Bók Eggerts Skúlasonar: Fyrrum starfsmaður FME vildi selja Hreiðari Má skýrslu fyrir 30 milljónir

Í bók Eggerts Skúla­sonar, Andersen skjölin – rann­sóknir eða ofsóknir?“, er sagt frá því að þáver­andi starfs­manður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hafi boð­ist til þess að afhenda Hreiðari Má Sig­urðs­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings, og lög­manni hans skýrslu eft­ir­lits­ins um meinta mark­aðs­mis­notkun Kaup­þings sem hafði verið send til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Hann vildi frá 30 millj­ónir króna fyrir gögnin. Hreiðar Már hitti mann­inn á bíla­stæði við Árbæj­ar­kirkju í sept­em­ber 2011 til að fara yfir málið. Þar á mað­ur­inn að hafa sýnt honum skýrsl­una á tölvu sinni en hún hafi orðið straum­laus skömmu eftir að lestur hófst. Hreiðar Már hitti mann­inn ekki aftur og keypti ekki skýrsl­una.

Frá þessu er greint í DV í dag en Eggert, höf­undur bók­ar­innar, er rit­stjóri blaðs­ins.

Þessa dag­anna stendur yfir aðal­með­ferð í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Þar er Hreiðar Már á meðal sak­born­inga. Hann var dæmdur til fimm og hálfs árs fang­els­is­vistar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári, meðal ann­ars fyrir mark­aðs­mis­notkun.

Átti að sýna fram á sjónarmið um sakleysi


Í frétt DV um bók Eggerts segir að inni­hald skýrsl­unnar hafi átt að sýna fram á ýmis sjón­ar­mið sem styddu við þá skoðun að stjórn­endur Kaup­þings hefðu ekki gerst sekir um mark­aðs­mis­notkun. Í bók­inni segir að þeim atriðum hafi hins vegar „öllum verið eytt út í loka­út­gáf­unni sem send var sér­stökum sak­sókn­ara.“

Bæði Hreiðar Már og Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður hans, stað­festa þessa frá­sögn sam­kvæmt DV. Höfundur bók­ar­innar náði hins vegar ekki tali af fyrrum starfs­manni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem vildi selja skýrsl­una á 30 millj­ónir, að því er kemur fram í bók­inni.

Í DV kemur fram að starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi hafi átt frum­kvæði að því að hitta Hreiðar Má. Í bók­inni segir: „Hörður tók erind­inu vel og hitt­ust þeir nokkru síðar. Þar kvaðst mað­ur­inn hafa í fórum sínum gögn sem myndu hjálpa skjól­stæð­ingi Harðar, Hreiðari Má, en hann vildi fá 30 millj­ónir króna fyrir þau. Maðurinn vildi lítið segja um efni þess­ara gagna annað en að þau gætu nýst í málsvörn­inni sem framundan væri vegna ákæru sér­staks sak­sókn­ara í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli á hendur nokkrum fyrr­ver­andi starfs­mönnum Kaup­þings, þeirra á meðal Hreiðari Má.“

Hittust á bílastæði við Árbæjarkirkju


Hörður Felix til­kynnti mann­inum að athæfið væri ólög­legt og hann gæti því ekki verið milli­göngu­maður í mál­inu. Hreiðar Már ákvað hins vegar að hitta mann­inn. „Hreiðar Már trúði vart eigin eyrum. Hann segir að það hafi verið mjög stór ákvörðun að vega og meta hvort hann ætti að freista þess að hitta mann­inn en úr varð að þeir gerðu það. Upp­ljóstr­ar­inn lagði til að fund­ur­inn færi fram að kvöld­lagi og skyldu þeir hitt­ast á bíla­stæðum við Árbæj­ar­kirkju. Hreiðari Má fannst þetta allt að því súr­r­eal­ískt og minnti hann á atriði úr kvik­mynd. Skilyrði var að Hreiðar Már kæmi yfir í bíl­inn til manns­ins.“

Síðan segir að Hreiðar Már hafi hitt mann­inn á bíla­stæði við Árbæj­ar­kirkju klukkan tíu í sept­em­ber 2011.

„Hreiðar Már lagði bíl sínum í annarri röð svo að nokkuð var á milli bíl­anna. Því næst gekk hann yfir að bíl upp­ljóstr­ar­ans og sett­ist í fram­sætið, far­þega­megin. Maðurinn var tauga­ó­styrkur og Hreiðar Már við­ur­kennir að hann hafi sjálfur sveifl­ast á milli þess að vera undr­andi og smeykur. Fyrst sagð­ist mað­ur­inn vera ósáttur við vinnu­brögð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna skýrsl­unnar um meinta mark­aðs­mis­notkun Kaup­þings, sem hefði verið send til sér­staks sak­sókn­ara.“

Maðurinn sagði að skýrslan væri með rekj­an­legum breyt­ingum (e. track changes). Samkvæmt DV komu fram þar sjón­armð sem „styddu við að ekki hefði verið um mark­aðs­mis­notkun að ræða en að þau atriði hefðu aftur á móti ekki fylgt með í loka­út­gáfu skýrsl­unnar til sér­staks sak­sókn­ara.“

Maðurinn á síðan að hafa sýnt Hreiðari Má skýrsl­una í aft­ur­sæti bif­reiðar sinnar. Í DV segir: „Um leið og mað­ur­inn opn­aði tölv­una sá Hreiðar að þetta var skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem send var til sér­staks sak­sókn­ara vegna meintrar mark­aðs­mis­notk­unar Kaup­þings. Hreiðar Már var rétt byrj­aður að skoða skýrsl­una þegar tölvan varð straum­laus. Við svo búið kvaddi Hreiðar Már mann­inn.“

Hreiðar Már hitti mann­inn ekki aftur og sam­kvæmt DV veit hann enn ekki hvert inni­hald gagn­anna er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár