Menningin þrífst líka á landsbyggðinni

Aldrei fór ég suður hefur virkað eins og milljón doll­ara mark­aðsá­tak fyrir Vest­firði, segir rokk­stjóri Aldrei fór ég suður. Bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar telur hátíð­ina skapa jákvæða ímynd fyrir sam­fé­lög á lands­byggð­inni.

Í stað þess að undirrita samninga við samstarfsaðila hátíðarinnar á pappír eins og venja er þá húðflúruðu allir aðilar máls á sig merki hátíðarinnar. Það þykir meira „rokk“ í því. Flúrið var þó ekki varanlegt.
Í stað þess að und­ir­rita samn­inga við sam­starfs­að­ila hátíð­ar­innar á pappír eins og venja er þá húð­flúr­uðu allir aðilar máls á sig merki hátíð­ar­innar. Það þykir meira „rokk“ í því. Flúrið var þó ekki var­an­legt. Mynd: Ágúst Atlason / aldrei.is / gusti.is

Tón­list­ar­há­tíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í fjórt­ánda sinn á Ísafirði yfir pásk­ana, dag­ana 13.-16. apríl næst­kom­andi. Hátíðin er orðin að eins konar fasta í tón­list­ar­há­tíð­ar­flóru árs­ins á Íslandi og dregur jafnan marg­faldan íbúa­fjölda Ísa­fjarðar vestur á firði.

Dagskrá hátíð­ar­innar í ár var kynnt á mið­viku­dag­inn, en margir af vin­sæl­ustu tón­list­ar­mönnum lands­ins munu troða upp. Má þar nefna Emmsjé Gauta, Valdimar, KK Band, Vök og HAM. Hátíðin mun fara fram á sama stað og í fyrra, jafn­vel þó götu­heit­inu hafi verið breytt; Hátíðin í ár fer nefni­lega fram við Aldrei fór ég Suð­ur­götu á eyr­inni á Ísafirði.

Í þau þrettán ár sem Aldrei fór ég suður-hátíðin hefur verið haldin hefur stuðið drifið skipu­leggj­endur. Þau eru aldrei kölluð neitt annað en Aldrei fór ég suður-hóp­ur­inn, upp­haf­lega hópur vina að vestan sem hélt tón­leika í lok skíða­vik­unnar á Ísafirði sem hefur verið haldin í tugi ára í dymbil­vik­unni.

„Þetta átti aldrei að vera neitt annað en grín,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Örn Elías Guð­munds­son (betur þekktur sem Mugison) í sam­tali við Kjarnann, en hann er einn þeirra sem stóðu fyrir fyrstu tón­leik­unum 2004. „Fyrstu árin vorum við að biðja fólk um að hafa opið, alla veit­inga­staði og þjón­ustu. Og svo núna, fjórtán skiptum seinna, er allt í gangi og mikið líf.“

Í hóp með Gránufélaginu

Bæj­ar­stjór­inn, Gísli Halldór Hall­dórs­son, segir hátíð­ina hafa haft jákvæð áhrif fyrir sam­fé­lagið í bænum. Hún hafi orðið að sam­fé­lags­legu verk­efni bæj­ar­búa og geri starfið hans á margan hátt auð­veld­ara fyrir vikið.

[links]„Ég mundi segja að mitt starf snú­ist að miklu leyti um að styrkja sjálfs­mynd íbú­anna og gera hluti sem fá okkur til að trúa á fram­tíð­ina og trúa á það sem við erum,“ segir Gísli. „Aldrei fór ég suður gerir starfið auð­veld­ara að því leyti. Fyrir utan það, jú, að þegar það þarf að fara í sam­stillt átak eða verk­efni þá kannski man fólk eftir þessu og finnur að þetta er hægt.“

„Það sem mér finnst vera dálítið magnað við Aldrei fór ég suður er að það er eins og hátíðin hafi búið til ein­hvers­konar jákvæða ímynd, ekki bara fyrir Ísafjörð, heldur Vest­firði og jafn­vel Ísland utan höf­uð­borg­ar­innar. Ímynd þar sem hægt er að hugsa sér að það sé bara töff að eiga heima úti á landi og njóta þess að vera til,“ segir bæj­ar­stjór­inn sem afhjúpaði nýtt götu­skilti á mið­viku­dag þar sem Aldrei fór ég Suð­ur­gata er ræki­lega merkt.

„Það er alveg geggjað,“ segir Kristján Freyr Hall­dórs­son, rokk­stjóri hátíð­ar­innar í ár, um þann heiður sem hátíð­ar­höld­urum hefur verið sýndur. „Nú erum við í hópi með Gránu­fé­lag­inu á Akureyri, og örugg­lega ein­hverjum fleirum.“

Þrjár mýtur um Vestfirði hverfa með hátíðinni

Allir þeir við­mæl­endur sem Kjarninn ræddi við á Ísafirði voru sam­mála um að áhrif Aldrei fór ég suður hafi verið gríð­ar­lega mikil fyrir sam­fé­lagið á vest­fjörðum. Um hafi verið að ræða mjög þakk­látan jákvæðan hvata fyrir íbúa, hvort sem þeir væru brott­fluttir eða ekki, til þess að koma saman og skemmta sér. Það hafi síðan undið upp á sig og hátíðin er nú orðin vin­sæl meðal tón­listar- og skemmta­naunn­enda af öllu land­inu.

[adspot]

Kristján Freyr segir enga spurn­ingu leika á því að hátíðin hafi gert Vest­firði að meira spenn­andi áfanga­stað.

„Ég vil meina að Vest­firðir hafa alltaf þurft að bít­ast við þrjár asna­legar mýtur sem þarf að fara að eyða. Það er alltaf talað um það sé alltaf slæmt veður hérna. Það er ekki rétt. Mýta númer tvö er að veg­irnir séu svo ofboðs­lega slæmir. Það er heldur ekki rétt. Það eru komnir mjög fínir vegir. Svo er það þriðja: Það er hræði­legt að fljúga hingað. Stundum er hrist­ingur hérna, en hann er líka í Eyja­firði og hann er líka yfir hálend­inu þegar þú ert að fara til Egils­staða.“

Kristján segir að rokkstemn­ingin á Aldrei fór ég suður hafi náð að breyta þessum hug­myndum um Vest­firði að ein­hverju leyti með því að draga fólk vestur um vetur.

Alltaf verið að leita að nýja þorskinum

Aldrei fór ég suður er fjarri því eina bæj­ar­há­tíðin sem haldin er árlega hér á landi. Þær skipta eflaust tugum en hafa yfir­leitt sömu stef að leið­ar­ljósi: und­ir­strikun sér­stöðu bæj­anna og sam­fé­lags­ins, jafn­vel með vís­unum í forna frægð eða sam­eig­in­lega sögu sveit­anna.

[box]

Kristján Freyr segir hátíð­ina á Ísafirði vera mik­il­væga: „Þetta er á við milljón doll­ara mark­aðsá­tak fyrir sam­fé­lagið hérna. Hátíðin hefur haft gríð­ar­lega þýð­ingu fyrir bæj­ar­fé­lagið.“

„Ég vil meina það að eftir það sem hefur gengið á hérna fyrir vestan – það voru gríð­ar­leg högg sem komu á þessa byggð hérna fyrir vestan, bæði snjó­flóðum 1995 og svo hlutir tengdum kvóta og svo­leiðis póli­tík sem verður til þess að það drabb­ast allt niður. Það er alltaf verið að leita að nýja þorsk­inum í einu og öllu ein­hvern veg­inn.“

„Ástæða þess að þessi hátíð varð að veru­leika er að það var ákveðin jákvæðni í fólk­inu sjálfu sem varð til þess að fólk sagði: Þrátt fyrir kvóta­kerfi og þessi högg sem við höfum fengið á okkur, þá ætlum við að búa hér áfram. Þetta hefur gert það að verkum að við eigum kannski auð­veld­ara með að halda þessa hátíð og að draga fólk hingað vestur á Ísafjörð,“ segir Kristján Freyr.

Ekki undirliggjandi byltingarafl

Kristján Freyr segir að aldrei hafi verið gerð könnun á því hvort það séu frekar brott­fluttir eða ætt­ingjar íbúa vest­fjarða sem sæki hátíð­ina. Það hafi hins vegar alltaf verið þannig að á tylli­dögum þá sæki brott­fluttir aftur í heima­haga, eins og um páska. Í marga ára­tugi hafi skíða­vikan á Ísafirði dregið að brott­flutta Ísfirð­inga vestur í dymbil­vik­unni.

„Með til­komu Aldrei fór ég suður þá vil ég meina að við séum að fá hingað krakka sem búa í Reykja­vík og eru að koma hingað á hátíð­ina. Þeim hefði kannski aldrei dottið það í hug ann­ars, haf­andi enga teng­ingu hingað vestur.“

„Það er svo mik­il­vægt að við heim­sækjum landið okkar og þekkjum það. Ég ætla að segja að við séum und­ir­liggj­andi bylt­ing­ar­afl. Þetta er bara tón­list­ar­há­tíð. En þetta skiptir miklu máli fyrir okkur. Það er mik­il­vægt að fólk viti að það þrífst menn­ing víðs vegar um landið,“ segir Kristján Freyr.

Örn Elías, einn for­sprakka hátíð­ar­innar, segir hátíð­ina vera nærri því full­mót­aða. „Þetta getur ekki orðið stærra,“ segir hann. Og hann er alveg búinn að gera upp við sig hver sjarm­inn sé við tón­list­ar­há­tíð um vetur á vest­fjörðum: „Aðal­at­riðið er að vera fastur hérna á norð­ur­hjara ver­aldar – þar sem eng­inn á að vera – og það er bara ógeðs­lega næs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár