Ég teiknaði hyldýpi – en ég réði við það: Myndlist sem tæki til að skoða eigin huga og tilfinningar

Ágústa Odds­dóttir hlaut sérstaka viður­kenn­ingu á útgefnu efni um myndlist þegar Íslensku myndlistar­verðlaunin voru afhent. Viður­kenn­inguna hlaut hún fyrir bókina Art Can Heal, sem er um list­þerapíu og starf Sigríðar Björns­dóttur. Bókin er listilegur gripur, bókverk fremur en hefð­bundin bók, en hún kom út á ensku. En hver er Sigríður Björns­dóttir?

Sigríður, Ágústa og Egill – að skeggræða yfir kaffisopa.
Sigríður, Ágústa og Egill – að skegg­ræða yfir kaffi­sopa.

Sigríður þróaði sérstaka aðferð við að hjálpa veikum börnum á spítala við að tjá sig. Um líðan sína, tilfinningar og hugsanir,“ segir Ágústa um Sigríði Björnsdóttur. En aftan á bókinni Art can heal (Listin getur heilað) má lesa þessi orð Ágústu: Þú setur tilfinningar í myndina á meðan þú vinnur að henni, myndin sjálf er eins konar þerapisti sem býr inna með þér.

Þegar Sigríður útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands, árið 1952, fannst henni vanta svo mikið að veik og fötluð börn fengju að kynnast myndlist.

„Svo hún fór í starfsnám til London um sumarið til að læra að vinna með veikum börnum á spítala. Þá sá hún hvað krakkarnir …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár