram á vor­þingi.

Til að stuðla að orkuskiptum í samgöngum er eitt markmið ríkisstjórnarinnar að koma upp rafhleðslustöðvum fyrir bíla víða um landið.
Til að stuðla að orku­skiptum í sam­göngum er eitt mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að koma upp raf­hleðslu­stöðvum fyrir bíla víða um landið. Mynd: Úr safni.

Meg­in­á­herslu þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar sem rík­is­stjórnin lof­aði um orku­skipti í sam­göngum hefur verið breytt þannig að nú fjallar hún almennt um orku­skipti á Íslandi. Jafn­framt er ekki lengur horft til árs­ins 2020; næstu fimm ára, heldur til árs­ins 2030. Verið er að und­ir­búa þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu ásamt aðilum frá Grænu orkunni, verk­efnis um vistorku í sam­göngum. Enn er stefnt að því að til­lagan verði lögð fyrir vor­þing sem hefst í næstu viku, 19. jan­úar.

Í fyrsta kafla sókn­ar­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum er fjallað um hvernig draga á úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sam­göngum og iðn­aði á Íslandi. Þar er til­tekið mark­mið um orku­skipti í sam­göngum og aðgerð­ar­á­ætlun „til næstu ára vegna orku­skipta, jafnt á landi sem á hafi“ sem leggja á fram á vor­þingi sem þings­á­lyktun. Markmið íslenskra stjórn­valda er að hlut­fall end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í sam­göngum verði orðið 10 pró­sent árið 2020.

Samkvæmt upp­lýs­ingum úr atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu er enn stefnt að mark­miðum sókn­ar­á­ætl­un­ar­innar, jafn­vel þó horft sé til 15 ára en ekki fimm. Það sé ekki vegna þess að það sé of dýrt að ná þessum mark­miðum fram fyrir árið 2020 heldur er aðeins verið að reyna að horfa til lengri tíma.

Auk þess að aðilar grænu orkunnar vinni með ráðu­neyt­inu að þess­ari þings­á­lyktun hefur Orku­setur, Orku­stofnun og Hafið - önd­veg­is­setur haft vinn­una til umsagnar og verið til ráð­gjafar.

Ólíkt því sem segir í sókn­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum þá mun þings­á­lykt­unin fjalla um flug­sam­göngur auk sam­ganga á láði og legi. Þórir Hrafns­son, upp­lýs­inga­full­trúi í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, bendir á að þróun vist­vænna orku­gjafa sé lengra komin í sam­göngum á jörðu niðri. Ekki hafi enn verið stofnað til sam­starfs um orku­skipti í flug­sam­göngum á Íslandi.

Iðn­að­ar­ráð­herra stofn­aði til verk­efn­is­ins Grænu orkunnar árið 2010 og er til­gangur þess að stuðla að mark­missri stefnu­mótun um orku­skipti í sam­göngum á Íslandi. Aðilar að verk­efn­inu eru margir af helstu áhrifa­völdum í sam­göngum á Íslandi, þar á meðal bíla­um­boðin, olíu­fyr­ir­tækin og flutn­inga­fyr­ir­tæki auk ráðu­neyta, háskól­anna og sprota­fyr­ir­tækja um umhverf­is­vænar lausnir í sam­göngum. Græna orkan er lyk­il­ger­andi í sókn­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum sem kynnt var í lok nóv­em­ber. Sókn­ar­á­ætl­unin er eins­konar áhersluplagg í stefnu­mótun stjórn­valda í aðgerðum til að varna frek­ari lofts­lags­breyt­ingum.

Ásamt því að stefnt sé að því að hverfa frá brennslu jarð­efna­elds­neytis í sam­göngum á Íslandi er lögð áhers á efl­ingu inn­viða fyrir raf­bíla á lands­vísu. Til að ná þessu fram er ljóst að nokkur inn­viða­upp­bygg­ing þarf að fara fram. Bæði þarf að veita raf­magni til hleðslu­stöðv­anna sem reisa á víða um land og leggja línur í vinnslu­stöðva útgerð­anna sem vilja geta veitt raf­magni úr landi um borð í skip sem liggja við bryggju og til vinnslu­stöðva sem sumar brenna enn jarð­efna­elds­neyti til orku­gjafar.

Sókn­ar­á­ætl­unin var kynnt áður en samn­inga­nefnd Íslands hélt til Parísar á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem sam­þykkt var sam­komu­lag um lofts­lags­mál. Stefnt er að því að und­ir­rita sam­komu­lagið form­lega í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York 22. apríl. Ísland samdi með Evr­ópu­sam­band­inu á ráð­stefn­unni í París. End­an­legar skuld­bind­ingar Íslands vegna sam­komu­lags­ins munu ekki liggja fyrir fyrr en samið hefur verið við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins. Frekari við­ræður eru ekki hafnar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, en það mun skýr­ast á næstu vikum hvaða form verður á þeim.3

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár