Umfang „Fyrstu fasteignar“ gæti orðið 13 milljarðar, ekki 50

Greining sem unnin var fyrir stjórn­völd sýnir að þátt­taka í „Fyrstu Fasteign“ getur orðið mun minni en kynn­ing þeirra á úrræð­inu gaf til kynna. Grein­ingin sýndi einnig að heild­ar­um­fangið geti orðið mun minna og að skatta­af­sláttur 1/3 af því sem kynnt var.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson kynntu aðgerðirnar á mánudag.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son kynntu aðgerð­irnar á mánu­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi þeirra sem nýtir sér nýja leið rík­is­stjórn­ar­innar til að greiða sér­eign­ar­sparnað inn á fyrstu íbúð, sem kall­ast „Fyrsta Fasteign“, gæti orðið allt niður í 4.300 manns. Umfang aðgerð­anna yrði þá ein­ungis 13 millj­arðar króna og veittur afsláttur af skatt­greiðslum um fimm millj­arðar króna. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð með frum­varpi til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð.

Í kynn­ing­unni sem rík­is­stjórnin hélt á úrræð­inu í Hörpu á mánu­dag kom fram að hún vænti þess að 14 þús­und manns myndu taka þátt í úrræð­inu, að umfang aðgerð­anna yrði um 50 millj­arðar króna og að hið opin­bera myndi gefa eftir 15 millj­arða króna í fram­tíð­ar­skatt­tekjur vegna þeirra.

Tekjuhærri miklu líklegri til að eiga séreignarsparnað

Fyr­ir­tækið Analytica gerði grein­ingu um vænta nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar fyrir stjórn­völd þegar vinna við frum­varpið stóð yfir. Hún byggi á gögnum úr skatt­fram­tölum fyrir tekju­árið 2015 og var úrtakið miðað við laun­þegar sem voru með launa­tekjur en áttu ekki fast­eign. Analytica fram­reikn­aði svo launa­tekj­urnar fram til árs­ins 2016 miðað við launa­breyt­ingar í stað­greiðslu­gögnum og flokk­aði loks eftir hjú­skap­ar­stöðu, aldri með­al­launum og með­al­fjár­hæð sparn­aðar í sér­eign og því hvort að við­kom­andi væri að greiða í sér­eign eða ekki.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að með­al­tekjur þeirra sem spara í sér­eign er umtals­vert hærri en hjá þeim sem gera það ekki. Námsmenn voru dregnir út úr úrtak­inu þar sem þeir voru „almennt ekki taldir hafa sama fjár­hags­legt svig­rúm til sparn­aðar.“

Því liggur fyrir, sam­kvæmt grein­ing­unni, að þeir sem geta frekar nýtt sér sér­eign­ar­leið­ina sem kynnt var fyrir fyrstu fast­eign­ar­kaup­endur eru þeir sem hafa hærri tekjur og eru þar með lík­legri til að taka þátt í sér­eign­ar­sparn­aði.

Upphafin mynd af úrræði kynnt í Hörpu

Í kynn­ing­unni á aðgerð­inni í Hörpu á mánu­dag var sagt að búist væri við að hún myndi skila 50 millj­örðum króna í beinar inn­greiðslur á íbúða­lán af sér­eign­ar­sparn­aði næsta ára­tug­inn. Áætlað tekju­tap hins opin­bera, rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga, var sagt vera 1,5 millj­arður króna á ári, eða 15 millj­arðar króna á næsta ára­tug á meðan að úrræðið á að gilda. Þá var einnig sagt að búist væri við að 14 þús­und manns myndu taka þátt í úrræð­inu á fyrstu árum þess og að um tvö þús­und nýir þátt­tak­endur gætu bæst við á ári.

Í grein­ar­gerð frum­varps til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð kemur fram að grein­ing Analytica hafi ekki sýnt stöð­una svona klippta og skorna.

Þátttaka gæti orðið mun minni

Þar segir að sé miðað við sviðs­myndir fyr­ir­tæk­is­ins, sem byggja á fjölda fólks sem nú er á ald­urs­bil­inu 20-49 ára og á ekki fast­eign (sá hópur er tal­inn lík­leg­astur til að nýta sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið), megi búast við því að úrræðið gæti náð til 4.300 til 15.200 laun­þega og að þeir geti sparað árlega í sér­eign 1,3 til 5,2 millj­arða króna. Það þýðir að inn­greiðslur á íbúða­lán af sér­eign­ar­sparn­aði næstu tíu árin verði á bil­inu 13 til 52 millj­arðar króna. Árlegt tekju­tap rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga yrði þá á bil­inu 500 millj­ónir króna til 2.000 millj­ónir króna, eða fimm til 20 millj­arðar króna á tíu ára tíma­bili.

Ljóst er að rík­is­stjórnin hefur því valið þær tölur sem sýndar voru í kynn­ing­unni á mánu­dag: 50 millj­arða króna nið­ur­greiðslur á lánum, 14 þús­und manns sem myndu taka þátt og 15 millj­arða króna skatta­eft­ir­gjöf hins opin­bera, úr efri mörkum grein­ingar Analytica.

Ef neðstu mörk grein­ing­ar­innar yrðu að veru­leika myndu nefni­lega 4.300 manns nýta sér úrræðið, það myndi skila 13 millj­örðum króna inn­greiðslum á íbúða­lán af sér­eign­ar­sparn­aði næsta ára­tug­inn og skatta­eft­ir­gjöf hins opin­bera yrði fimm millj­arðar króna.

Leiðréttingin verður ekki 150 milljarðar

Þegar útfærsla Leið­rétt­ing­ar­innar var kynnt í Hörpu í mars 2014 var sagt að aðgerðin myndi leiða til þess að hús­næð­is­lán Íslend­inga myndu lækka um 150 millj­arða króna. Þar af áttu 80 millj­arðar króna að koma í beinar nið­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði á höf­uð­stól hús­næð­is­lána þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 og höfðu ekki full­nýtt önnur skulda­úr­ræði. 70 millj­arðar króna áttu hins vegar að koma í formi þess að Íslend­ingar myndu nota sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán. Þetta átti að ger­ast á þremur árum, frá miðju ári 2014 og fram á mitt næsta ár. Nú þegar ⅔ hluti þess tíma­bils er liðin hafa leið­rétt­inga­pen­ing­arnir úr rík­is­sjóði sann­ar­lega verið greiddir út. En nýt­ing á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður hús­næð­is­lán er langt frá því sem hún átti að vera.

Íslend­ingar hafa sam­tals greitt sér­eign­ar­sparnað upp á 23,3 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín frá miðju ári 2014 og fram til júlí­mán­aðar 2016. Til við­bótar hafa 520 millj­ónir króna af sér­eign­ar­sparn­aði verið not­aðar sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa. Þeir sem not­færa sér þá leið hafa reyndar til 30. júní 2019 til að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn í fyrsta fast­eign en miðað við þátt­töku í leið­inni hingað til er ljóst að ekki er um mjög stóran hóp að ræða.

Ríkið og sveit­ar­fé­lög hafa veitt þeim hópi sem þetta hefur gert sam­tals 9,2 millj­arða króna í skatta­af­slátt. Samkvæmt grófu mati hefur sér­eign­ar­sparn­aði verið ráð­stafað inn á um 37 þús­und lán. Því er veru­lega ólík­legt er að áætlun stjórn­valda, um að 70 millj­arðar króna af sér­eign­ar­sparn­aði fari til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána fyrir mitt næsta ár, gangi eftir. Sú tala stendur nú, þegar ⅔ hluti tíma­bils­ins er lið­inn, í sam­tals 23,8 millj­örðum króna.

Í ljósi þessa má ætla að nýt­ing yngra fólks á úrræð­inu sem kynnt var á mánu­dag geti orðið mun minni en gert var ráð fyrir í kynn­ingu stjórn­valda á því.

Athugasemd frá Sigurði Má Jónssyni, upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, birt klukkan 16:53:

„Í frétt Kjarnans í dag er því haldið fram að í kynn­ingu for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um sér­eign­ar­sparnað sl. mánu­dag hafi rík­is­stjórnin valið þær tölur um vænta þátt­töku í úrræð­inu sem eru í efri mörkum töl­fræði­grein­ingar. Þetta er rangt. Í kynn­ing­unni er not­ast við tölur úrgrunn­til­viki í töflu 1 í frum­varpi til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð. Í grunn­til­viki er vænt nýt­ing þeirra laun­þega fyrir utan náms­menn sem ekki eiga fast­eign 13.830 manns. Þátt­töku­hlut­fallið í grunn­til­vik­inu er 40% af þeim sem spara nú þegar í sér­eign og 38% af þeim sem spara ekki í sér­eign eins og fram kemur í frum­varp­inu. Töl­fræði­grein­ingin er byggð á skatt­fram­tölum og núver­andi nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar. Grunn­til­vikið er metið það lík­leg­asta en síðan eru reiknuð út frá­vik frá þessu grunn­til­viki. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár