Brotist inn í tölvu Sigmundar og hann eltur í útlöndum

Til­raunir voru gerðar til að brjót­ast inn í tölvu for­sæt­is­ráð­herra og hann var eltur í útlöndum af erlendum kröfu­höfum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ávarp­aði haust­fund mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa verið eltur á ferðum sínum erlendis af kröfu­höfum í bú föllnu bank­anna á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Einnig seg­ist hann hafa heim­ildir fyrir því að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. Honum hafi jafn­vel borist boð um að hitta full­trúa kröfu­hafa í ein­rúmi á afskekktum stöðum svo hægt væri að leysa málin. Frá þessu greindi Sig­mundur í ræðu sinni á haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins sem fram fer í Hofi á Akureyri í dag.

Við eft­ir­grennslan Kjarnans stað­festi Sig­mundur Davíð það sem hann full­yrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjót­ast inn í tölv­una hans. „Ég veit að það var brot­ist inn í tölv­una hjá mér,“ sagði Sig­mundur Davíð í ræð­unni. Hann hafi látið yfir­fara hana hjá örygg­is­full­trúa í stjórn­ar­ráð­inu og þar hafi fund­ist merki um að reynt hafi verið að brjót­ast inn.

Í ávarpi hans á fund­inum kom fram að vegna þessa hafi hann gripið til þess ráðs að hafa svo­kall­aðan „svartan kafla“ í ræðu sem hann hélt á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í fyrra. Svarti kafl­inn var kafli sem eng­inn fékk að lesa, ekki einu sinni hans helstu ráð­gjafar, vegna þess að þar var yfir­lýs­ingin um að skattur yrði settur á slita­búin. Sig­mundur hafi ekki viljað varpa þeim bagga á nokkurn mann að þurfa að vita af þessu né láta það spyrj­ast út, enda um mikla hags­muni að ræða.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíð, segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi sjálfur verið vitni af þessu á ferðum sínum með Sigmundi. Hinir og þessir hafi dúkkað upp, jafn­vel and­lit sem tölu­vert hefur verið talað um í fjöl­miðlum, hafi viljað ná af honum tali með ýmsum ráðum og eftir ýmsum leiðum. Sig­mundur fjall­aði sér­stak­lega um ferðir sínar í London og Norður-Dakóta þar sem kröfu­hafar hafi setið um fyrir honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár