Fjöldi meðlima í Ásatrúarfélaginu nær fjórfaldast á tíu árum

Á síð­ustu árum hefur með­limum Ása­trú­ar­fé­lags­ins fjölgað hratt en í byrjun árs voru alls 4.472 skráðir í félagið. Félagið er í dag fimmta stærsta trú­fé­lagið á Íslandi og það stærsta sem byggir ekki á kristnum grunni.

Ásatrú á Íslandi hefur vaxið fiskur um hrygg á síð­ustu árum en félags­menn í Ása­trú­ar­fé­lag­inu voru orðnir 4.472 tals­ins í byrjun árs, sam­kvæmt Þjóðskrá. Félagið er nú fimmta stærsta trú­fé­lag lands­ins og það stærsta sem byggir ekki á kristnum grunni. Fjöldi þeirra sem aðhyll­ast ása­trú hafa marg­fald­ast síð­ast­a ára­tug, en með­limir voru aðeins 1.154 í byrjun árs 2008. Fjöldi með­lima hefur því nærri fjór­fald­ast á síð­ustu tíu árum.

Heiðinn siður í mik­illi sókn

Ása­trú­ar­fé­lagið var form­lega stofnað árið 1972 og fékk við­ur­kenn­ingu sem lög­gilt trú­fé­lag ári síðar. Fyrstu tvo ára­tug­ina, frá 1973 til 1993, voru skráðir ása­trú­ar­menn innan við hund­rað. Síðan þá hefur með­limum fjölgað jafnt og þétt. Met­fjölgun varð á árinu 2017 en í lok þess árs voru 543 fleiri skráðir í félagið en í árs­byrjun eða um 4028 í lok árs. Félögum fjölg­aði síðan um 10 pró­sent á milli ára og voru með­limir 4472 í lok árs í fyrra.

Karlmenn eru í meiri­hluta í félag­inu en í árs­byrjun 2018 voru 2740 karl­menn skráðir í félagið en aðeins 1386 konur. Konum hefur þó hlut­falls­lega fjölgað hraðar í félag­inu en karlar á síð­ustu árum. Árið 2008 voru 853 karl­menn skráðir í félagið en aðeins 300 konur.

Efla ásatrú með fræðslu ekki trúboði

Á heimasíðu Ásatrúarfélagsins segir að ásatrú eða heiðinn siður byggist á umburðarlyndi, heiðarleika, drengskap og virðingu fyrir fornum menningararfi og náttúrunni. Eitt megininntak siðarins sé að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og gerðum sínum. Siðareglur ásatrúarmanna má finna í Hávamálum en heimsmyndina í Völuspá. Í trúarlegum efnum hafa ásatrúarmenn aðallega hliðsjón af hinum fornu Eddum.

Samkvæmt félaginu er reyndar villandi að kalla siðinn ásatrú þar sem átrúnaður sé ekki einungis bundinn við æsi, heldur hvaða goð eða vættir sem er innan norrænnar goðafræði og þjóðtrúar, svo sem landvættir, álfa, dísir, vani, jötna, dverga og aðrar máttugar verur eða forfeður. Ásatrúarmenn megi iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo framarlega sem iðkunin brýtur ekki á bága við landslög.

Margir ásatrúarmenn líta jafnframt frekar á ásatrú sem sið eða lífsstíl heldur en bein trúarbrögð, samkvæmt félaginu. En tilgangur félagsins sé að starfa að eflingu ásatrúar og annars þá trúarlegu þjónustu sem því er samfara. Þessu markmiði hyggst félagið ná með fræðslu- og félagsstarfi en ekki trúboði.

Hlutur þjóðkirkjunnar í hjónavígslum fer hratt minnkandi

[links]Hlutfall þeirra sem skráðir eru í þjóðkirkjuna hefur aldrei verið lægra en nú. Frá árinu 2009 hefur með­­­limum þjóð­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Alls hefur þeim fækkað um 20.164 frá þeim tíma en þann 1. desember síðastliðinn voru 232.672 landsmenn skráðir í þjóðkirkjuna og hafði fækkað um 2.419 á einu ári. Alls eru 65,4 prósent þjóðarinnar skráð í kirkjuna, sem þýðir að rúmlega einn þriðji hluti þeirra sem búa á Íslandi eru ekki í henni.

Þá eru merki um að þjóðin sé að nota þjónustu kirkjunnar í minna mæli en áður en hlutur þjóðkirkjunnar í hjónavígslum hefur farið hratt minnkandi um árabil. Um aldarmótin var hlutur hennar í slíkum 71 prósent en árið 2018 hann kominn niður fyrir 50 prósent, samkvæmt Þjóðskrá. Mikil fjöldi giftir sig nú hjá sýslumanni en samkvæmt Ásatrúarfélaginu hafa einnig fjölmörg brúðhjón verið gefin saman að heiðnum sið á undanförnum árum. En samkvæmt lögum ber trúfélögum að inna af hendi athafnir, svo sem hjónavígslur og útfarir. Athafnir þessar eru framkvæmdar af allsherjargoða og þeim goðum sem hafa vígsluréttindi innan Ásatrúar.

Samkvæmt félaginu er algengt að erlend brúðhjón komið til landsins í þeim tilgangi einum að láta goða Ásatrúarfélagsins vígja sig til hjúskapar. Ástæða þess er sú að utan Íslands hafa enn sem komið er einungis ásatrúarfélögin í Danmörku og Noregi fengið viðurkenningu sem löggild trúfélög með þeim skyldum og réttindum sem slíku fylgir.

Byggja hof ásatrúarmanna í Öskjuhlíð

Ásatrúarfélagið fékk úthlutað lóð í Öskjuhlíð Í Reykjavík árið 2006 undir starfsemi sína og byggir nú hof ásatrúarmanna. Hofið verður hvelfing, að hluta til niðurgrafin og mun rúma 250 manns. Í hofinu mun fara fram blót og ýmsar helgiathafnir, svo sem nafngjafir, siðfesta, hjónavígslur og útfarir. Þá verða haldnir tónleikar og ýmsar sýningar tengdar ásatrú.

Til stóð að hofið yrði til­búið í mars í fyrra en Frétta­blaðið greindi frá því í síð­ustu viku að bygg­ing hofs­ins sé komin 112 pró­sent fram úr áætlun og mun kosta ríf­lega 140 millj­ónum króna meira en til stóð. Upp­runa­leg áætlun hljóð­aði upp á 127 millj­ónir en í dag sé áætlað að 270 millj­ónir þurfi til að klára verkið. Hilmir Örn Hilm­ars­son, alls­herj­ar­goði, segir að hóp­fjár­mögnun sé til skoð­unar. Ása­trú­ar­fé­lagið von­ist til þess að safna þannig átján millj­ónum króna til bygg­ingar húss­ins. Hilmar segir að ekki hafi enn þurft að taka banka­lán og að Ása­trú­ar­fé­lagið vilji halda við þau áform sem lögð hafi verið í upp­hafi að byggja hofið skuld­laust. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár