Grænlenski olíudraumurinn lifir enn

Þrátt fyrir mikla leit að olíu og margar til­rauna­bor­anir sem hafa engan árangur borið hyggst græn­lenska lands­stjórnin ekki leggja árar í bát. Lands­stjórnin kynnir þessa dag­ana nýja olíu­á­ætlun.

Fræg er sagan af bónd­anum í Texas sem skömmu fyrir alda­mótin 1900 bor­aði eftir vatni á land­ar­eign sinni. Von­brigði hans urðu mikil þegar uppúr hverri bor­hol­unni á eftir ann­ari spýtt­ist, ekki vatn heldur olía. „Ég leita að vatni en hvað fæ ég, olíu. Mig vantar vatn en ekki olíu.“ Á sögu­safn­inu í Austin í Texas er ítar­lega fjallað um upp­haf olíu­vinnslu í Banda­ríkj­unum og þar er sýnd heim­ilda­mynd um áður­nefndan bónda sem er sagður vera sá fyrsti til að upp­götva olí­una á þessum slóðum. Við lít­inn eigin fögnuð eins og ummælin sýna.

Þetta var í upp­hafi olíu­aldar og fæsta grun­aði hve stórt og mik­il­vægt hlut­verk olían ætti eftir að leika í efna­hags­lífi þjóða heims. Sú saga verður ekki rakin nánar hér en eins og flestir vita hefur olíu­vinnsla skapað mörgum þjóðum mik­inn auð. Nær­tæk­asta dæmið er Noregur sem safnað hefur í mjög digran sjóð, olíu­sjóð­inn svo­nefnda. Olían hefur líka margoft orðið til­efni átaka þar sem barist hefur verið um yfir­ráð þess­arar miklu auð­lindar.

Ekki ótakmörkuð auðlind

Langt fram eftir síð­ustu öld leiddu fæstir hug­ann að því að olían, sem pumpað var úr iðrum jarðar, væri kannski ekki ótak­mörkuð. Því meira sem fannst af „svarta gull­inu“ og því hraðar sem olíu­dæl­urnar sner­ust því betra. Meira magn þýddi lægra verð, það var gott fyrir kaup­end­urna. Lægra verð var ekki að sama skapi gott fyrir selj­endur, olíu­ríkin svo­nefndu. Þrátt fyrir vilja sumra þeirra til að tak­marka olíu­vinnsl­una hafa inn­byrðis átök og deilur, ásamt marg­hátt­uðum hags­munum, orðið til þess að sam­staða hefur sjaldn­ast náðst. Margar þjóðir, sem ekki ráða yfir olíu­lindum, eiga mikið undir olíu­verð­inu.

Á síð­ari hluta síð­ustu aldar fóru af og til að ber­ast fréttir um að kannski væri olían í iðrum jarðar ekki óþrjót­andi. Lítið breytt­ist en smám saman fór röddum af þessu tagi fjölg­andi.

Sól, vindur, hafstraumar, fallvötn og kjarnorka

Á þess­ari öld hefur umræðan um „nýja orku­gjafa“ sem leyst gætu olí­una af hólmi orðið æ fyr­ir­ferð­ar­meiri. Því veldur einkum tvennt: álit vís­inda­manna þess efnis að olían sé ekki óþrjót­andi og á allra síð­ustu árum hlýnun jarð­ar­innar. Hér verður ekki rakin sú mikla umræða en æ fleiri beina nú sjónum sínum að öðrum orku­gjöfum en olí­unni. Bíla­fram­leið­endur kepp­ast hver við annan um að fram­leiða bíla sem nýta raf­magn sem orku­gjafa, sól­ar­orka er í mörgum löndum orðin mik­il­vægur þáttur í raf­orku­fram­leiðslu, vind­myllum fjölgar eins og gorkúlum og svo fram­vegis. Allt til höf­uðs olí­unni, eins og þekktur þjóð­höfð­ingi komst að orði.

Grænlenska landsstjórnin trúir á framtíð olíunnar

Þrátt fyrir að aðrir orku­gjafar en olían sæki sífellt á bendir allt til þess að olían verði um langa fram­tíð mik­il­vægur orku­gjafi.

Græn­lend­ingar eru meðal þeirra þjóða sem lengi hefur átt sér olíu­draum. Árið 1969 var fyrst leitað að olíu á græn­lensku land­svæði en þrátt fyrir vís­bend­ingar um að víða í land­inu gæti olíu verið að finna hefur til þessa ekk­ert komið út úr slíkri leit. Smám saman dró svo úr olíu­leit­inni. Ástæð­urnar voru auk­inn áhugi á öðrum orku­gjöfum eins og áður var nefnt og margir sér­fræð­ingar telja olíu­vinnslu á þessum slóðum erf­iða, þó svo að olía fynd­ist.

Árið 2010 fengu Græn­lend­ingar aukin umráð yfir auð­lindum sínum, „råstof­om­rådet“. Síðan þá hafa græn­lenskir stjórn­mála­menn lagt mikla áherslu á olíu­leit­ina og boðið stórum alþjóð­legum olíu­vinnslu­fyr­ir­tækjum að leita eftir olíu. Áhuginn hefur þó farið dvín­andi en græn­lenska land­stjórnin hefur ekki lagt árar í bát. Nýverið sam­þykkti lands­stjórnin nýja olíu- og gasá­ætlun, henni er ætlað að auka áhuga stórra olíu­vinnslu­fyr­ir­tækja á olíu­leit og vinnslu. Í stuttu máli gengur áætl­unin út á að fyr­ir­tæki sem taka að sér olíu­leit fái sér­staka skattafslætti og jafn­framt úthlutað vinnslu­svæðum.

Formaður græn­lensku lands­stjórn­ar­innar, Kim Kielsen, hefur und­an­farið farið víða um lönd og kynnt hug­myndir Græn­lend­inga. Í lið­inni viku hitti hann for­stjóra nokk­urra stórra olíu­vinnslu­fyr­ir­tækja í Lundúnum. Þangað kom hann beint frá Houston í Texas þar sem hann hélt erindi og kynnti hug­myndir Græn­lend­inga á ráð­stefnu um fram­tíð og horfur í olíu­vinnslu.

Ekki allir jafn hrifnir

Hug­myndir Græn­lend­inga vekja ekki alls­staðar hrifn­ingu. Formaður Græn­frið­unga á Norð­ur­slóðum (Greenpeace Norden) kveðst undr­andi á þessum hug­myndum Græn­lend­inga og hvetur þá til að leita ann­arra leiða til að styrkja efna­hag sinn. „Að mínu mati er Grænland óheppi­leg­asti staður jarð­ar­innar til olíu­vinnslu, ekki síst út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum.“ Nokkrir danskir þing­menn hafa lýst svip­uðum við­horfum en leggja áherslu á að það sé Græn­lend­inga að ákveða.

Alls eru svæðin sem um er að ræða, og græn­lenska þingið og lands­stjórnin hefur sam­þykkt, fimm tals­ins. Opnað verður fyrir umsóknir um leit og vinnslu á fyrsta svæð­inu í þessum mán­uði. Þar er um að ræða Nuussuaq skag­ann við Disko flóa. Síðar á þessu ári verður opnað fyrir umsóknir á tveimur svæðum við vest­ur­strönd Græn­lands, á næsta ári eitt svæði á Norð-austur Græn­landi og á fimmta svæð­inu, mið­austur- Græn­landi, í jan­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár