Skuggsælt í skjóli stórra ríkja

Eystra­salts­löndin eru enn að finna fyrir afleið­ingum alþjóð­legu fjár­málakrepp­unnar. Ríkin þrjú höfðu ekki val um geng­is­fell­ingu og þurfti í stað þess að beita hörðum nið­ur­skurð á kostnað almenn­ings.

Eystrasaltslöndin
Eystra­salts­löndin

Tíu ár eru liðin frá því að alþjóð­lega fjár­málakreppan skall á. Áhrif hennar voru gríð­ar­leg út um allan heim og sum lönd fóru mun verr út úr efna­hags­hrun­inu en önnur. Tals­verður munur er á því hvernig ríki tók­ust á við afleið­ingar og áskor­anir efna­hags­hruns­ins. Eystra­salts­löndin, Eistland, Lettland og Litháen voru á meðal þeirra landa sem fengu veru­lega að finna fyrir afleið­ingum fjár­málakrepp­unnar. Þetta eru ekki stór eða fjöl­menn lönd en þau hafa sér­staka teng­ingu við Norð­ur­löndin. Ísland var fyrst allra landa í heim­inum til að við­ur­kenna sjálf­stæði þeirra eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna, hin Norð­ur­löndin fylgdu svo í kjöl­farið.

Í dag eru ríkin þrjú sjálf­stæð og öll orðin hluti af Evr­ópu­sam­band­inu. Þau gengu jafn­framt í Atl­ants­hafs­banda­lagið árið 2004. Í gegnum árin hefur verið nokkuð sam­ráð á milli Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­land­anna. Þau sitja meðal ann­ars saman í Eystra­salts­ráð­inu og hafa sam­eig­in­lega skrif­stofu hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og Alþjóða­bank­anum. Norð­ur­löndin og Eystra­salts­löndin eru að mörgu leyti ólík ríki en áhuga­vert er að skoða hvernig þessar þjóðir tók­ust á við fjár­málakrepp­una nú tíu árum síðar.

Hvernig brugðust Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin ólíkt við fjármálahruninu?

Hilmar Þór Hilm­ars­son, pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri, gaf nýverið út bók um þessi mál sem heitir „The Economic Crisis and its Aftermath in the Nordic and Baltic Countries: Do as We Say and Not as We Do.“ Í bók­inni ber Hilmar saman hvernig Norð­ur­löndin og Eystra­salts­ríkin tók­ust á við afleið­ingar fjár­málakrepp­unnar.

Á Norð­ur­lönd­unum, að Íslandi und­an­skildu, var sam­kvæmt Hilmari varla hægt að tala um alvar­lega kreppu árið 2008 heldur frekar slæma og skamm­vinna nið­ur­sveiflu. Eystra­salts­ríkin glímdu við mun alvar­legri áföll. Hag­vöxtur í ríkj­unum árin fyrir hrun hafði einkum verið drif­inn áfram af erlendu fjár­magni, aðal­lega frá Norð­ur­lönd­unum, sem streymdi inn í banka­geir­ann og ýtti undir banka- og fast­eigna­bólu. Efna­hags­stefna þeirra hafði á sama tíma byggst á lágum sköttum, litlu reglu­verki og tak­mörk­uðu félags­legu kerfi. Því höfðu ríkin litla burði til að bregð­ast við efna­hags­hrun­inu og afleið­ing­arnar urðu gríð­ar­legar á íbúa lands­ins. Ríkin búa við hag­vöxt í dag en atvinnu­leysi er enn meira en fyrir fjár­málakrepp­una og tíðir búferla­flutn­ingar ungs fólks úr landi eru áhyggju­efni.

Ólík kerfi

Norð­ur­löndin eru lönd með sterkt vel­ferð­ar­kerfi, nokkuð stöðugan hag­vöxt, lítið atvinnu­leysi og nokkuð jafna tekju­skipt­ingu. Því voru Norð­ur­löndin, sam­kvæmt bók Hilmars, með mun meiri burði til að með bregð­ast við krísum og voru fljót­ari að taka við sér. Eystra­salts­löndin eru á hinn bóg­inn bæði fátæk­ari og í við­kvæm­ari stöðu vegna ójafnrar tekju- og auð­skipt­ingar innan þeirra landa.

Eftir fall Sov­ét­ríkj­anna þá stóðu Eystra­salt­ríkin frammi fyrir stór­tækum breyt­ingum. Í sam­tali við Kjarnann bendir Hilmar á hversu athygl­is­vert það sé að Eystra­salts­löndin ákveði á þessum tíma­mótum ekki að horfa til Norð­ur­land­anna og þeirra vel­ferð­ar­kerfa heldur taka þau upp nýfrjáls­hyggju­kerfi. Kerfi með tak­mörk­uðum rík­is­af­skiptum, flötum sköttum, lágum eigna­sköttum og einka­væddum rík­is­fyr­ir­tæki. Hilmar bendir í bók sinni á að Eystra­salts­löndin hafi verið undir stjórn Sov­ét­ríkj­anna í tugi ári og að þau séu lítil lönd, frekar ein­angruð og óund­ir­búin fyrir þessar miklu breyt­ingar. Vonast var til að frjáls­hyggjan myndi leiða af sér mik­inn hag­vöxt sem hún gerði í kjöl­far mik­illa erlendra lána. Árið 2004 gengu Eystra­salts­löndin síðan í Evr­ópu­sam­bandið.

Hilmar sagði í sam­tali við Kjarnann að lönd með sveigj­an­legri efna­hags­stefnu, sjálf­stæðan gjald­miðil og meira frelsi í rík­is­gjöldum séu lík­legri til ná sér hratt á strik eftir efna­hags­á­föll en lönd sem hafa tekið upp evr­una. Áður en lönd geta tekið upp evr­una þurfa þau að beita miklu aðhaldi í rík­is­fjár­málum sam­kvæmt for­skrift mynt­banda­lags­ins. Hilmir bætir við að fast­geng­is­stefna sam­hliða miklum nið­ur­skurði í rík­is­fjár­málum sé ekki lík­leg leið til að auka hag­vöxt, sér í lagi í hjá nýmark­aðs­ríkjum eins og Eystra­salts­ríkj­unum.

Evrópusambandið og Svíar leyfðu ekki gengisfellingu

Í bók­inni segir frá því hvernig Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn lagði til 15 pró­sent geng­is­fell­ingu í Lett­landi en Evr­ópu­sam­bandið og Svíar höfn­uðu því. Svíar eiga nefni­lega að mestu banka­kerfi Eystra­salts­land­anna. Greint er frá því að þegar fjár­mála­hrunið átti sér stað þá hitti sænski fjár­mála­ráð­herr­ann for­sæt­is­ráð­herra Lett­lands á flug­vell­inum Arlanda í Svíþjóð til að tala um hvernig best væri að bregð­ast við hrun­inu. Í kjöl­farið voru gerðar kröfur um mik­inn nið­ur­skurður frá ESB og Svíþjóð, þar sem m.a. skólar og sjúkra­hús voru lokuð. Útkoma aðgerð­anna árið 2008 varð sú að efna­hagur Eystra­salts­ríkj­anna var lengur að jafna sig og lífs­kjör almenn­ings versnuðu mikið. Ástandið jók enn frekar á fólks­flótta frá lönd­unum þremur og er sú staða núna komin upp að Eystra­salts­ríkin eru lent í víta­hring þar sem unga og vel mennt­aða fólkið sem gæti eflt hag­kerfið leitar út í heim eftir betri tæki­færum og auknum lífs­gæðum.

Framtíð Eystrasaltsríkjanna

Hilmar nefnir í bók sinni ýmsa ytri þætti sem skapa erfitt umhverfi fyrir Eystra­salts­löndin. Ákveðin óvissa ríkir um þessar mundir um skuld­bind­ingar Banda­ríkj­anna í NATO sem skapar óör­yggi fyrir Eystra­salts­ríkin þrjú þar sem þau eru hluti af Nato og með landa­mæri að Rúss­landi. Samkvæmt bók­inni telja Eistland, Lettland og Litháen sig betur varin gegn mögu­legum yfir­gangi Rúss­lands með því að ganga í Nato og eiga í nánu sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið. Eystra­salts­löndin telja sig betur stödd í félags­skap stór­þjóða Evrópu en ein og afskipt.

Staða Eystra­salts­ríkj­anna er erfið. Fasta gengið hefur ekki gengið vel innan Evru­svæð­is­ins og mikið aðhald er á rík­is­sjóðum. Líkt og greint var frá hér fyrir ofan þá ríkir enn meira atvinnu­leysi en fyrir hrun, tekju­ó­jöfn­uður er mjög mik­ill í öllum þremur löndn­unum og ungt fólk flytur í burtu. Aðspurður segir Hilmar leið­ina áfram ,fyrir Eystra­salts­löndin, vera að reyna breyta skatt­kerfum sínum til að búa til mögu­leika á að byggja upp mennta- og heil­brigð­is­kerfið. Hilmar segir enn fremur að það sé mik­il­vægt að muna að það er mögu­leiki að nálg­ast jöfnuð í sam­fé­lag­inu þótt lítið svig­rúm sé til að auka fjár­magn til vel­ferð­ar­kerf­is­ins.

Skulda þeim aðstoð

Hilmar segir Svíþjóð og ESB skulda Eystra­salts­lönd­unum meiri aðstoð til að hjálpa við að leið­rétta nið­ur­skurð­inn sem varð á vel­ferð­ar­kerf­inu í lönd­unum eftir hrun. Eystra­salts­löndin þurfa að vera harð­ari í sam­skiptum við stærri ríki og ríkja­sam­bönd eins og Evr­ópu­sam­bandið til að fá sínu fram. Hann segir jafn­framt stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins í rík­is­fjár­málum í raun of þrönga fyrir þessi til­tölu­lega nýju sjálf­stæðu ríki.

Hilmar segir jafn­framt að þessir miklu nið­ur­skurðir hefðu aldrei getað verið fram­kvæmdir á Norð­ur­lönd­unum án þess að mót­mæli hefðu brot­ist út. Eystra­salts­löndin hafi hins vegar í ljósi sög­unnar ekki mikla hefð fyrir mót­mælum. Svíar sögðu Eystra­salts­ríkj­unum að leggj­ast í harðar aðgerðir en gerðu ekki slíkt hið sama þegar þau lentu sjálf í kreppu á tíunda ára­tug­inum. Titill bók­ar­innar vísar í þetta: „Do as we say, not as we do.“

„Efna­hags­stefna Evr­ópu­sam­bands­ins er byggð á stöð­ug­leika, sem er mik­il­vægur einn og sér, en stefna Evr­ópu­sam­bands­ins mætti mið­ast meira við jöfnuð. Aðgerðir Evr­ópu­sam­bands­ins eftir hrun sneru að miklu leyti að því bjarga bönkum frekar en fólki,“ segir hann en telur þó ljóst að Evr­ópu­sam­bandið hafi haft áhyggjur af því að ef sænsku bank­arnir myndu falla í Eystra­salts­ríkj­unum þá myndu áhrif þess teygj­ast til Norð­ur­land­anna og þá hefði það orðið ansi stór skellur fyrir Evr­ópu­sam­bandið. „Þó að sam­bönd séu á milli land­anna þá hugsar hvert land aðeins um sig þegar efna­hags­leg áföll skella á,“ segir Hilmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár